fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Gunnhildur hélt eiginmanninum uppi með fermingarpeningunum

Var 17 ára þegar hún giftist nígerískum manni – „Breytti mér til hins betra“ – Lítur á þetta sem jákvæða reynslu

Ritstjórn DV
Föstudaginn 16. mars 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnhildur Thelma var einungis sautján ára gömul þegar hún gekk í hjónaband með manni frá Nígeríu. Þurfti hún í kjölfarið að sjá ein fyrir heimilinu á tímabili. Hún segir reynsluna hafa gert það að verkum að hún þroskaðist hraðar en jafnaldrar hennar en viðurkennir að viðbrögð fólks við ráðahagnum hafi verið æði misjöfn.

Varð fyrir einelti í æsku

Gunnhildur segir að ævi hennar hafi ekki alltaf verið dans á rósum. Hún var alin upp í litlu bæjarfélagi en þar bjó hún með foreldrum og þremur systkinum.

„Ég lenti í miklu einelti á mínum yngri árum frá krökkum, kennurum og líka smávegis frá fjölskyldumeðlimum og þá sérstaklega ömmu minni. Afi minn er alkóhólisti og hefur það haft áhrif á alla í fjölskyldunni. Þegar ég var lítil þá vildu foreldrar mínir gefa okkur allt sem við vildum, sem er gott en líka slæmt. Ég var erfið sem barn og vildi stjórna öllu og vildi aldrei gefa neitt eftir. Þegar ég var sjö ára byrjaði vesen með mat, mamma mín vann í búðinni í bænum og ég fór á hverjum degi og fékk mér eitthvað og þyngdist mjög mikið á stuttum tíma. Fólk grunaði að eitthvað væri að og ég fór í skoðun til lækna og aldrei fannst neitt við þessu.“

Þegar Gunnhildur var átta ára flutti besta vinkona hennar úr þorpinu og var Gunnhildur því mikið ein eftir það. Þá gekk henni illa í skóla vegna lesblindu og til að flýja vanlíðan sótti hún í mat og fatakaup. Þá sóttist hún eftir viðurkenningu frá hinu kyninu og nýttu níðingar sér það til að brjóta á Gunnhildi. Kveðst hún hafa verið aðeins 11 til 12 ára þegar hún sendi nektarmyndir af sér. Upp komst um málið þegar send var nektarmynd af Gunnhildi til fólks í bænum. Eftir því sem hún varð eldri dró úr eineltinu en kennarar í skólanum hafi í staðinn tekið hana fyrir. Þegar Gunnhildur hóf nám í tíunda bekk hafði dregið mjög úr eineltinu í skólanum og voru henni í lok árs veitt verðlaun fyrir mestu framfarirnar. Það skyggði þó á að um svipað leyti skildu foreldrar hennar og í kjölfarið tvístraðist fjölskyldan. Gunnhildur flutti til Reykjavíkur með móður sinni.

„Hann var þá búinn að vera á Íslandi í nokkra mánuði en hafði áður farið frá Afríku til Tékklands og var þar í skóla. Vinur hans, sem var búsettur á Íslandi, bauð honum síðan að koma til Íslands og vera hjá sér á meðan hann væri að leita að vinnu. Við byrjuðum að hittast og þetta þróaðist allt mjög hratt. Fljótlega kom síðan í ljós að hann átti von á að vera sendur úr landi þar sem dvalarleyfið hans var að renna út eftir nokkrar vikur.“

Samkvæmt 13. gr. laga um útlendinga geta útlendingar sem eru í hjúskap með íslenskum ríkisborgara átt rétt á því að fá dvalarleyfi hér á landi. Ef hjúskapur hefur varað í að minnsta kosti þrjú ár er ekki hætta á að viðkomandi missi dvalarleyfið. Parið þurfti að taka ákvörðun um framtíðina í skyndi og ákvað í kjölfarið að ganga í hjónaband svo hægt væri að tryggja að maðurinn gæti verið áfram á Íslandi. Gunnhildur játar að vissulega hafi viðbrögð fólksins í kringum hana ekki alltaf verið jákvæð.

„Það voru ekkert allir sem skildu af hverju ég var að gera þetta,“ segir Gunnhildur.

Aldursmunurinn á parinu vakti einnig viðbrögð en Gunnhildur segir að vísu sé mikið um aldursmun í hennar nánustu fjölskyldu: til að mynda séu 13 ár á milli foreldra hennar og 19 ár á milli föður hennar og núverandi unnustu. Þá eru einnig 13 ár á milli móður hennar og núverandi manns hennar.

