fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

„Fæ alltaf orkuna á miðnætti og af hverju ekki að nýta hana?“

Bára er þrefaldur fitnessmeistari eftir að hafa æft í fimm mánuði

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 24. nóvember 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bára Jónsdóttir kom, sá og sigraði þegar hún keppti á bikarmótinu í fitness þann 18. nóvember síðastliðinn. Þar gerði Bára sem lítið fyrir og vann þrjá titla á mótinu og er hún fyrst kvenna til að ná þeim árangri. Árangur Báru er einnig afar athyglisverður í ljósi þess að hún var að keppa á sínu fyrsta fitnessmóti eftir að hafa æft íþróttina í aðeins fimm mánuði.

„Ég er bara í sjokki, ég trúi þessu varla,“ segir Bára um árangurinn. Bára er 27 ára og vann byrjendaflokkinn, sinn hæðarflokk (yfir 168 sentimetrar) og síðan vann hún keppnina í heild, svokallaðan „over all“-titil.

Fitness hefur heillað Báru í mörg ár

„Það er hálft ár síðan ég byrjaði að æfa fitness, eða nei, fimm mánuðir,“ segir Bára, sem byrjaði strax að æfa hjá Konráði Val Gíslasyni (Konna), sem kallaður er konungur fitness hér á landi. Þrátt fyrir að vera nýbyrjuð í fitness er Bára með góðan grunn fyrir íþróttina, en hún æfir líka súlufitness í Pólarsport og er búin að gera í tvö ár, en hún tók sér mánaðarfrí fyrir bikarmótið. „Það er afskaplega mikill styrkur sem fer í súlufitnessið og var ég með góðan grunn fyrir bakið, en það er samt fáránlegur munur á myndum bara frá því í júní.“

Báru langaði alltaf að prófa fitness og segir það hafa heillað hana frá því hún var yngri heima á Ísafirði að skoða myndir af skvísunum í Reykjavík. „Ég myndi segja að Aðalheiður Ýr, sem þá var að æfa hjá Konna og varð bikarmeistari árið 2012, hafi vakið mestan áhuga hjá mér,“ segir Bára, „ég fékk tilfinningu um að þetta væri eitthvað sem mig langaði að gera einhvern tímann. Ég var svona um tvítugt þegar ég var að byrja að skoða myndir.“

Bára reyndi fjarþjálfun, en ekkert af viti. Síðan fór hún að æfa súlufitness og ákvað að lokum að skella sér í fitness.
En af hverju valdir þú Konna sem þjálfara?
„Af því hann að hefur þjálfað allar þessar fitnessskvísur sem ég hef litið upp til; Aðalheiði, Katrínu Eddu, Magneu Gunnars, Kristbjörgu og Írisi Örnu, og þær hafa alltaf náð ótrúlega langt og verið flottar á sviði. Þannig að það kom enginn annar til greina og ég hefði sennilega hætt við þetta allt saman ef hann hefði ekki verið þjálfarinn minn.“

Bára eins og hún lítur út dagsdaglega.
Vön að sitja fyrir Bára eins og hún lítur út dagsdaglega.

Ekkert mál að stíga fáklædd á svið

Var ekkert mál að fara upp á svið?
„Nei, alls ekki, ég var bara svo spennt. Mér fannst þetta ótrúlega gaman og það spilar inn í að ég er búin að sitja fyrir og taka þátt í tískusýningum. Pole-sportið á líka þátt í þessu, ég keppti í því í fyrra og Halldóra eigandi Pole Sport tók mig í einkatíma í að koma fram. Ég tel það hafa hjálpað mér mikið. Svo fór ég á pósunámskeið hjá Konna og Hrönn, og hún hefur hjálpað mér ótrúlega mikið í öllu,“ segir Bára. Umrædd Hrönn, sem var henni gríðarleg hjálparhella, er Hrönn Sigurðardóttir, margfaldur meistari í fitness.

Bára var í öðru sæti í fyrra þegar hún keppti í súlufitness og var þá búin að æfa það sport í sex mánuði, þannig að segja má að hún sé vön að gefa sig alla í sportið sem hún stundar og ná góðum árangri á stuttum tíma. Hún ætlar að sjálfsögðu að halda áfram að keppa í fitness og er í hópi keppenda sem Konni fer með á Arnold Classic um mánaðamótin febrúar, mars á næsta ári.

Bára á sviðinu í Háskólabíói.
Í fyrsta sinn á fitnessmóti Bára á sviðinu í Háskólabíói.

Kunni ekki að elda áður en hún byrjaði í fitness

Bára starfar sem flugfreyja í fullu starfi og aðspurð hvort það hafi ekki tekið á að halda æfingum og mataræði í góðu jafnvægi þegar hún er á vöktum fljúgandi milli landa og tímabelta segir hún að svo hafi alls ekki verið.

„Ég hélt að þetta yrði ótrúlega erfitt en þetta er bara búið að ganga vonum framar, þetta er ekkert mál. Það er alls staðar hægt að finna rækt úti og ég fór að finna flottu ræktarstöðvarnar í stoppum og gera heimsókn þangað að einhverju sem ég hlakkaði til að gera. Svo er alltaf hægt að finna betri kostinn í mat, ég gat alltaf farið með út að borða. Ég gat til dæmis alltaf fengið mér steik og sleppt þannig brauði og sósu, sem ég mátti ekki fá. Og á Starbucks gat ég fengið mér egg. Ég var bara með hugann opinn fyrir öðrum möguleikum,“ segir Bára. „Í Los Angeles fór ég í Gold’s Gym og var að vonast eftir að hitta Arnold Schwarzenegger, en það gerðist ekki, en kannski næst,“ segir Bára og hlær.

