fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Valgeir fór í magaermiaðgerð í Lettlandi

Mikil eftirsjá fyrst – Mikilvægt að skilja matarfíknina – Fór ásamt átta öðrum Íslendingum

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 11. mars 2018 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Valgeir Elís er 29 ára gamall. Hann er einstæður og býr í Keflavík þar sem hann starfar á kaffihúsi og í veipversluninni zoz.is. Valgeir er þessa stundina í pásu frá háskólanámi, en mun halda áfram á næstu önn í sálfræði við Háskóla Íslands. Valgeir gekk nýlega undir magaermiaðgerð í Lettlandi. Hann og átta aðrir Íslendingar í yfirþyngd fóru saman til Lettlands til að leggjast undir hnífinn. Valgeir segir aðgerðina kostnaðarminni í Lettlandi og þar séu einnig gerðar mun ítarlegri rannsóknir áður en aðgerðin er framkvæmd. Valgeir tók mjög hvatvísa ákvörðun þegar hann fór í aðgerðina og segir því hafa fylgt mikil eftirsjá fyrst um sinn. Hann segir að það hafi stafað af óheilbrigðu sambandi hans við mat. Að sögn Valgeirs er ekki nóg að fara í aðgerðina heldur þurfi hann að leysa vandann á bak við matarfíkn sína. Tvö alvarleg tilvik hafa komið upp á Íslandi vegna fylgikvilla eftir magaermiaðgerð. Einn einstaklingur hefur látið lífið og er öðrum haldið sofandi. Í einlægu viðtali við DV segir Valgeir frá aðgerðinni, eftirsjánni og framhaldinu.

Lettland vinsælt meðal Íslendinga

Af hverju fórstu til Lettlands í aðgerðina?

„Ég ætlaði að fara í aðgerðina heima en hér kostar aðgerðin 1,5 milljónir króna. Maður fer í blóðprufu og svo beint í aðgerð. En í Lettlandi er það öðruvísi. Ég borgaði 880 þúsund fyrir flugið, hótelið, keyrslu til og frá, túlk, aðgerðina sjálfa og fékk að taka eina manneskju með mér. Áður en ég fór í aðgerðina fór ég í blóðprufu, magaspeglun, röntgen og ómskoðun. Ein í hópnum fékk til dæmis ekki að fara í aðgerðina því eitthvað sást á lunganu hennar í röntgen,“ segir Valgeir Elís.

Valgeir Elís fór til Lettlands ásamt níu Íslendingum. Aðgerðin og ferðin var bókuð í gegnum norskt fyrirtæki, Medical Travel.

„Það var íslenskur tengiliður með okkur allan tímann, í öllum læknisskoðunum og slíku. Svo var einnig ein kona frá Lettlandi sem var túlkur. Það var mjög fínt.“

Valgeir segir að það sé farið svona ferðir í hverjum mánuði. Hann segist þó ekki vera viss um hversu margir fara í hvert skipti en augljóst sé að Lettland sé vinsæll kostur fyrir þá sem vilja fara í magaermiaðgerð.

Hvatvís

Valgeir ætlaði upphaflega í magabandsaðgerð á Íslandi en hvatvísin leiddi hann annað.

„Ég fór í viðtal til Auðuns Sigurðssonar á Gravitas. Hann benti mér á að fara í magabandið. Svo var það einhver sem sýndi mér Facebook-síðu Medical Travel á Íslandi. Daginn eftir var ég búinn að senda tölvupóst og eiginlega búinn að borga staðfestingargjaldið,“ segir Valgeir og tekur fram að hann hafi lengi verið þekktur fyrir hvatvísi sína.

Hvað leið langur tími frá því þú sendir fyrsta tölvupóstinn og þar til þú fórst í aðgerðina?

„Ég sótti um að komast í aðgerðina í lok nóvember 2017. Ég hefði getað farið út tveimur vikum seinna, eða 13. desember, en ákvað að fara frekar út 9. janúar og fór í aðgerðina 13. janúar.“

Valgeir tók vinkonu sína með sér til Lettlands. Aðspurður hvort það hafi verið til að fylgjast með honum segir Valgeir: „Aðallega til að bera töskurnar mínar heim,“ og hlær. „Það var sagt að ég mætti ekki bera neitt á leiðinni heim. En það var líka gott að hafa stuðning. Eins og ég væri ekki einn í ókunnugu landi nýkominn úr aðgerð og handónýtur.“

Aðgerðin

Valgeir fór út á miðvikudegi og í aðgerðina á laugardegi. Upphaflega ætlaði Valgeir í magahjáveituaðgerð. En þar sem búið er að fjarlæga miltað úr honum töldu læknarnir ekki hægt að segja til um hvort magaermi eða magahjáveita myndi henta honum betur fyrr en búið væri að skera hann upp. Þegar hann vaknaði eftir svæfingu var honum sagt að hann hafi fengið magaermi.

