Tvífarar vikunnar eru nafnarnir Gunnar Kristinn Þórðarson, oddviti Karlalistans í Reykjavík, og dularfulli pistlahöfundurinn Gunnar Hjartarson. Gunnar Hjartarson skrifar á vefinn Sandkassann, en ritstjóri vefjarins, Gunnar Waage, er einmitt í öðru sæti á lista Karlalistans. Enginn veit hvernig Gunnar Hjartarson lítur út í raun og veru, eða hvort hann sé yfirleitt raunverulegur, en tölvugerða myndin sem hann notar á samfélagsmiðlum er sláandi lík Gunnari Kristni.