fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Orkustöðvarnar þurfa að vera heiðarlegar

Kristinn H. Guðnason, Guðni Einarsson
Laugardaginn 27. október 2018 21:00

Ágústa og Gunni „Ég læt hann finna fyrir því á hverjum einustu tónleikum“

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hljómsveitin Sycamore Tree var stofnuð af fatahönnuðinum Gunna Hilmars og leikkonunni Ágústu Evu Erlendsdóttur árið 2016. Fyrsta platan Shelter vakti mikla athygli og nú eru þau að taka upp plötu númer tvö með heimsþekktum útsetjara. DV ræddi við Ágústu og Gunna meðal annars um tónlistina, ágreininginn um Bítlana og skrýtið tilboð frá flipp klúbbi eiginkvenna útrásarvíkinganna.

 

Átti að leika hund í mynd Hrafns

Ágústa segist hafa sungið síðan hún var barn og sex ára hafi hún komið fyrst fram en það var á helgileik.

„Pabbi minn sendi mig í prufur fyrir kvikmyndina Hin helgu vé eftir Hrafn Gunnlaugsson þegar ég var tíu ára. Ég komst í lokaúrtak þar en þá fékk pabbi að lesa handritið og dró mig snarlega úr því verkefni.“ Myndin fjallar um sjö ára dreng sem verður ástfanginn af tuttugu ára heimasætu. „Ég átti að leika hund og þetta var mjög skrýtið allt saman.“

Átján ára gömul fór Ágústa í alþjóðlega hæfileikakeppni í Bandaríkjunum og kynntist þá leiklist í fyrsta sinn.

„Ég gerði þetta í flippi. Það var kennaraverkfall og ódýrt að fljúga. Þarna voru stelpur í svona „pageant“ kjólum og mér fannst þetta rosalega fyndið. Þar keppti ég í sápuóperuleik og endaði í öðru sæti. Ég hef alltaf haft áhuga á rugli og að brjóta upp aðstæður eins og ég gerði með Silvíu Nótt. Ég hef sinnt bæði tónlistinni og leiklistinni alla tíð síðan, tekið þátt í söngleikjum og sungið með kórum. Leiklistin hefur verið meira áberandi síðustu tíu ár en nú er það að breytast.“

Gunni hóf tónlistarferilinn í bílskúrnum þrettán eða fjórtán ára eins og svo margir unglingsstrákar gerðu. Þetta var á tíunda áratugnum og sterk tónleikasena í borginni.

„Ég ætlaði að fara í músík, flutti til London og spilaði sem bassaleikari. Síðan tók lífið U-beygju og ég fór á kaf í hönnun og setti tónlistina á hilluna. Á síðustu árum hef ég fundið þörfina fyrir að byrja aftur að semja og spila,“ segir hann.

Textagerð
„Ég er að bíða eftir staðfestingu á því hvort ég sé snillingur eða aumingi.“

Tómatakast á sviði

Ágústa segir að sameiginlegur vinur þeirra, gítarleikarinn Ómar Guðjónsson, hafi leitt þau saman. Gunni segir:

„Við höfðum aldrei talað saman þegar við hittumst á fyrsta Sycamore Tree fundinum sumarið 2016 fyrir utan eitt vink á Klapparstígnum fyrir fimm árum sem Ágústa man ekkert eftir, en hún var þar að leggja bílnum sínum ólöglega.“ Ágústa áréttar að hún hafi ekki lagt í stæði fatlaðra.

„Hálfu ári áður en við hittumst á fundinum voru ég og Ómar byrjaðir að vinna að efninu. Okkur fannst kvenrödd hæfa efninu og ég gerði lista yfir fjórar söngkonur sem komu til greina. Ágústa var að sjálfsögðu efst og var sú fyrsta og eina sem var spurð,“ segir Gunni.

Hingað til hefur Gunni samið flesta textana en hann hefur hvatt Ágústu til að skrifa. Þegar hún byrjaði komu þeir tuttugu í einu.

„Hans textar eru oft um ástina en mínir miklu dekkri. Ég er að bíða eftir staðfestingu á því hvort ég sé snillingur eða aumingi,“ segir Ágústa og hlær. „Ég hef enga dómgreind á það sem ég geri, enga. Sumt er frábært en níutíu prósent fíflagangur. Einhver annar þarf að sigta þetta út og grípa.“

Gunni segir að hvert lag hljómsveitarinnar sé ein saga og einn heimur. Textarnir séu byggðir á reynslu þeirra beggja og annars fólks einnig. „Þegar þú ert með fólk sem vill hlusta er glatað að segja ekki eitthvað sem skiptir máli.“

Ágústa bendir Gunna á að hann hafi samið lag á síðustu plötu sem er einmitt um eitthvað sem skiptir engu máli. „Ég læt hann finna fyrir því á hverjum einustu tónleikum og segi fólki að nú ætlum við að spila leiðinlega lagið. Þá fær hann persónulegt tómatkast frá sínum eigin hljómsveitarmeðlimi,“ segir Ágústa og hlæja þau bæði. „Fólki finnst þetta samt fyndið,“ bætir hún við.