„Ég hef alltaf vitað, síðan ég var ung, að minn framtíðareiginmaður myndi vera útlenskur. Ég hef aldrei sótt í íslenska stráka enda er mín reynsla af þeim ekkert sérstaklega góð. Ég var líka þannig að ég leitaði mjög mikið í hrifningu frá öðrum þar sem að ég fékk lítið af umhyggju og ástúð í æsku. Það sést kannski best á því að ég var áður með 99 prósenta mætingu í skólanum en eftir að við byrjuðum saman varð mætingin mjög slöpp þar sem að ég vildi alltaf vera með honum.“

Gunnhildur kveðst hafa orðið fyrir aðkasti fyrir að hafa hafið samband með manninum.

„Ég fékk að heyra að hann væri að nota mig, en mér var sama hvað fólk sagði.“ Hún bætir við að það hafi ekki verið þannig að maðurinn hafi þrýst á hana að giftast honum. „Mér fannst ég alveg tilbúin og ég var ekkert hrædd eða hikandi. Ég sagði við hann á tímabili að ef hann yrði sendur í burtu þá myndum við bíða og gifta okkur þegar ég væri orðin átján ára. Ég hef áður kynnst og talað við útlending sem er ekki með dvalarleyfi og hann pressaði lúmskt á mig með því að segja hluti eins og: „Þegar þú ert tilbúin þá getum við gift okkur.“ Þú þarft að passa sjálfan þig í þessum aðstæðum.“

Þar sem Gunnhildur var ekki orðin lögráða þurfti að sækja um fyrir hana sérstakt leyfi til dómsmálaráðuneytisins til að fá ganga í hjúskap. Giftingarathöfnin fór síðan fram með látlausum hætti á skrifstofu Sýslumannsins í Reykjavík í júlí 2014, minna en hálfu ári eftir að Gunnhildur og maðurinn kynntust.

Móðir Gunnhildar hafði flust búferlum til Noregs fyrr um árið og þurfti Gunnhildur að finna sér nýjan samastað ásamt eiginmanni sínum. Tóku þau í kjölfarið íbúð á leigu. Eiginmaður Gunnhildar fékk vinnu við ræstingar hjá fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Þar sem að hann var ekki kominn með íslenska kennitölu fékk hann ekki útborgað fyrr en eftir rúmlega hálft ár í vinnu. Gunnhildur þurfti því nær alfarið að sjá fyrir heimilinu, borga reikninga og leigu. Á þeim aldri, þegar flestir búa áhyggjulausir í foreldrahúsum, þurfti Gunnhildur því að reka heimili samhliða því að vera í vinnu.

„Ég eyddi öllu sem ég átti: fermingarpeningunum, barnapeningunum, öllum laununum, hverri krónu,“ segir Gunnhildur en barnapeningurinn sem um ræðir voru upphæðir sem hún hafði safnað inn á sparireikning frá unga aldri. Hlutirnir breyttust hins vegar til hins betra eftir að eiginmaður Gunnhildar fékk úthlutað íslenskri kennitölu og gat komið með tekjur inn á heimilið. Hún gat því einbeitt sér aftur að framhaldsskólanáminu ásamt því að vera í hlutastarfi. Þrátt fyrir mikið álag tókst henni að ljúka stúdentsprófi á fjórum árum líkt og jafnaldrar hennar.

Sátt í dag

Parið skildi í fyrra eftir fjögurra ára hjónaband og segir Gunnhildur að þau hafi fjarlægst hvort annað smátt og smátt.

„Það fór að vera eins og hann hefði aldrei tíma fyrir mig, hann var í 100 prósent vinnu og seinna í 100 prósent námi og á fullu að stunda ræktina. Við gerðum líka þau mistök að ef upp komu vandamál þá leystum við ekki úr þeim. Ég fór að efast um sambandið, en ég var samt hrædd við óvissuna og hvað myndi taka við ef við myndum skilja.“

Gunnhildur kveðst sátt við lífið í dag en hún hefur undanfarin misseri unnið á hjúkrunarheimili og stefnir á háskólanám, hugsanlega erlendis. Hún segir engin sárindi eða svik hafa verið á bak við skilnaðinn.

„Alls ekkert þannig, hann er mjög góður maður og ég hef ekkert á móti honum, þetta var ekki að ganga upp.“ Hún bætir við að vissulega hafi hún fórnað afar miklu fyrir hjónabandið en það þjóni litlum tilgangi að velta sér upp úr því. „Ég get ekkert breytt þessu í dag. Ég lít á þetta sem ákveðna lífsreynslu, þetta breytti mér til hins betra og gerði að verkum að ég þurfti að þroskast hratt í stað þess vera kannski í einhverju djammi og rugli.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Ruza fer í skóför Felix

Eva Ruza fer í skóför Felix
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“