fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Blindi snillingurinn Paulus Napatoq sigursæll á skákhátíðinni á Grænlandi

Íbúar þorpsins eru tæplega 500 – segja má að hvert barn kunni skák

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 16. apríl 2017 17:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Blindi pilturinn Paulus Napatoq hefur farið á kostum á skákhátíð Hróksins og KALAK í Ittoqqortoormiit, afskekktasta þorpi Grænlands, sem hófst á miðvikudag og lýkur á morgun með ,,Degi vináttu Íslands og Grænlands“. Á laugardag varð Paulus efstur 40 keppenda á Norlandair-meistaramóti bæjarins, sigraði í öllum skákum sínum og tryggði sér meistaratitilinn 2017.

Ittoqqortoormiit er við Scoresby-sund á 70. breiddargráðu, tæplega þúsund kílómetra frá næsta byggða bóli, og eru íbúar á fimmta hundrað. Þetta er ellefta árið í röð sem Hróksliðar standa fyrir hátíð í Ittoqqortoormiit, og má segja að hvert einasta barn í bænum kunni að tefla.

Hátíðin hófst á miðvikudag með heimsóknum Hróksliða í leikskólann og elliheimilið í bænum með gjafir frá prjónahópum Gerðubergs og Rauða krossins í Reykjavík. Á fimmtudag tefldi Róbert Lagerman fjöltefli við liðlega 40 keppendur, og náðu þrír jafntefli gegn meistaranum. Á föstudaginn var svo komið að Bónus-mótinu, þar sem allir keppendurnir fengu páskaegg. Þar sigraði Paulus Napatoq eftir æsispennandi úrslitaskák, og hefur því unnið sigur á báðum stórmótum hátíðarinnar.

Paulus var 15 ára þegar hann lærði að tefla í fyrstu heimsókn Hróksliða til Ittoqqortoormiit ári 2007 og náði á örskömmum tíma undraverðum árangri. Hann hefur tvisvar komið til Íslands að tefla, m.a. á Skákhátíð í Árneshreppi.

Leiðangursmenn Hróksins eru Róbert Lagerman, Máni Hrafnsson og Joey Chan. Fjölmargir leggja Hróknum og KALAK lið við framkvæmd hátíðarinnar, m.a. Norlandair, Flugfélag Íslands og Air Greenland, sveitarfélagið Sermersooq, Bónus, Úrsus, Mannvit, Ísspor, Penninn, Brim, Steinegg, Grænn markaður og Bílaleiga Akureyrar.

Páskahátíðin í Ittoqqortoormiit er 2. verkefni Hróksins á Grænlandi 2017. Í febrúar hélt Hrókurinn Polar Pelagic-hátíðina í Kulusuk og Tasiilaq, nú í maí verður skákhátíð í Nuuk og fleiri hátíðir eru á teikniborðinu.

Horft yfir Ittoqqortoormiit, en hann er afskekktasti bær Grænlands. Næstum því þúsund kílómetrar eru í næsta byggða ból.
Fámennt en góðmennt Horft yfir Ittoqqortoormiit, en hann er afskekktasti bær Grænlands. Næstum því þúsund kílómetrar eru í næsta byggða ból.

Með sigurmerki og bros á vör á Bónusmótinu.
Glaður í bragði Með sigurmerki og bros á vör á Bónusmótinu.

Krakkarnir í Ittoqqortoormiit þyrptust í fjöltefli við Róbert.
Fjöltefli Krakkarnir í Ittoqqortoormiit þyrptust í fjöltefli við Róbert.

Stoltur með gullpening eftir jafntefli við Róbert í fjölteflinu.
Með verðlaunagrip um hálsinn Stoltur með gullpening eftir jafntefli við Róbert í fjölteflinu.

Ellen Napatoq er meðal dyggustu liðsmanna Hróksins á Grænlandi. Hún var heiðruð við upphaf hátíðarinnar.
Ellen Napatoq Ellen Napatoq er meðal dyggustu liðsmanna Hróksins á Grænlandi. Hún var heiðruð við upphaf hátíðarinnar.

Ittoqqortoormiit á sér hið viðeigandi gælunafn „Ísbjarnabærinn“. Það hlýtur að vera réttnefni, þar sem birnirnir hvítu heiðra bæjarbúa oft á tíðum með nærveru sinni.
Ísbjarnabærinn Ittoqqortoormiit á sér hið viðeigandi gælunafn „Ísbjarnabærinn“. Það hlýtur að vera réttnefni, þar sem birnirnir hvítu heiðra bæjarbúa oft á tíðum með nærveru sinni.

Börnin á leikskólanum fengu prjónaflíkur og páskaegg að gjöf við heimsókn Hróksliða.
Komu færandi hendi Börnin á leikskólanum fengu prjónaflíkur og páskaegg að gjöf við heimsókn Hróksliða.

Ein ung og efnileg í Ittoqqortoormiit.
Efnileg skákkona! Ein ung og efnileg í Ittoqqortoormiit.

Skákgleði á afskekktasta stað Grænlands.
Gleði í loftinu Skákgleði á afskekktasta stað Grænlands.

Blaðamaður DV selur það ekki dýrara en hann keypti það, en spurðu bara þessi börn.
Skák er skemmtileg! Blaðamaður DV selur það ekki dýrara en hann keypti það, en spurðu bara þessi börn.

Fjölmörg börn taka þátt í myndasamkeppni Pennans og Hróksins. Þessi snót nýtur aðstoðar Jóhannesar, sem er lukkudýr hátíðarinnar.
Jóhannes lukkuísbjörn Fjölmörg börn taka þátt í myndasamkeppni Pennans og Hróksins. Þessi snót nýtur aðstoðar Jóhannesar, sem er lukkudýr hátíðarinnar.

Blaðamaður fær ekki betur séð en að þessir kátu krakkar séu að narta í íslenskt sælgæti á meðan þeir þreyta hverja skákþrautina á fætur annarri, en líta snöggvast upp til að brosa í myndavélina.
Glatt á hjalla! Blaðamaður fær ekki betur séð en að þessir kátu krakkar séu að narta í íslenskt sælgæti á meðan þeir þreyta hverja skákþrautina á fætur annarri, en líta snöggvast upp til að brosa í myndavélina.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“