 

Heimsfrægur framleiðandi

Sycamore Tree gáfu út sína fyrstu plötu, Shelter, á síðasta ári og gekk hún vonum framar. Enduðu sex af átta lögunum inni á vinsældalistum. „Meira að segja leiðinlega lagið endaði á lista,“ segir Gunni. Um haustið áttu þau að spila á Iceland Airwaves hátíðinni en þá var Ágústa komin á steypirinn. Hún segir:

„Í bjartsýniskasti hélt Gunni í vonina um að við gætum spilað þann níunda nóvember en ég fæddi þann sjöunda.“

Hátíðin er mikill sýningargluggi fyrir íslenska tónlistarmenn og erlendir útsendarar að leita að tónlist fyrir kvikmyndir, auglýsingar og fleira. Það var á þessum tíma sem Gunni tók eftir að framleiðandinn Rick Nowels var búinn að skrifa við eitt af lögunum þeirra á Youtube: „Great band, great song.“ Nowels hefur meðal annars unnið með Lana Del Ray, Adele, Madonna, Dua Lipa, Fleetwood Mac og margir fleiri.

Gunni komst í samband við Nowels og flaug í kjölfarið út til Los Angeles til að hitta hann.

„Hann vildi heyra nýja efnið og við tókum það upp fyrir hann hérna heima. Honum leist það vel á þetta að hann ákvað að við myndum gera heila plötu. Það verkefni hefur verið í gangi síðan í febrúar.“

Þið ætlið væntanlega á alþjóðlegan markað með þetta?

Ágústa segir: „Við erum á kafi í öðrum verkefnum, og Rick líka, en við höfum nýtt hverja lausa stund til að halda plötunni gangandi og það hefur gengið vel. Um áramótin ætlum við að kynna þetta á alþjóðavettvangi.“

 

Tónlistin Verður að vera heiðarleg til að virka.

Vildi ekki skemmta útrásarvíkingakonum

Spurning um áhrifavalda bandsins varpar strax ljósi á mikinn ágreining milli Ágústu og Gunna, það er Bítlana. „Við erum ekki sömu megin þar,“ segir Ágústa. „Ef hann semur lag í anda Bítlanna þá breytist ég í skessu.“ Gunni viðurkennir að það komi stundum „smá bítl í hann“ og hann heldur mjög upp á John Lennon.

Er það að koma fram á tónleikum sambærilegt við að leika á sviði?

„Nei, tónlist getur ekki verið þannig. Þessar orkustöðvar sem maður notar til að flytja lögin þurfa að vera svo heiðarlegar til að virka. Tónlist snýst um það að hreyfa við fólki og á tónleikum þarf hún að ganga upp tilfinningalega,“ segir Ágústa.

Hafið þið verið beðin um að koma fram í undarlegum einkasamkvæmum?

„Ég er ennþá beðin um að koma fram sem Silvía Nótt,“ segir Ágústa og brosir. „Í eitt sinn átti að fljúga mér upp á Esjuna með þyrlu til að skemmta eiginkonum útrásarvíkinganna. Þær voru með einhvern flipp-klúbb og voru að flippa með peninga. Þegar þær voru búnar að ganga upp fjallið átti ég að vera Silvía Nótt og taka á móti þeim með kampavín.“

Var þetta gert?

„Ég sagði pent nei takk.“

 

Fatahönnuður og tímaflakkari

Tónlistin er ekki það eina sem Gunni og Ágústa bardúsa við þessa dagana. Gunni hefur starfað sem fatahönnuður víða um heim í tuttugu ár. Meðal annars hjá All Saints í London, Bestseller í Danmörku og Kormáki og Skildi hér á Íslandi.

Ágústa er með annan fótinn í Noregi og Litháen. Þar er hún að leika í HBO sjónvarpsþáttaröð sem nefnist Beforeigners. „Þetta er vísindaskáldskapur og satíra um fólk frá öðrum tímum. Ég leik eitt af þremur stærstu hlutverkunum, persónu frá víkingatímanum sem gengur ekki vel að passa inn í nútímann.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“