Hvernig undirbjóstu þig undir aðgerðina andlega, varstu kvíðinn?

„Nei, ég verð afar lítið kvíðinn. Ég er svo hvatvís. Kvíðinn kemur eftir á. En ég get ekki tekið úr mér magaermina, því maginn minn er orðinn að ermi. Þetta er miklu meira en að segja það, að fara í svona aðgerð. Þetta er heilmikið inngrip. Ef ég hefði farið í magabandið þá gæti ég látið taka það úr ef mér líkaði það ekki. Ég gerði mér ekki grein fyrir hversu mikið inngrip þetta væri. Ég elska mat, meira en allt. Að fara úr því að borða eins og ég borðaði, yfir í að borða svona eins til tveggja desilítra máltíðir í senn er rosalegt áfall fyrir matarfíkillinn minn,“ segir Valgeir.

„Eftir aðgerðina var ég mjög fúll. Sérstaklega á annarri viku eftir aðgerðina. Þá var ég byrjaður að borða maukaðan mat og hugsaði: hvað var ég eiginlega að hugsa með að fara í aðgerðina. En ástæðan fyrir því að ég gerði þetta var sú að ekkert annað virkaði fyrir mig. Ég var búinn að prófa alls konar matarkúra og ólöglegar leiðir til að grennast.“

Varstu búinn að kynna þér hvaða áhætta fylgdi aðgerðinni áður en þú fórst í hana?

„Nei, ef ég á að segja alveg eins og er. Ég gerði það eftir á. Ég fór að skoða YouTube-myndbönd og slíkt. Eitt sem ég tek eftir er að mér er eiginlega alltaf kalt núna. Það er aukaverkun af þessu. Mér var aldrei kalt áður fyrr. En mér er kalt því eins og er, þjáist ég af hálfgerðum næringarskorti og svo í þokkabót er ég að missa alla fóðrunina mína.“

Þyngdarsaga Valgeirs

Valgeir var ætíð þéttur sem barn að hans sögn. Þegar hann var sautján ára greindist hann með sjálfsofnæmissjúkdóm. Eftir það missti hann alla stjórn á þyngd sinni. „Ég fékk sjálfsofnæmi í miltað og þurfti að fara á mikið af steralyfjum. Ég blés út. Á hálfu ári fór ég úr því að vera 90 kíló í 140 kíló. Eftir það hef ég alltaf verið feitur,“ segir Valgeir og bætir við að hann hafi alltaf átt mjög sérstakt og óheilbrigt samband við mat.

„Alltaf þegar mér leið illa borðaði ég, ef mér leið vel borðaði ég, ef mér leiddist borðaði ég. Ég gat alltaf borðað. Ég er fíkill í allt sem er gott og matur veitir mér vellíðan.“

Hve þungur varstu þegar þú fórst í aðgerðina og hvað ertu þungur í dag?

„Ég var 117,8 kíló og er í dag 100,8 kíló. Á sex vikum hef ég misst sautján kíló. Ég mun halda áfram að missa kíló og svo hægist á því. Það er talað um að maður megi byrja hreyfa sig almennilega þremur mánuðum eftir aðgerð. En ég er mjög spenntur að fara í Brazilian Butt Lift.“

Nýtur hvers bita

Valgeir segir að hann hafi þurft að læra að borða upp á nýtt. „Það er ýmislegt sem ég þarf að hafa í huga núna þegar ég borða. Eins og að setja hnífapörin niður á milli bita og tyggja hvern bita almennilega þar til hann verður nánast að engu. Ég verð að einbeita mér þegar ég borða. Vegna hversu lítinn matarskammt ég get borðað í senn nýt ég hvers bita mikið betur. Ég veit að ég fæ aðeins fjóra, fimm bita í viðbót. Ekki eins og áður, tvo stútfulla diska,“ segir Valgeir.

