fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Edda hefur greitt 300 þúsund krónur í krabbameinsmeðferð: Býr ein með 12 ára syni sínum

Gagnrýnir greiðsluþátttökukerfi krabbameinssjúkra harðlega

Kristín Clausen
Sunnudaginn 9. apríl 2017 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Auðvitað á fólk í þessari stöðu að eyða peningunum sínum í eitthvað allt annað.“ Þetta segir Edda Dröfn Eggertsdóttir sem greindist með krabbamein árið 2015. Í tilfelli Eddu er sjúkdómurinn ólæknandi en með fyrirbyggjandi lyfjagjöf er hægt að halda honum í skefjum.

Í dag hefur Edda greitt um það bil 300 þúsund krónur í kostnað vegna læknis- og lyfjakostnaðar samkvæmt gögnum frá Sjúkratryggingum Íslands. Þá eru ekki meðtalin ólyfseðilskyld lyf, sjúkraþjálfun, tannlæknakostnaður og sálfræðimeðferð vegna veikindanna.

Ólæknandi sjúkdómur

„Ég veiktist í október 2015 en þá fundust þrjú stór æxli. Við héldum fyrst að þau væru fyrirferð á eggjastokkum. Síðan kom í ljós að æxlin komu út frá smáþörmunum.“ Í framhaldinu var Edda send í aðgerð. Þá sást að krabbameinið var búið að dreifast um allt kviðarholið. Meðal annars í eggjastokkana, legið, lífhimnuna og þindina. Í skurðaðgerðinni voru öll æxli fjarlægð. Í dag er Edda með Gist-krabbamein sem hægt er að halda niðri með töflum sem hún tekur inn daglega auk annarra lyfja til að halda aukaverkununum niðri. Þá er lyfjameðferðinni ætlað að fyrirbyggja að meinið taki sig upp aftur.

Edda segir að þótt hún taki inn fyrirbyggjandi lyf sé mikil hætta á að meinið taki sig upp aftur. „Ég verð alltaf á þessum lyfjum og er í reglulegu eftirliti. Þetta er auðvitað erfitt og reynir á en ég reyni að líta á björtu hliðarnar. Ég er allavega enn á lífi.“

Edda á 12 ára son en mæðginin búa tvö saman. Edda þarf því að halda heimili en þegar hún veiktist var hún í tveimur störfum til að láta enda ná saman. „Ég vann mína 100 prósent vinnu á daginn og svo var ég í aukavinnu á kvöldin og um helgar. Núna get ég ekki lengur gert það.“ Í dag er Edda í 75 prósent starfi.

Auk þess sem Edda þarf að hitta krabbameinslækni sinn reglulega, og greiða fyrir rannsóknir og myndatökur, þá þarf hún að hitta sérfræðilækna á borð við kvensjúkdóma-, augn- og húðsjúkdómalækna vegna aukaverkana og borga komugjald í hvert einasta skipti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“