fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Dagur í lífi Kristínar Mariellu

– núvitund, bláberjaskonsur og brjálaður hiti í Singapúr

Margrét Gústavsdóttir
Þriðjudaginn 20. febrúar 2018 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Mariella Friðjónsdóttir fæddist í Reykjavík 21. apríl 1989. Hún er dóttir þeirra Margrétar Sigurðardóttur, kennara í Landakotsskóla, og Friðjóns Arnar Friðjónssonar hæstaréttarlögmanns.
Kristín á þrjú systkini, Áslaugu Írisi, f. 1981, Tómas, f. 1984, og Alexander, f. 1991. Kristín er uppalin í Fossvoginum. Hún lauk menntaskólanámi frá MH og stundaði fiðlu- og víólunám í Tónlistarskóla Reykjavíkur. Eftir menntaskóla lá leið hennar til Bandaríkjanna þar sem hún stundaði framhaldsnám í víóluleik við Temple University en nú beinist áhugi hennar fyrst og fremst að uppeldisnálgun sem kallast RIE, – eða virðingarríkt tengslauppeldi á íslensku. Hún heldur úti vefsíðunni www.respectfulmom.com sem hefur notið mikilla vinsælda meðal foreldra. Eiginmaður Kristínar heitir Orri Helgason og starfar hjá Hyper Island í Singapúr þar sem fjölskyldan býr. Þau eiga tvö börn, Ylfu, fjögurra ára, og Breka, eins árs.

07.00

Yfirleitt vakna ég klukkan sjö með börnunum mínum og útbý fyrir þau hafragrauts-gúmmelaði með fræjum, olíum og vítamínum. Ég sjálf verð ekki svöng fyrr en aðeins seinna og fæ mér þess vegna ekki mikið meira en grænt vítamínduft í vatni svona til að vakna aðeins betur.

08.00

Það tekur okkur um 45–55 mínútur að komast í skólann og við þurfum að taka strætó og lest til að komast á leiðarenda. Ég kýs að líta á þennan langa ferðatíma sem einkatímann okkar Ylfu en eftir að litli bróðir kom í heiminn þá er mikilvægt að búa til tíma þar sem hægt er að gefa hvoru systkini um sig 100% athygli. Á morgnana er hann heima með au-pair stelpunni okkar.

09.30–10.00

Í tæpt ár hef ég farið á sama kaffihúsið til að vinna, sest á sama staðinn og panta mér alltaf það sama – bláberjaskonsu og grænt te. Ég er orðin alveg einstaklega góð í að koma mér strax í vinnugírinn því ég má í raun engan tíma missa. Ég skrifa pistla og handrit að Youtube-myndböndum, set upp glærur fyrir námskeið, viðheld Facebook-hópunum mínum eða set daglega RIE-fræðslu inn á Snapchat-ið mitt.

13.00

Ég vinn í þrjá til fjóra tíma og stekk svo örstutt í matvöruverslunina á horninu til að kaupa í matinn ef eitthvað vantar, og tek síðan lest eða leigubíl heim enda vil ég vera þar þegar Breki vaknar.

13.30

Mín helsta áskorun yfir daginn er að hægja á hausnum eftir vinnu morgunsins. Koma mér úr vinnugírnum í meðvitað ástand þar sem ég er róleg, slök og í tengingu við sjálfa mig. Í því ástandi vil ég koma inn um dyrnar heima, tilbúin að njóta tímans með stráknum mínum í núvitund og helst veita honum 100% athygli áður en stóra systir kemur heim. Ég legg símann iðulega efst uppi á bókaskáp og reyni að halda honum þar fram að kvöldmat. Oftast tekst mér að skipta alveg um gír og hrista stressið af mér en stundum tekst það ekki. Það hefur hins vegar hjálpað mér mikið að nýta tímann í lestinni, hugleiða, anda djúpt og reyna þannig að komast í rétt ástand á leiðinni heim eftir morgunvinnuna.

16.00

Ég er svo heppin að vera með au-pair stelpu til aðstoðar en hún sækir Ylfu í leikskólann og þannig get ég einbeitt mér að Breka litla yfir daginn. Stundum erum við Breki komin í garðinn eða á leikvöllinn um eftirmiðdaginn og þá hitta þær okkur þar. Það er nefnilega of heitt yfir hádegið til að fara út. Garðarnir og leikvellirnir vakna til lífsins eftir klukkan þrjú enda þá fyrst hægt að njóta útiverunnar án þess að stikna.

17.30

Við borðum kvöldmatinn snemma enda förum við snemma í háttinn. Ylfa elskar að aðstoða við eldamennskuna, sem er nú oftast í einfaldara lagi. Orri dettur oftast inn um dyrnar þegar við erum rétt að byrja að borða og það er alltaf jafn gaman að fá pabba heim.

19.15

Ef einhver er ennþá svangur eftir kvöldmatinn og baðið má fá sér bananasnarl. Svo burstum við tennur og leikum okkur ef tími er til en upp úr sjö eru tvær sögur lesnar uppi í rúmi og svo eru ljósin slökkt.

19.30–20.00

Við foreldrarnir eigum oftast rólega stund eftir að börnin sofna. Horfum á sjónvarpið eða spjöllum saman áður en við förum að sofa, sem er milli ellefu og tólf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“