„Ég er enn að læra hvað ég get og get ekki borðað og hversu mikið ég get borðað. Ég þarf að stilla klukku á símanum mínum því ég þarf að vera í um 25 mínútur að borða máltíðina, annars verður mér flökurt og líður illa. Ég þarf einnig að passa vel upp á að fá öll nauðsynleg vítamín, steinefni og næringarefni,“ segir Valgeir.

Valgeir hefur þurft að gefa ýmis matvæli upp á bátinn eftir aðgerðina. „Ég get ekki borðað brauðmeti, en mér líður eins og það sé steinn sem er að gera sér ferð um meltingarveginn þegar ég borða það. Ég get ekki borðað mjólkurvörur því ég fæ ég illt í magann. Ég byrja morgnana alltaf á því að fá mér vítamín, ég verð eiginlega saddur af öllum vítamínunum sem ég tek.“

Hvernig er hefðbundin máltíð hjá þér í dag?

„Í morgunmat fæ ég mér laktósafría AB mjólk frá Örnu, sem er um 150 grömm. Ég er um hálftíma að borða hana. Svo í hádegismat fæ ég mér til dæmis kjúkling, kúskús, smá grænmeti og sósu. Svona um eins til tveggja desilítra máltíð. Ég fæ mér oftast próteinstykki í millimál, eða hrökkkex með lárperu. Kvöldmatur er svipaður og hádegismatur, kjúklingur og sætar kartöflur til dæmis,“ segir Valgeir og bætir við að þótt hann borði sjaldan og litla skammta þá kaupir hann enn í matinn eins og áður. „Pabbi er mjög sáttur við þá þróun,“ segir Valgeir og hlær.

Eftirsjáin nánast horfin

Ertu enn þá með eftirsjá?

„Nei, hún er eiginlega horfin. Ég er mikill matarkarl. En númer eitt, tvö og þrjú er að ég þarf að vinna í hausnum á mér. Matur var þannig lagað ekki vandamálið heldur af hverju ég borðaði svona mikið, af hverju ég leitaði svona mikið í mat, af hverju borðaði ég miklu meira en manneskjan við hliðina á mér og af hverju borðaði ég þar til mér var orðið illt. Ég held að flestir sem fara í aðgerðina haldi að það sé nóg að leggjast undir hnífinn og gera ekkert meira. En það er ekki þannig. Það er nauðsynlegt að finna út af hverju matur hafi verið vandamál og laga vandamálið. Það er ekki nóg að hætta að borða, það þarf að vinna í sjálfum sér,“ segir Valgeir.

„Ég er matarfíkill og með smá lotugræðgi. Ég var að borða óhóflega mikið. Ég hafði tekið tímabil þar sem ég stóð mig afar vel og grenntist, en blés alltaf út aftur því ég hafði enga stjórn á þessu.“

Alvarleg tilvik

Nýlega hefur verið fjallað um konu sem lést vegna fylgikvilla eftir magaermiaðgerð og aðra konu sem er haldið sofandi á Landspítalanum. Hvernig líður þér að heyra um það?

„Sko, þetta ætti að hræða mig mjög mikið. En það eru meiri líkur á að ekkert gerist, en eitthvað massíft,“ segir Valgeir.

Heldurðu að þú værir hræddari ef þú hefðir farið í aðgerðina á Íslandi?

„Já. Því úti eru gerðar mikið ítarlegri rannsóknir á sjúklingum áður en þeir fara í aðgerðina. Það var til dæmis ein sem fékk ekki að fara í aðgerðina. Ég er ekkert á móti þessum sem gerir aðgerðirnar hér á Íslandi, en ég myndi ekki treysta honum nálægt mínum líkama. Ég vil frekar fara þar sem vinnubrögð eru vandaðri, ekkert illa meint.“

Engin kraftaverkalausn

Aðspurður hvort hann sé í sambandi við Íslendingana sem fóru í aðgerðina á sama tíma og hann svarar Valgeir játandi. „Já, við erum saman í Facebook-hóp. Það gengur almennt vel hjá öllum.“

Valgeir segist mæla með aðgerðinni. „Þetta virkar en þetta er engin kraftaverkalausn. Þetta er miklu meira en bara aðgerðin. Ég mæli með að fólk íhugi aðgerðina vandlega fyrirfram, ekki stökkva á þetta eins og ég.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“