Líkt og síðustu ár gefur DV út veglegt tekjublað með upplýsingum um tekjur ríflega 2400 Íslendinga sem eru byggðar á greiddu útsvari viðkomandi samkvæmt álagningarskrám Ríkisskattstjóra.
Albert Jónsson sendiherra
954.964 kr. á mánuði
Albert Jónsson lauk BA-prófi í sagnfræði og stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og M.Sc.-prófi í alþjóðastjórnmálum frá London School of Economics. Albert var um árabil aðjunkt í alþjóðastjórnmálum við Háskóla Íslands og einn helsti ráðgjafi Davíðs Oddssonar í utanríkismálum.
Hann var sendiherra Íslands fyrir íslenska utanríkisráðuneytið í Washington DC 2006–2009, aðalsræðismaður Íslands í Færeyjum 2009–2011 og sendiherra Íslands í Moskvu 2011–2016. Í dag er Albert titlaður sendiherra í deild utanríkisráðuneytisins á Íslandi sem fer með alþjóða- og öryggismál.