fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Ófrísk stúlka gekk í þrjá daga á næsta spítala

Hólmfríður Garðarsdóttir starfaði á átakasvæðum í Suður Súdan sem hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 29. janúar 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Eitt sinn kom til okkar ófrísk kona sem hafði gengið í þrjá daga til að komast á spítalann. Konan, sem var 25 ára, þurfti nauðsynlega að fá blóðgjöf því hún var með það sem kallast fyrirsæt fylgja,“ segir Hólmfríður Garðarsdóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. „Í Suður-Súdan kynntist ég hins vegar því að menningarlega séð er algjört tabú að gefa blóð,“ segir Hólmfríður Garðarsdóttir„Þar sem ég var er talið að sá sem gefi blóð muni í kjölfarið deyja. Það hefur víst gerst nokkrum sinnum að einhver gefur blóð og deyr svo um tveim árum síðar,“ segir Hólmfríður og bætir við: „Manni finnst svo eðlilegt að hægt sé að finna blóðpoka.“

Í Suður-Súdan fæða flestar konur í heimahúsum en þurfa stundum að ganga langar vegalengdir til að nálgast heilbrigðisþjónustu.
Grátandi móðir fylgist með veikburða dóttur sinni Í Suður-Súdan fæða flestar konur í heimahúsum en þurfa stundum að ganga langar vegalengdir til að nálgast heilbrigðisþjónustu.

Mynd: Albert Gonzalez Farran/ICRC

Járntöflur og hnetusmjör í stað blóðgjafar

Hólmfríður segir að stór hluti af starfinu hafi falist í samskiptum við heimamenn og fann hún fyrir miklum menningarlegum mun. Þegar ekki var hægt að fá blóðgjöf með hefðbundnum hætti þurfti að finna aðrar lausnir. Hólmfríður greinir frá: „Ófríska stúlkan komst nálægt því að deyja. Á endanum lifði hún af og eignaðist fóstrið og fylgjuna. Við gáfum henni járntöflur og hnetusmjör og náðum henni ágætlega upp á endanum. Stúlkan var 25 ára gömul og átti átta börn heima. Okkur tókst, í þetta skipti, að sannfæra hana um að fara á getnaðarvörn og að safna kröftum áður en hún færi í frekari barneignir. Við ráðlögðum henni að bíða í tvö ár en hún vildi koma aftur að ári liðnu, þá væri hún tilbúin að halda áfram.“ Þrátt fyrir að hafa starfað við þetta í 20 ár segir Hólmfríður svona atvik sitja eftir og bætir við: „Manni finnst að það eigi að vera hægt að hafa þetta í betra formi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar