fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fókus

Dagur í lífi Katrínar: Lúxusstjórnun, jóga og endalausir fundir um alla borg

Dagur í lífi Katrínar Amni, framkvæmdastjóra Félags viðskipta- og hagfræðinga

Margrét Gústavsdóttir
Föstudaginn 9. febrúar 2018 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Amni Friðriksdóttir fæddist í Lundúnum 29. mars 1983. Hún er dóttir þeirra Þórheiðar Einarsdóttur flugfreyju og Sami Ajram, en uppeldisfaðir hennar er Friðrik Guðmundsson rafeindavirki. Katrín á tvö systkini, móðurmegin Oddnýju Dögg, f. 1990, og föðurmegin Ramsey Ajram, f. 1987. Hún er uppalinn á Kársnesinu og lauk menntaskóla frá MK. Því næst lá leiðin í HÍ þaðan sem hún útskrifaðist með B.S.-gráðu í hagfræði árið 2008 en meistaranámi lauk Katrín frá Domus Academi í Mílanó en þar náði hún sér í gráðu í svokölluðu „luxury management“ eða lúxusstjórnun. Hún rekur eigið fyrirtæki, Kamni ehf., þar sem hún sinnir ýmsum verkefnum er tengjast markaðssetningu, viðburðum og verkefnastjórnun fyrir lítil og stór fyrirtæki. Hún er jafnframt nýráðin framkvæmdastjóri Félags viðskipta- og hagfræðinga. Katrín á tvö börn, þær Karítas, 8 ára, og Antoníu 4 ára, og saman búa mæðgurnar í Hlíðahverfinu í Reykjavík, þegar dæturnar eru ekki hjá föður sínum.

06.00

Þegar dætur mínar eru hjá mér þá reyni ég að vakna klukkan sex. Fyrsta verk er að taka rosalega góða vinnutörn til korter yfir sjö, eða þar um bil, en stundum afkasta ég meira á þeim tíma en á heilum vinnudegi. Því næst vek ég börnin mín og við fáum okkur morgunmat, þær fá sér hafragraut eða Cheerios en sjálf fasta ég alltaf til hádegis.

8.30

Besta ráð sem þér hefur verið gefið?

„Hlustaðu meira en þú talar“ Þetta ráð kom frá góðum vini mínum í viðskiptalífinu og það hefur reynst mér vel.

Hvaða ráð vilt þú gefa öðrum?

Það hefur komið mér langt að vera til í leggja inn án þess að reikna með því að fá eitthvað til baka. Maður græðir alltaf á því að reyna að vera góð manneskja og hjálpa öðrum.

Hvað vildirðu að þú hefðir vitað fyrr?

Að það er enginn að velta því fyrir sér hvað ég er að gera, þess vegna á maður alltaf að fylgja eigin draumum og innsæi.

Eftir að hafa skutlað stelpunum í skólann fer ég á skrifstofuna mína í Víkurhvarfi. Þar hef ég aðstöðu með nokkrum frábærum samstarfsaðilum. Við erum í litlu teymi sem sinnir ýmsum verkefnum, meðal annars fyrirtæki sem heitir Náttúrusmiðjan og sérhæfir sig í framleiða íslensk bætiefni undir nafninu IceHerbs. Dagarnir mínir eru mjög mismunandi en ég reyni alltaf að halda fast í þá reglu að byrja vinnudaginn á skrifstofunni.

12.00

Ég borða mjög oft á veitingastöðum í hádeginu. Ef ég er að funda þá fer ég oft á Snaps eða Essensia, svo höldum við starfsfélagarnir mikið upp á High-Tea á Nordica. Ef ég þarf hins vegar að skjótast bara eitthvert í mat þá verður Krúskagjarna fyrir valinu, ég er háð matnum þeirra. Ef svo ólíklega vill til að ég sé ekki á fundi í hádeginu þá reyni ég að fara í jógatíma. Ég fer mest í Hreyfingu þar sem ég stunda Vinyasa- og Ashtanga-jóga. Stundum fer ég á milli staða, hef til dæmis prófað Yoga Shala og Sólir. Kannski svolítið lauslát í þessum jógahefðum mínum?

13.30

Ég er alltaf á leiðinni eitthvert og fer á afar marga fundi á hverjum einasta degi. Allavega svona þrjá, fjóra staði. Eftir hádegi fer ég vanalega ekki aftur á skrifstofuna heldur kem mér fyrir á kaffihúsi til að vinna eða held áfram að funda einhvers staðar.

16.00

Ef ég fer að sækja börnin mín þá tékka ég mig út andlega um fjögur leytið. Ég vinn aldrei á milli klukkan fimm og átta ef dætur mínar eru hjá mér. Þá er ómögulegt að ná í mig vegna vinnu. Þetta er eitt af fáum prinsippum sem ég held fast í þegar kemur að daglegu lífi. Ef ég næ ekki að fara í ræktina eða jóga í hádeginu þá reyni ég oft að skreppa eftir vinnu ef dæturnar eru í góðum gír, annars er ég bara heima að dúllast með þeim fram að kvöldmat.

18.00

Við borðum kvöldmatinn yfirleitt upp úr klukkan sex. Ég reyni alltaf að elda eitthvað hollt og gott, til dæmis góðan fisk, eggjahræru, sætar kartöflur, kjúkling, bara eitthvað létt og gott. Ég miða oft út frá því hvað þær hafa borðað í hádeginu og hef kvöldmatinn eftir því. Reyndar elska þær pastað frá Sollu með grænu pestói, það er uppáhaldsmaturinn þeirra!

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

20.30

Eftir kvöldmatinn þá er það bara bað og háttatími hjá stelpunum. Við lesum alltaf saman og reynum að fara yfir allt það góða sem gerðist yfir daginn. Á þessum stundum kemur oft eitthvað í ljós sem maður vissi ekkert um. Eitthvað áhugavert sem gerðist í skólanum hjá þeim eða annað skemmtilegt. Svo sofna þær oftast út frá einhverri jógatónlist. Sú yngri er svo fjörug að það þarf aðeins að hafa fyrir því að hjálpa henni að slaka á.

21.00

Ég næ yfirleitt alls ekki að horfa á sjónvarpið þótt mig langi. Ég enda alltaf á að gera eitthvað annað. Til dæmis að spjalla við vinkonur, fjölskyldu, svara tölvupósti eða gera fínt í kringum mig. Mér finnst afskaplega mikilvægt að eiga góðan tíma fyrir sjálfa mig á kvöldin og legg mikið upp úr þessari stund. Þegar stelpurnar mínar eru ekki hjá mér, sem er fjörtíu prósent af tímanum, þá vinn ég stundum fram eftir og hitti vini á kvöldin. Fer úr mömmugallanum og í hinn gírinn. Mér finnst ótrúlega gaman að vera öflug mamma en mér finnst líka frábært að vera ein og hitta vini mína þess á milli. Þetta er líf í góðu jafnvægi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslendingar fljúga snemma úr hreiðrinu – Goðsögnin um ítölsku mömmustrákana er sönn

Íslendingar fljúga snemma úr hreiðrinu – Goðsögnin um ítölsku mömmustrákana er sönn
Fókus
Í gær

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einkaþjálfari tekinn á teppið fyrir framkomu sína – Birti sjálf myndbandið sem kom upp um hana

Einkaþjálfari tekinn á teppið fyrir framkomu sína – Birti sjálf myndbandið sem kom upp um hana
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Það var mjög erfitt að horfa upp á ungan mann í dauðastríði“

„Það var mjög erfitt að horfa upp á ungan mann í dauðastríði“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Una Torfa með nýtt lag á miðnætti

Una Torfa með nýtt lag á miðnætti
Fókus
Fyrir 4 dögum

Læknir segir að þú getir sagt til um typpastærð karlmanns með því að horfa framan í hann

Læknir segir að þú getir sagt til um typpastærð karlmanns með því að horfa framan í hann
Fókus
Fyrir 5 dögum

Barkley skaut fast á sólmyrkvaáhorfendur – „Ég ætla ekki að sitja úti eins og hálfviti og bíða eftir myrkrinu“

Barkley skaut fast á sólmyrkvaáhorfendur – „Ég ætla ekki að sitja úti eins og hálfviti og bíða eftir myrkrinu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Bregst við orðrómi um skilnað

Bregst við orðrómi um skilnað