fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

„Ég var komin með sár í hálsinn og farin að æla blóði“

Sigrún Sigurpáls þjáðist af lotugræðgi – Konum stýrt í áttina að sjúkdómnum

Aníta Estíva Harðardóttir
Föstudaginn 2. mars 2018 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigrún Sigurpálsdóttir snappari, glímdi við lotugræðgi í mörg ár þar sem hún vandi sig á það að borða rosalega mikið af mat og kasta honum svo öllum upp strax í kjölfarið. Sigrún ákvað að opna sig varðandi veikindi sín í þeirri von að geta hjálpað öðrum í sömu stöðu.

„Þetta byrjaði svona árið 2007, en árið 2008 var þetta alveg byrjað fyrir alvöru. Í rauninni byrjaði þetta bara af því að mér fannst ég þurfa að verða mjórri heldur en ég var.“

Sigrún tjáði sig opinberlega um sjúkdóm sinn á Snapchat og fékk í kjölfarið mikil viðbrögð. Sigrún gaf blaðamanni leyfi til þess að fjalla um veikindi sín.

Gerðar kröfur að hún myndi léttast

Sigrún segir að gerðar hafi verið kröfur á að hún skyldi léttast en vill þó ekki tjá sig nánar um hvaðan.

„Ég man það bara eins og það hafi gerst í gær þegar ég tók ákvörðun um að æla matnum. Það gerðist bara eitthvað í hausnum á mér og allt í einu þá fattaði ég það að það væri náttúrulega bara besta hugmynd í heimi og myndi leysa öll mín vandamál ef ég færi bara að kasta upp öllum matnum sem ég borðaði. Það sem ég hélt að yrði lausn mín við öllum vandamálum varð að minni verstu martröð.“

Segir Sigrún þegar hún rifjar upp upphafið af átröskun sinni.

„Á þessum tíma var ég að vinna frá 8 – 17 eftir það fór ég í ræktina í svona 40 mínútur, bara á brennslutæki. Síðan fór ég heim og hjólaði í klukkutíma.“

Sigrún greinir frá því að henni hafi alltaf verið kalt. Hún hafi unnið í snjóbuxum og úlpu og að með tímanum hafi hún fundið fyrir því að hún hafði sífellt minni orku.

Upplifði skjálftaköst og orkuleysi

„Skiljanlega ég var ekki að gefa líkamanum neitt bensín. Ég fór að fá skjálftaköst og var í algjöru orkuleysi, gat varla stigið í fæturna.“

Sigrún reyndi að leita sér hjálpar hjá heimilislækni en gekk þar að lokuðum dyrum.

„Ég fór til heimilislæknis og sagði honum að ég héldi að ég væri með átröskun. Hann bað mig þá um að lyfta upp bolnum svo hann gæti séð magann á mér og þegar ég gerði það þá sagði hann við mig: „Nei, nei, þú ert ekkert með átröskun það er ekkert hægt að sjá það, þú ert bara með fínan maga.“ Og fór svo að fræða mig um það hvernig það væri hægt að skafa af sér á skíðavélinni í ræktinni.“

Leit út fyrir að vera mjög hamingjusöm en hafði aldrei liðið jafn illa á ævinni
Sigrún Sigurpáls Leit út fyrir að vera mjög hamingjusöm en hafði aldrei liðið jafn illa á ævinni

Þegar ættingjar og vinir Sigrúnar reyndu að skipta sér af því sem hún var að gera sér varð hún virkilega reið, enda taldi hún að hún vissi nákvæmlega hvað hún væri að gera og væri með allt á hreinu.

„Það er eins og hugurinn á manni sé tekin í gíslingu, það er eins og maður sé í fangelsi og maður getur ekki hugsað rökrétt.“

Var komin með sár í hálsinn og ældi blóði

Ef Sigrún ferðaðist snerist allt um að skipuleggja fyrir fram hvar hún gæti skilað matnum.

„Ég þurfti alltaf að vita hvar baðherbergið væri, hverjir væru að fara vera þarna og hvar ég gæti skilað matnum. Ég veit ekki hversu mörgum klukkutímum af ævi minni ég hef eytt ælandi. Lokuð inni á baðherbergi að æla. Það er hræðilegt að hugsa um þetta. Þetta var komið það langt stundum að ég var komin með sár í hálsinn og var farin að æla blóði.“

Það var ekki fyrr en árið 2015 sem Sigrún lokað endalega dyrunum að fangelsinu sem lotugræðgin var og gekk í burtu.

„Ég get ekki bent á neitt eitt sem varð til þess að ég hætti. Ég var komin með þrjú börn og þetta var ekki ég að vera svona. Ég hætti að skoða allt á netinu sem lét mér líða svona illa, af því að þegar ég var sem verst þá gerði ég ekki annað en að skoða myndir af mjóum konum.

Konum stýrt í átt að sjúkdómnum

Sigrún segir að konum sé stýrt í áttina að þessum sjúkdómum.

„Okkur er stýrt í þessa átt, að við þurfum að vera ógeðslega mjóar og flottar til þess að vera samþykktar, það er bara þannig. Við sjáum lang mest myndir af glansmyndinni, þessu fullkomna og okkur líður eins og við þurfum að vera þannig. En sem betur fer er það ekki þannig og ef það er einhver í lífi okkar sem krefst þess að við séum öðruvísi heldur en við erum til þess að við pössum inn, þá eigum við að labba í burtu. Við eigum ekki að þurfa að breyta okkur fyrir einhvern annan.“

Sigrún segir að ákvörðunin um að byrja að svelta sig sé sú versta sem hún hafi tekið í lífinu.

„Að halda það að ef ég myndi æla matnum að þá yrði ég hamingjusöm. Aðstandendum finnst maður oft vera vitlaus að gera þetta, og það að vera reiður við manneskjuna er það versta. Það er eins og bensín á eldinn. Þetta er bara sjúkdómur maður ræður ekkert við sig.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Nestlé dælir sykri í vörur ætlaðar börnum í fátækum ríkjum

Nestlé dælir sykri í vörur ætlaðar börnum í fátækum ríkjum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Sjáðu markið: Hólmar kom Val yfir eftir frábæra hornspyrnu Gylfa

Sjáðu markið: Hólmar kom Val yfir eftir frábæra hornspyrnu Gylfa
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Xavi fundaði með Barcelona í dag

Xavi fundaði með Barcelona í dag
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.