fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Blómakonur útbúa hinn fullkomna jólapakka

Birta heimsótti þrjár blómabúðir og fékk aðstoð við innpökkun jólagjafa

Margrét Gústavsdóttir
Sunnudaginn 17. desember 2017 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kannski ert þú týpan sem lítur svo á að það megi pakka jólagjöfinni inn í helgarblað DV kringum hádegi á aðfangadegi og henda svo undir tréð? Það er gott og blessað (og vissulega heiður fyrir blaðamenn DV) en gerir kannski ekki eins mikið fyrir jólastemninguna.

Ef þú ert að fara að elda ofan í tuttugu manns þá ert þú löglega afsökuð eða afsakaður og það sama gildir fyrir ykkur klaufana. Maður getur víst ekki allt en vittu að það er blessunarlega hægt að leita sér aðstoðar með þetta mál líkt og önnur.

Birta fór á stúfana og heimsótti þrjár blómabúðir á höfuðborgarsvæðinu enda tilvalið að leita ráða hjá fagurkerum sem sérhæfa sig í hvers konar skreytingum á degi hverjum.

Hrafnhildur hjá Blómagalleríi við Hagamel 67 segir upplagt að fólk komi með gjafapoka með góðum fyrirvara og svo sé hægt að sækja pakkana næsta dag. „Verðið fyrir innpökkunina getur rokkað frá 1.200 krónum og upp úr, en það fer eftir stærð og umfangi hlutarins sem á að pakka inn,“ útskýrir Hrafnhildur en Auður í Blómabúðinni á Garðatorgi og Nanna hjá Breiðholtsblómum segja verðið svipað hjá þeim, eða sirka frá 1.200 og upp úr.

Þessi er tilvalinn fyrir ástkonuna, ástmanninn eða bara þá sem elska rauða litinn. Einstaklega fallegur pakki frá Blómagalleríinu á Hagamel.
Eldheitur Þessi er tilvalinn fyrir ástkonuna, ástmanninn eða bara þá sem elska rauða litinn. Einstaklega fallegur pakki frá Blómagalleríinu á Hagamel.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Það má gera litla gjöf stærri með svona fallegum umbúðum.
Snotur Það má gera litla gjöf stærri með svona fallegum umbúðum.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Þessi gullfallegi pakki kemur frá Hrafnhildi í Blómagalleríinu á Hagamel.
Gull og gersemar Þessi gullfallegi pakki kemur frá Hrafnhildi í Blómagalleríinu á Hagamel.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Yndislega fallegur silfurpakki frá Blómagalleríinu á Hagamel.
Silfur Yndislega fallegur silfurpakki frá Blómagalleríinu á Hagamel.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Þessi sæti pakki kemur úr blómabúð Auðar á Garðatorgi 4 í Garðabæ.
Jólasveinn sem pakkaskraut Þessi sæti pakki kemur úr blómabúð Auðar á Garðatorgi 4 í Garðabæ.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Fallegir pakkar geta verið mikil prýði undir jólatrénu svo ekki sé minnst á hversu gaman er að rétta þá viðtakandanum.
Prýði undir jólatrénu Fallegir pakkar geta verið mikil prýði undir jólatrénu svo ekki sé minnst á hversu gaman er að rétta þá viðtakandanum.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Auður á öskjur í alls konar stærðum og gerðum sem henta vel undir hvers konar pakka sem gæti verið erfitt að pakka inn í pappír. Krúttlegi kransinn getur fylgt með.
Hringlaga askja Auður á öskjur í alls konar stærðum og gerðum sem henta vel undir hvers konar pakka sem gæti verið erfitt að pakka inn í pappír. Krúttlegi kransinn getur fylgt með.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Fallegur og dömulegur pakki frá Nönnu í Breiholtsblómum.
Breiðholtsblóm Fallegur og dömulegur pakki frá Nönnu í Breiholtsblómum.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Það er gaman að nota greinar á pakkana en þá gengur ekki að pakka þeim allt of snemma inn. Þorláksmessukvöld væri tilvalið fyrir þessa skreytingu.
Reffilegur Það er gaman að nota greinar á pakkana en þá gengur ekki að pakka þeim allt of snemma inn. Þorláksmessukvöld væri tilvalið fyrir þessa skreytingu.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Þessi virðulegi pakki sem pakkað var inn af Nönnu hjá Breiðholtsblómum er ákaflega jólalegur með könglum og greni. Gæti t.d. hentað virðulegum eldri manni.
Fyrir virðulegan afa Þessi virðulegi pakki sem pakkað var inn af Nönnu hjá Breiðholtsblómum er ákaflega jólalegur með könglum og greni. Gæti t.d. hentað virðulegum eldri manni.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Garnacho bað Ten Hag afsökunar – „Hann verður að læra mikið og hratt“

Garnacho bað Ten Hag afsökunar – „Hann verður að læra mikið og hratt“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Eyjan
Fyrir 16 klukkutímum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur