fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Sælandsgarðar hjálpa þér við garðinn og hellurnar: Fagmennska og persónuleg þjónusta

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 15. janúar 2018 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er gott að hafa tímann fyrir sér í vorverkunum og þó að ekki sé komið vor er engu að síður tímabært að huga að garðinum, stéttunum og umhverfi sínu almennt. Eiríkur Sæland, garðyrkjufræðingur hjá fyrirtækinu Sælandsgarðar, er sérfræðingur á þessu sviði og hann bendir á að veturinn geti nýst mjög vel til vinnu í garðinum. Eiríkur er menntaður garðyrkjufræðingur frá Garðyrkjuskóla ríkisins og sótti sér frekari menntun í faginu til Noregs og Danmerkur. Hann hefur frá árinu 2008 rekið eigið fyrirtæki, Garðaþjónustuna E. Sæland, sem hefur skipt um nafn og heitir nú Sælandsgarðar ehf. Tilefni nafnbreytingarinnar er það að sonur Eiríks, Kolbeinn Sæland vélstjóri er kominn inn í rekstur fyrirtækisins, en hann lýkur námi sem skrúðgarðyrkjufræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands í vor. Auk þeirra feðga starfa við fyrirtækið skrúðgarðyrkjumeistari og fleiri mjög reyndir starfsmenn.

Eiríkur Ómar Sæland
Eiríkur Ómar Sæland

Kjörinn tími til að klippa tré og runna

Eiríkur segir að þessar vikurnar sé kjörinn tími til að klippa tré og runna og fella tré sem skyggja á sólu eða þarf að fella af öðrum ástæðum. Undir vorið er í mörgu að snúast í görðum og þá er gott að vera búinn að klippa það sem klippa þarf, áður en kemur að beðahreinsunum og almennri hirðingu.

Starfsmenn Sælandsgarða eru færir fagmenn á þessu sviði og hafa mikla þekkingu á plöntum og mikla reynslu af klippingum og trjáfellingum. Þeir geta veitt ráðgjöf, gert kostnaðaráætlanir og komið með bæði glæsilegar og hagkvæmar lausnir.

Eiríkur segir að nauðsynlegt sé að klippa limgerði reglulega til að viðhalda því og þétta það og koma í veg fyrir að það gangi úr sér. Í borgarlandinu er líka mikilvægt að snyrta tré reglulega svo þau nái því lagi sem fólk vill.

Hellulögn og hleðslur

Á þessum árstíma er líka kjörið að vinna í hellulögn og hleðslu þegar vel viðrar. Til dæmis að rífa upp og endurnýja gamlar hellulagnir í heimkeyrslum, á bílastæðum og göngustígum, og leggja nýjar. Oft þarf líka að endurnýja gamlar hleðslur eða gera nýjar, hvort heldur er með forsteyptum einingum eða náttúrulegu grjóti. Hellur og náttúrugrjót geta verið skemmtileg lausn í garðinum til að minnka garðslátt og gera ásýnd garðsins léttari, nútímalegri og flottari. Þarna þarf síðan líka að koma við sögu ráðgjöf og undirbúningur á borð við jarðvegsskipti og uppsetningu snjóbræðslukerfa eftir því sem við á og óskað er eftir.

Gras og beð

Þegar vorar er síðan orðið tímabært að hreinsa beðin, kantskera og semja um garðslátt. Sælandsgarðar ehf. tekur að sér öll þessi verk og hefur síðustu ár séð um garðslátt, beðahreinsun og alla umhirðu garða fyrir húsfélög, fjölbýlishús, stór og lítil fyrirtæki og stofnanir.

Sælandsgarðar ehf.

Starfsmenn Sælandsgarða mæta á svæðið, skoða umfang verksins, gera áætlanir um lausn með húseigendum og leysa í kjölfarið verkið af fagmennsku, fljótt og örugglega, á hagkvæman hátt.

Sælandsgarðar er vaxandi fyrirtæki sem tekur að sér verkefni allt árið um kring. Eiríkur og hans menn eru með öll nauðsynleg tæki og búnað í garðaþjónustu og hellulögn – eru fagmenn sem leggja áherslu á persónulega þjónustu og vandaða vinnu.

Hægt er að hafa samband við Eirík hjá Sælandsgörðum í síma 680 9903, með tölvupósti á netfangið eirikur_omar@hotmail.com og á Facebook-síðunni Garðaþjónusta E. Sæland ehf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum