Margrét Ósk (24) er upprennandi listamaður:
Listakonan Margrét Ósk Hildur Hallgrímsdóttir, eða Magga eins og hún er oftast kölluð, er ung og upprennandi listakona. Hún er sjálfmenntuð í myndlistinni og hefur haft nóg að gera í fjölbreyttum verkefnum. Hún leggur stund á nám í grafískri hönnun og nýjasta verkefnið er leyndarmál, sem verður afhjúpað í sumar.
„Mamma segir að ég hafi byrjað að teikna um leið og ég gat haldið á blýanti,“ segir Magga sem segir innblásturinn koma alls staðar að. Hún teiknar mest með penna eða blýanti, en málar einnig akrýlmyndir og veggmyndir. „Flestar hugmyndirnar fæ ég á kvöldin og nóttunni.“
Nýlega var Magga með myndirnar sínar á sýningunni Handverk og hönnun sem haldin var í Ráðhúsi Reykjavíkur. „Helgin gekk mjög vel, betur en ég bjóst við,“ segir Magga hógvær.
Magga hefur málað myndir á veggi hótela og veitingastaða bæði í Reykjavík og á Siglufirði. „Fyrir tveimur og hálfu ári síðan fékk Helgi Tómas Sigurðsson, vinur minn og eigandi Frederiksen Ale House í Austurstræti, mig til að hanna og mála „lógó“ staðarins auk Íslandskorts og stórrar myndar sem eru á veggjum staðarins,“ segir Magga. Verkið vakti athygli og fleiri boð um að mála komu koll af kolli. Magga málaði Íslandskort á veggi veitingastaðarins Scandinavian sem er á Laugavegi, íslensku landvættina í eigin útfærslu í „renaissance“-stíl, landakort og íslenskt landslag á Residence hótelinu á Siglufirði og síðast miðbæjarkort í Kvosin hótel í Kirkjustræti.
Magga vinnur núna að því að klára lokaverkefni fyrsta ársins í Listaháskólanum, en námið í grafískri hönnun er þrjú ár. „Einnig er ég að klára teikningar fyrir annað verkefni sem verður afhjúpað í sumar, auk þess sem ég verð að vinna í Hrím hönnunarhús,“ segir Magga, sem á framtíðina fyrir sér í listinni.