Bára hampar bikar sem heildarsigurvegari á sínu fyrsta móti.
Heildarsigurvegari Bára hampar bikar sem heildarsigurvegari á sínu fyrsta móti.

Vakti hlátur með næturmyndum í ræktinni

Hvernig er dæmigerður dagur hjá þér?
„Fyrir utan flugin þá eru allir dagarnir mínir mjög svipaðir. Ég vakna og fer út með hundinn, það er svona mín morgunbrennsla. Ég fór aldrei á morgunæfingar í World Class, tók aldrei brennslu þar af því að mér fannst ég vera að svíkja hundinn og ég vildi bara eiga þennan tíma með honum. Seinni partinn tók ég lyftingaæfingu,“ segir Bára. „Ég hef oft farið og tekið hana á næturnar í World Class í Kringlunni, ég er svo mikill nátthrafn og mér var strítt á því að ég var að taka myndir þar á æfingum á nóttunni. Ég fæ alltaf orkuna á miðnætti og af hverju ekki að nýta hana þá? Það greinilega skilar sér að fara þegar mér hentar, ekki fara eftir einhverju öðru plani.

Matarprógrammið frá Konna er sérstaklega sniðið til að halda blóðsykrinum réttum og að maður fái ekki löngun í eitthvað, en hvenær ég æfði fór einfaldlega eftir því hvenær ég myndi fá sem mest úr æfingunni.“
Bára borðar þrisvar á dag og þrisvar eru millimál. Í niðurskurðinum fyrir mót er ekki í boði að borða neitt með sætuefni í, þannig að Bára tók það allt út. „Ég var bara með egg, fisk og grænmeti og möndlur voru millimálin mín.

Ég nenni ekki að elda mikið í einu og svo verður það orðið frekar gamalt í restina,“ segir Bára þegar hún er spurð hvort hún undirbúi matinn fyrir viku í einu. „Ég var að undirbúa mat fyrir tvo daga í senn. Ég kunni ekkert að elda áður en ég byrjaði að æfa og það eina sem ég át áður en ég byrjaði hjá Konna voru skyndinúðlur og baunir í dós, ég hafði ekki einu sinni notað ofninn heima hjá mér,“ segir Bára og hlær.

„Ég fór oft í Hagkaup og keypti egg úr salatbarnum, ég nennti ekki að sjóða egg heima og keypti eggjasuðuvél undir lokin. Hún er alveg snilld, skurnin lekur af eggjunum.“

Undirbúningur mikill fyrir keppni

Það þarf þó að gera meira en mæta á æfingar og borða rétt ef maður ætlar að koma fram á sviði. Bára fór eins og aðrir keppendur í brúnkumeðferð: „Þú ræður hvert þú ferð eða hvort þú gerir það heima, en maður þarf að vera mjög dökkur til að vöðvarnir sjáist betur í ljósunum sem beint er að manni á sviðinu. Þetta er gert til að allir vöðvar og línur sjáist. Þegar ég horfði á höndina á mér var ég alveg súkkulaðidökk, en á myndum teknum af mér á sviðinu er ég bara gyllt á lit.“

Konur sem keppa í fitness stíga á svið í bikiníi og Hrönn sérsaumaði eitt slíkt handa Báru. „Þetta er það fallegasta sem ég hef séð. Hún tók það á annað stig, þetta var blanda af fitness- og módelfitnessbikiníi, lögunin var meira eins og brjóstahaldari á ská, ekki tíglar. Buxurnar voru hærri upp og þetta var svona næntíslegt, mjótt mitti. Þetta er að koma svo mikið úti og Hrönn er með puttann á púlsinum hvað er heitast úti. Hún er með pallíettur í grunninn, ekki venjulegt efni og svo steina ofan á það. Þess vegna var bikiníið extra glitrandi. Hún er alveg með þetta og á mikið hrós skilið fyrir alla hjálpina. Ég kom heim til hennar seint á kvöldin og við fórum yfir pósur og slíkt, hún er algjör snillingur, ég er svo þakklát fyrir hvað hún er búin að vera dugleg að hjálpa mér.

Mér finnst gaman að fara niður í Laugar, ég setti mér markmið að ná að gera upphífingar. Það var svo gaman þegar það loks tókst að fara í grindurnar og gera upphífingar eftir æfingu.
Ég er spennt fyrir framhaldinu og að sjá hvert leiðin liggur,“ segir Bára, sem er byrjuð að æfa fyrir Arnold Classic mótið. Hvað tekur við að því loknu mun tíminn leiða í ljós.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“
Fókus
Í gær

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi
Fókus
Í gær

Kryddpíurnar með endurkomu í rosalegu fimmtugsafmæli Victoriu Beckham

Kryddpíurnar með endurkomu í rosalegu fimmtugsafmæli Victoriu Beckham
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir móður sína stórhættulega í umferðinni – „Hvernig get ég fengið mömmu til að hætta að keyra?“

Segir móður sína stórhættulega í umferðinni – „Hvernig get ég fengið mömmu til að hætta að keyra?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Travis Barker gagnrýndur fyrir að birta mynd af Kourtney á klósettinu

Travis Barker gagnrýndur fyrir að birta mynd af Kourtney á klósettinu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan
Fókus
Fyrir 4 dögum

Styttist í barnamenningarhátíð í Reykjavík – Vegleg dagskrá og börnin í aðalhlutverki

Styttist í barnamenningarhátíð í Reykjavík – Vegleg dagskrá og börnin í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Í dag er þetta eitthvað sem gerir mig sterkari“

„Í dag er þetta eitthvað sem gerir mig sterkari“