fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Afmælisveisla haldin með pomp og prakt

Perform.is bauð í 10 ára afmæli

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 16. júlí 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðastliðna helgi hélt Perform.is upp á 10 ára afmæli sitt, en verslunin byrjaði í einu herbergi heima hjá foreldrum eins eigandans, Halldórs Arinbjarnar. Síðan þá hefur búðin færst í Holtasmára, þar sem starfsfólk og eigendur gera sitt besta til að aðstoða viðskiptavini sína við val á því sem þeir telja bestu fæðubótarefnin sem eru í boði í dag.

Fitnessskvísurnar Hrönn Sigurðardóttir og Hafdís Björg Kristjánsdóttir, ásamt Helgu Snædísi.
Fitnessdrottningar Fitnessskvísurnar Hrönn Sigurðardóttir og Hafdís Björg Kristjánsdóttir, ásamt Helgu Snædísi.

Mynd: Mummi Lú

Félagarnir Hafsteinn Máni Guðmundsson og Hjálmar Gauti Jónsson.
Tveir í formi Félagarnir Hafsteinn Máni Guðmundsson og Hjálmar Gauti Jónsson.

Mynd: Mummi Lú

„Ég og konan mín, Sunna Hlín Gunnlaugsdóttir, vorum á kafi í líkamsrækt, fitness og heilbrigðum lífsstíl. Þá notuðum við fæðubótarefni til að ná enn betri árangri,“ segir Halldór. „Í mars 2007 fórum við saman á risa íþrótta og líkamsræktar viðburð í Columbus, Ohio sem heitir Arnold Classic og er einn stærsti íþróttaviðburður í heimi. Þar fórum við á risa vörusýningu og áttuðum okkur á hvað flóran heima var óspennandi.“

Halldóri og Sunnu fannst bestu merkin frá Bandaríkjunum, Optimum Nutrition og BSN, vanta hér heima og að fólk með metnað sem vildi ná árangri ætti skilið að fá bestu vörurnar sem í boði væru. Þau fóru því að hugsa hvernig þau gætu kynnt þessi vörumerki á Íslandi, enda fannst þeim ekki annað hægt en að finna leið til að vörurnar væru í boði hér heima

Í júlí 2007 lagði Halldór síðan allan sinn sparnað í fyrstu sendinguna frá Bandaríkjunum og bjó til litla búð í herbergi sínu heima hjá foreldrum sínum. „Þar afgreiddi ég fyrst um sinn allar helgar milli þess sem ég var í námi á Bifröst. Ári seinna opnuðum við síðan verslun í Holtasmára og höfum verið þar alla tíð síðan.“

Maja, Hafdís og Hrönn skemmtu sér konunglega.
Brugðið á leik Maja, Hafdís og Hrönn skemmtu sér konunglega.

Mynd: Mummi Lú

Hoppukastali var í boði fyrir börnin.
Sjáðu mig Hoppukastali var í boði fyrir börnin.

Mynd: Mummi Lú

Góðar viðtökur og vöruúrval breikkað

Það hefur gengið ótrúlega vel hjá okkur í þessi 10 ár og höfum við vaxið ár frá ári,“ segir Halldór. „Fyrstu árin vorum ég og Sunna að afgreiða sjálf, en árið 2009 byrjuðum við að útvíkka starfsemina og fórum að selja í heildsölu til Hagkaupa og annara smásöluaðila. Núna er það orðinn mjög stór hluti af rekstrinum og við erum með um 150 endursöluaðila og erum búin að breikka vöruúrvalið í heildsölu og erum núna dreifingaraðilar fyrir vörumerki eins og Sparkling Ice, Coldpress, Mr Organic, auk þess að dreifa Amino Energy og öðrum ON vörum. Við einbeitum okkur að koma með vörur á markað sem eru hollar og góðar og geta verið hluti af hollu en bragðgóðu mataræði.“

Hvað hefur breyst á 10 árum?

Þegar við byrjuðum í þessu var fitness, vaxtarrækt og kraftasportin algjörar jaðaríþróttir og voru svolítið undir yfirborðinu. Í dag eru þessar íþróttir orðnar mjög almennar og búið að bætast við fleiri flottar íþróttir, einsog til dæmis Crossfit þar sem við Íslendingar erum að gera góða hluti,“ segir Halldór. „Neyslumynstrið er búið að breytast gríðarlega þar sem fæðubótarefni eru orðinn hluti af daglegu mataræði mjög margra og fólk er að versla oftar en minna í einu. Þetta er orðið hluti af matarkörfunni hjá fólki og það er mikil sala sem fer í gegnum smásöluaðila eins og til dæmis Hagkaup og Krónuna.“

Fitnessþjálfarinn Konráð Valur Gíslason, ásamt eiginkonunni Sif Sveinsdóttur og syninum, Sveini Míó.
Sá besti Fitnessþjálfarinn Konráð Valur Gíslason, ásamt eiginkonunni Sif Sveinsdóttur og syninum, Sveini Míó.

