fbpx
Mánudagur 15.apríl 2024
Fókus

„Fornbílar eru eins og skúlptúrar“

Steini í Svissinum er áhugamaður um fornbíla

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 16. júlí 2017 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðalsteinn Ásgeirsson, eða Steini í Svissinum eins og hann er oftast nefndur, er einn helsti áhugamaður um fornbíla á landinu. Hann gerir upp fornbíla, er meðlimur í bæði Cadillac og Cruiserklúbbnum, auk þess að vera einn stofnenda fyrrnefnda klúbbsins og hefur keyrt Route 66 á Cadillac.

„Fyrsti fornbíllinn sem ég gerði upp var Cadillac Eldorado árgerð 1968 og ég á hann ennþá,“ segir Steini. Sá bíll er einn af fjórum sem Steini á og sá fimmti er að bætast í safnið, en Steini er núna að gera upp AMC Pacer árgerð 1978. Bílarnir eru þó ekki geymdir á safni, heldur er Steini með þá hér og þar og keyrir þá alla reglulega. „Þeir eru allir eins og nýir.“

Steini segir marga fornbíla til á landinu og út um allt land, sumir á söfnum en aðrir sem eru bara geymdir í bílskúrum eða geymslum, sjaldan keyrðir og í raun aðeins eigandanum til ánægju. „Eigandinn í raun bara labbar út í bílskúr og brosir.“

Benz árgerð 1936 var fyrsti fjöldaframleiddi bensinn fyrir hinn almenna borgara.
Borgaralegur bíll Benz árgerð 1936 var fyrsti fjöldaframleiddi bensinn fyrir hinn almenna borgara.

Félagi í tveimur fornklúbbum

Steini er félagi í bæði Cruiser- og Cadillacklúbbnum og einn stofnenda þess síðarnefnda, hann er þó ekki lengur í stjórn og segist ekki hafa tíma til þess.

„Cadillacklúbburinn var stofnaður í tilefni af því að við keyrðum Route 66 á Cadillac og þá var sniðugt að vera í ameríska Cadillac klúbbnum og fá þjónustu frá klúbbnum í þessari ferð,“ segir Steini. Þeir voru fimm félagarnir sem keyrðu, rithöfundarnir Einar Kárason og Ólafur Gunnarsson, Jóhann Páll Valdimarsson, fyrrum eigandi Forlagsins, og Sveinn Magnús Sveinsson, kvikmyndagerðarmaður. Ferðalagið var gefið út bæði í bók og kvikmynd. Bókin Úti að aka: á reykspúandi kadilakk yfir Ameríku kom út árið 2006. Samnefnd heimildarmynd var svo sýnd árið 2016.

„Það er fólk á öllum aldri og af báðum kynjum í klúbbnum og krakkar hafa mikinn áhuga,“ segir Steini. „Bílasportið almennt er mest stundaða hobbý í heimi. Það er líka geysimikill iðnaður í kringum þetta. Heilu verksmiðjurnar erlendis sem eru að endursmíða bílana og farið að framleiða mikið af varahlutum í þá. Í dag getur þú endurbyggt bíl með nýjum varahlutum.“

Þegar veður leyfir þá keyrir Cadillac klúbburinn um á þriðjudögum og Cruiser klúbburinn á fimmtudögum. Á 17. Júní og Menningarnótt keyrir Cadillac klúbburinn niður Laugaveg og bílunum er svo stillt upp við Hörpu, fyrir áhugasama til að skoða. „Síðan eru hinar ýmsu uppákomur í báðum klúbbum, svona eftir tilefni og áhuga.“

Gullfallegum Chevrolet stillt upp fyrir áhugasama.
Við Hörpu Gullfallegum Chevrolet stillt upp fyrir áhugasama.

En af hverju að gera upp fornbíla og hvenær telst bíll vera fornbíll?

„Fornbílar eru svo falleg stykki, ég sé þá bara sem skúlptúra,“ segir Steini, en bíll þarf að vera 25 ára til að teljast fornbíll. Steini sjálfur er orðinn 71 árs og hefur gert upp fimm fornbíla. Hann segist gera fornbíla upp af því að það sé svo gaman, hann ætlar hins vegar ekki að gera upp þann sjötta. „Í þessu hobbýi þýðir ekkert að horfa í peninga, frekar en í mörgum öðrum hobbýum, það er ekkert að hafa upp úr þessu peningalega.“

Hinir og þessir fallegu fornbílar sem eru í eigu ýmissa aðila víðs vegar um landið.

Cadillac Eldorado
Svartur og stílhreinn Cadillac Eldorado
Chevrolet Impala árgerð 1962.
Rauður og rennilegur Chevrolet Impala árgerð 1962.
Ford Mustang, sá vinsælasti, og Ford Edsel, sem mikið var lagt í, en floppaði í sölu.
Tveir Ford Ford Mustang, sá vinsælasti, og Ford Edsel, sem mikið var lagt í, en floppaði í sölu.
Citroen árgerð 1973 þótti framtíðarbíll að öllu leyti þegar hann kom á markað á sínum tíma. Þegar Richard Nixon forseti Bandaríkjanna og Georges Pompidou forseti Frakklands komu í hemsókn til Íslands keyrðu þeir um á svona bíl.
Framtíðarbílinn Citroen árgerð 1973 þótti framtíðarbíll að öllu leyti þegar hann kom á markað á sínum tíma. Þegar Richard Nixon forseti Bandaríkjanna og Georges Pompidou forseti Frakklands komu í hemsókn til Íslands keyrðu þeir um á svona bíl.
Cadillac árgerð 1962. Þeir verða varla stærri, bíllinn er 12 fm, 6x2 metrar, sem er  eins og meðal barnaherbergi.
Sá stærsti Cadillac árgerð 1962. Þeir verða varla stærri, bíllinn er 12 fm, 6×2 metrar, sem er eins og meðal barnaherbergi.
Chevrolet árgerð 1959 er gullfallegur og gaman að rúnta dálítið um á honum.
Koma á rúntinn? Chevrolet árgerð 1959 er gullfallegur og gaman að rúnta dálítið um á honum.
Þessi Chevrolet er með flottustu pallbílum landsins.
Pallbíll Þessi Chevrolet er með flottustu pallbílum landsins.
Volvo Amazon voru þeir flottustu á árunum 1960-1970.
Sjöundi áratugurinn Volvo Amazon voru þeir flottustu á árunum 1960-1970.
Packard með fugl sem húddskraut.
Fugl á flugi Packard með fugl sem húddskraut.
Cadillac klúbburinn tilbúinn að ræsa.
Hópakstur. Cadillac klúbburinn tilbúinn að ræsa.
Þessi Ford er tvískiptur í lit.
Tvílitur Þessi Ford er tvískiptur í lit.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Andri Már varð fyrir alvarlegri líkamsárás og frelsissviptingu – „Í dag er ég frek­ar þakk­lát­ur fyr­ir þetta því þarna fékk ég nóg“

Andri Már varð fyrir alvarlegri líkamsárás og frelsissviptingu – „Í dag er ég frek­ar þakk­lát­ur fyr­ir þetta því þarna fékk ég nóg“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hera Björk fallin niður í 27. sætið – Litlu má muna að lagið komist í aðalkeppnina

Hera Björk fallin niður í 27. sætið – Litlu má muna að lagið komist í aðalkeppnina