fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Skammdegisþunglyndi

Til að minnka vetraróyndi er gott að hafa reglu á lífinu

Margrét Gústavsdóttir
Sunnudaginn 19. nóvember 2017 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestir finna fyrir breytingum á líðan eftir árstíðum. Minnkandi birta í skammdeginu getur haft þau áhrif á fólk að það finni fyrir kraftleysi, mislyndi, erfiðleikum með svefn, aukinni matarlyst og minnkaðri löngun til samskipta við aðra.

Ef andleg vanlíðan í kjölfar skammdegis verður það mikil að það hamli eðlilegu, daglegu lífi getur það verið merki um vetraróyndi eða skammdegisþunglyndi. Þá er um árstíðarbundna geðlægð að ræða sem hefst á svipuðum tíma ár hvert, með lækkandi sól að hausti og lýkur með hækkandi sól að vori. Í þeim tilfellum er mikilvægt að leita sér aðstoðar sálfræðinga eða annarra sérfræðinga. Það er þó aðeins lítið hlutfall þjóðarinnar sem glímir við vetraróyndi en ein árangursríkasta meðferðin við því er sérstök ljósameðferð, þar sem viðkomandi situr í ljósi frá lampa sem líkir eftir dagsbirtu.

Forðumst stressið

Vetraróyndi er mun sjaldgæfara hér á landi en annars staðar í heiminum þar sem breytingar á birtu eru svipaðar og hér. Þótt skammdegið leiði ekki til röskunar hjá meirihluta þjóðarinnar hefur það einhver áhrif á flest okkar. Það getur verið mun erfiðara að hafa sig á fætur þegar dimmt er úti og þá er freistandi að liggja lengur í rúminu, sem getur leitt til þess að við verðum of sein og við það litast andrúmsloftið á heimilinu af stressi. Slík byrjun á degi getur haft áhrif á líðan okkar það sem eftir er dagsins og ef þráðurinn varð stuttur um morguninn getur samviskubit læðst að okkur síðar.

Geðrækt í skammdeginu

Til þess að minnka neikvæð áhrif skammdegisins er mikilvægt að hlúa að geðheilsunni. Grunnurinn að góðri geðheilsu og lykillinn að vellíðan er nægur svefn, gott mataræði, regluleg hreyfing, jákvætt viðhorf og góð félagsleg samskipti. Til að vinna gegn þessum neikvæðum áhrifum er gott að huga að geðrækt til dæmis með því að:
• fara fyrr að sofa til að eiga auðveldara með að vakna að morgni,
• hreyfa sig reglulega,
• reyna að nýta dagsbirtuna eins vel og hægt er
• borða vel og reglulega
• forðast álag
Fyrir þau sem vilja meiri dagsbirtu en hægt er að fá utandyra í skammdeginu, er hægt að kaupa lampa sem líkir eftir dagsbirtu. Það hjálpar líka að viðurkenna að skammdegið er manni erfitt og bregðast við því til dæmis með því að búa til notalega stemmningu með ilmi og ljósum, fara í freyðibað, kveikja á kertum og dekra aðeins við sig, láta annað eftir sér það sem við vitum að hefur góð áhrif á líðan okkar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“