Mynd: Mummi Lú

10 ára afmæli haldið með pomp og prakt

„Afmælið gekk bara rosalega vel,“ segir Hafsteinn Vilbergsson, markaðsstjóri Perform.is, „nema sólin mætti loksins þegar við vorum að pakka niður.“ Gestir létu það ekki á sig fá, þótt væri skýjað og smá rigning og voru allir ánægðir með það sem boðið var upp á.

„Við buðum upp á grillaða hamborgara og ís frá Valdísi,“ segir Hafsteinn. Afslættir voru í búðinni og ráðgjöf í boði frá fitnessþjálfurum og keppendum. Einnig var hoppukastali og risabox á staðnum fyrir börnin. „Síðan vorum við með dekkjaveltukeppni fyrir bæði kyn, þar sem í verðlaun var úttekt í versluninni fyrir besta tímann og það voru þau Jóhanna og Hafsteinn Mánu sem unnu þau.“

Að sögn Hafsteins er Perform.is alltaf til í að brydda upp á nýjunum og viðburðum og þau þegar byrjuð að hugsa um hver næsti viðburður eigi að vera. „Við erum alltaf til í að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt, en fyrst og fremst viljum við sinna viðskiptavinum okkar vel og gera betur fyrir þá.“

Styrkir fjölda íþróttamanna

Perform.is, sem fékk viðurkenningu Credit Info árið 2016 sem eitt af framúrskarandi fyrirtækjum landsins, er meira en bara verslun, því þau Halldór og Sunna, auk Þormóðs Jónssonar, sem síðar varð meðeigandi Perform.is, styrkja fjölda frábærra íþróttamanna og þjálfara. „Í teyminu okkar góða má meðal annars nefna: OfurGísla, sem er massaðasti lögfræðingur landsins, Konna, þjálfara í World Class, snillingana í Betri Árangri þau Ale Sif, Katrínu Evu og Magga Bess, Teit Ara fitnessmeistara, Hrönn og Hafdísi fitnessdrottningar og Þröst Óla Crossfit,“ segir Halldór.

Gísli Örn Reynisson Schramm eða OfurGísli er líklega massaðasti lögfræðingur landsins, Hrönn og Hafsteinn Máni.
Massaðasti lögfræðingurinn Gísli Örn Reynisson Schramm eða OfurGísli er líklega massaðasti lögfræðingur landsins, Hrönn og Hafsteinn Máni.

Mynd: Mummi Lú

Fitnessþjálfarinn Konráð Valur Gíslason, ásamt eiginkonunni Sif Sveinsdóttur og syninum, Sveini Míó.
Sá besti Fitnessþjálfarinn Konráð Valur Gíslason, ásamt eiginkonunni Sif Sveinsdóttur og syninum, Sveini Míó.

Mynd: Mummi Lú

Parið Gunnar Sigurðsson og Hafdís Björg Kristjánsdóttir eru bæði í fitness og í fantaformi.
Fitnesspar Parið Gunnar Sigurðsson og Hafdís Björg Kristjánsdóttir eru bæði í fitness og í fantaformi.

Mynd: Mummi Lú

Hafsteinn Máni vann 1. sæti.
Vinningshafinn Hafsteinn Máni vann 1. sæti.

Mynd: Mummi Lú

Teitur Arason fitnessmeistari reynir fyrir sér.
Fitnessmeistari Teitur Arason fitnessmeistari reynir fyrir sér.

Mynd: Mummi Lú

Margir tóku vel á því í dekkjaveltunni.
Tekið á því Margir tóku vel á því í dekkjaveltunni.

Mynd: Mummi Lú

Jóhanna rúllaði upp 1. sætinu.
Sú fljótasta Jóhanna rúllaði upp 1. sætinu.

Mynd: Mummi Lú

Hafsteinn reynir fyrir sér í dekkjaveltunni.
Markaðsstjóri veltir dekki Hafsteinn reynir fyrir sér í dekkjaveltunni.

Mynd: Mummi Lú

Viktor starfsmaður Perform.is býður eftir að mega byrja.
Beðið eftir ræsingu Viktor starfsmaður Perform.is býður eftir að mega byrja.

Mynd: Mummi Lú

Það er vert að fylgjast með þessum unga manni í framtíðinni.
Ungur og öflugur Það er vert að fylgjast með þessum unga manni í framtíðinni.

Mynd: Mummi Lú

Keppt var um hver væri fljótastur að velta dekkinu.
Velt á tíma Keppt var um hver væri fljótastur að velta dekkinu.

Mynd: Mummi Lú

Það voru ekki allir háir í loftinu, Helga Snædís reyndi fyrir sér í dekkjunum.
Ung og kná Það voru ekki allir háir í loftinu, Helga Snædís reyndi fyrir sér í dekkjunum.

Mynd: Mummi Lú

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Í gær

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir