„Ég held að eftir nokkur ár, ábyggilega þó nokkuð mörg ár, þá muni fólk ekki stimpla aðra svona rosalega mikið. Af því að yfirhöfuð þá eru kassarnir alltof fáir og alltof þröngir til þess að allir fitti inn í þá,“ segir María Birta Bjarnadóttir leikkona og eigandi Maníu en hún skilgreinir sig sem pankynhneigða. Þeir sem eru pankynhneigðir laðast að einstaklingum óháð kyngervi eða kynvitund. María gekk í hjónaband með listamanninum Ella Egilssyni árið 2014 og segir marga halda að þar sem hún er nú gift karlmanni þá „passi“ hún ekki lengur sem pankynhneigð.
Rætt var við Maríu Birtu í þættinum Hinseginleikinn á RÚV. Hún segir kynhneigðina ekkert hafa breyst eftir að hún giftist eiginmanni sínum þó svo að sumir virðist halda það.
„Hún breytist ekkert hjá mér. Mér fannst það í rauninni svolítið fyndið þegar ég fór að heyra,eftir að við giftum okkur: „ég vissi að hún væri straight!“ Mér fannst þetta svo skrítið. Ég sem einstaklingur breytist klárlega ekki neitt við það að hafa fundið sálufélaga minn í karlmanni,“
María hefur áður átt í ástarsamböndum við konur og segir fólk draga þá ályktun að þar sem hún hafi ung gifst karlmanni þá hljóti hún hafa verið að taka „tímabil“ með því að vera með konum í sambandi. Hún hljóti að hafa verið að prófa sig áfram og finna sig.
„Það er alveg pirrandi að fólk skuli einhvern veginn „dismissa“ það bara algjörlega eins og þetta hafi bara verið djók, þú hafir bara verið að prufa þig áfram,“ segir María einnig en hún sér ekki kyn fólks, hún sér bara persónuna.
„Ég horfi ekki á par og hugsa: „Vá hvað þetta er fallegt lesbískt par. Ég stimpla það ekki. Þetta er bara fallegt par.“