fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Opið Hús hjá Hróknum: Hátíð á hamfarasvæðum á Grænlandi

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 29. september 2017 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hrókurinn verður með opið hús í Pakkhúsinu, Geirsgötu 11 við Reykjavíkurhöfn, laugardaginn 30. september milli kl. 14 og 16. Þar munu meðal annars sirkuslistamennirnir Axel Diego og Bjarni Árnason leika listir sínar, en þeir verða í föruneyti Hróksins sem heldur á hamfarasvæðin á Grænlandi í næstu viku með hátíð í farangrinum.

Uummannaq er 1300 manna bær á samnefndri eyju, 600 km norðan við heimskautsbaug. Þar eru líka um 170 flóttamenn, þar af 70 börn, frá þorpunum tveimur í firðinum sem voru rýmd eftir flóðbylgjuna ægilegu sem kostaði fjögur mannslíf í Nuugaatsiaq og sópaði ellefu húsum til hafs. Vegna hættu á frekari hamförum fá íbúar þorpanna tveggja aldrei að snúa heim, og er nú unnið að því að finna þeim framtíðarheimili.

Á leiðinni til Uummannaq verður komið við í höfuðborginni Nuuk og slegið upp skemmtun í verslunarmiðstöð borgarinnar, athvarf fyrir heimilislausa heimsótt og fleiri fastir viðkomustaðir Hróksins í Nuuk.

Hrafn Jökulsson forseti Hróksins og skipuleggjandi landssöfnunarinnar Vinátta í verki, sem efnt var til eftir hamfarirnar, segir mikla tilhlökkun í hópnum. ,,Það er stórkostlegt að fá snillingana úr Sirkus Íslands með, enda gleðigjafar af guðs náð. Við verðum líka með kennslu í skák, myndlist og dansi, og vonumst til að virkja bæjarbúa á öllum aldri í eina allsherjar hátíð gleði og vináttu.“

Axel og Bjarni frá Sirkus Íslands.
Sirkus Íslands Axel og Bjarni frá Sirkus Íslands.

Landssöfnunin Vinátta í verki, sem var samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar, Hróksins og Kalak, vinafélags Íslands og Grænlands, skilaði yfir 40 milljónum króna. Hrafn segir að mikilvægt sé að peningarnir nýtist þeim, sem verst urðu úti, með sérstakri áherslu á börnin. Að beiðni Rauða krossins á Grænlandi verður 500.000 dönskum krónum varið til húsgagnakaupa fyrir þá sem misstu allt sitt og þá var að sjálfsögðu orðið við þeirri beiðni grænlenska Rauða krossins um að kosta ferð þeirra fjölskyldna sem verst urðu úti til nánustu ættingja skömmu eftir hamfarirnar.

Hrafn segist hlakka til að hitta fólkið í Uummannaq og kynnast ástandinu af eigin raun. Söfnunarfé Íslendinga eigi að sjálfsögðu að verja í samráði við heimamenn og flóttafólkið í Uummannaq og verður það meðal annars markmið ferðarinnar.

Ekki króna fór í kostnað við landssöfnunina Vinátta í verki. Hátíðin sem í hönd fer er heldur ekki kostuð af söfnunarfé, heldur með samstilltu átaki fyrirtækja á Íslandi og Grænlandi.

Hrafn segir að um sé að ræða mikilvægustu ferð Hróksins síðan 2003, þegar landnám félagsins á Grænlandi hófst. ,,Starf Hróksins á Grænlandi er löngu hætt að snúast bara um skák. Það snýst um að auðga lífið og auka vináttu og samskipti grannþjóðanna á öllum sviðum. Kynni okkar af Grænlandi hafa gefið okkur óendanlega mikið og þeir eru bestu nágrannar í heimi. Við viljum endurgjalda það og fara með gleði og kærleika á þann stað á Grænlandi þar sem nú er helst þörf.“

Nánari upplýsingar gefur Hrafn Jökulsson í síma: 763-1797.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 2 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“