fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Hvers vegna verðum við of feit?

Þeim Íslendingum sem eru of þungir fjölgar stöðugt og of feitt fólk verður sífellt feitara.

Margrét Gústavsdóttir
Föstudaginn 3. nóvember 2017 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þeim Íslendingum sem eru of þungir fjölgar stöðugt og of feitt fólk verður sífellt feitara. Tíðni ofþyngdar og offitu hefur aukist um allan heim á undanförnum áratugum og þar er Ísland engin undantekning. Samkvæmt skýrslu OECD var hlutfall fólks með líkamsþyngdarstuðul ≥30 kg/m2 hér á landi það fjórða hæsta meðal þeirra Evrópuþjóða sem skýrslan náði til árið 2008 og hafði algengið meira en tvöfaldast frá árinu 1990.

Þessi þróun er áhyggjuefni þar sem offita er áhættuþáttur ýmissa sjúkdóma, svo sem sykursýki af tegund tvö, stoðkerfissjúkdóma og hjarta- og æðasjúkdóma og hefur þannig áhrif á lífsgæði og lífslíkur fólks. Offita og hugsanlegir fylgikvillar leiða einnig til aukins kostnaðar fyrir þjóðfélagið þar sem þörfin fyrir heilbrigðisþjónustu og önnur úrræði eykst til muna.

Niðurstöður rannsókna sýna að líkamsþyngdarstuðull Íslendinga hækkaði talsvert á árabilinu 1990–2007. Árið 1990 var hlutfall íslenskra karla sem eru yfir kjörþyngd 66,6 prósent og kvenna 53,5 prósent. Munurinn er einkum til kominn vegna þess hve hátt hlutfall karla, 47,7 prósent, eru of þungir í samanburði við konur, 32,2 prósent.

Í ljósi þróunarinnar, sem hér hefur átt sér stað, og þeirra alvarlegu afleiðinga, sem offita getur haft fyrir heilsu og lífsgæði fólks, sem og heilbrigðisútgjöld, bendir allt til þess að á ferðinni sé samfélagsvandi sem nauðsynlegt er að huga að.

Hverjar eru ástæður aukakílóanna?

Aukakíló og offita stafa af því að meðalorkuneysla er hærri en sem nemur meðalorkuþörf, mælt yfir langan tíma.
Eftir því sem þyngdin eykst hækkar orkuþörfin. Það er nefnilega ekki aðeins fita sem bætist á líkamann heldur er hluti aukinnar þyngdar til kominn vegna líffæra og vöðva sem brenna orku.

Eftir því sem við fitnum meira eykst fitubrennslan einnig. Fita úr fituforða líkamans losnar út í blóðrásina; því stærri sem fituforðinn er þeim mun meiri fita fer út í blóðið, og því meiri fita sem er í blóðinu þeim mun meiri fitu brennum við.

Nýtt jafnvægi næst með auknum líkamsþunga þegar orkunotkun og fitubrennsla hefur aukist í sama hlutfalli og orka og fita í fæðunni.

Það þarf lítið út af að bregða til að raska jafnvæginu milli orkuneyslu og orkunotkunar og við slíka röskun fitna sumir. Nokkrum kalóríum of mikið á hverjum degi, mánuðum eða árum saman, getur orðið að mörgum aukakílóum á endanum. Þetta snýst um hárnákvæmt jafnvægi sem við getum með engu móti stjórnað með viljastyrknum einum saman.

Margir mismunandi lífeðlisfræðilegir þættir hafa áhrif á þessa stjórnun til lengri tíma og valda því að sumum hættir fremur til að fitna en öðrum. En sem betur fer höfum við ýmsa möguleika til að bregðast við þessu á náttúrulegan hátt, þannig að við höldum réttri líkamsþyngd án þess að svelta eða lifa meinlætalífi.

Erfðir og umhverfi

Það er samspil arfbundinnar hneigðar og vissra umhverfisþátta sem veldur því að fólk þyngist of mikið.
Sú mikla aukning sem orðið hefur á offitu meðal Íslendinga á síðastliðnum áratugum stafar af breytingum í samfélaginu og lífsmáta okkar – ekki síst mataræðinu – og því hvernig við hreyfum okkur. Þessar breytingar eiga sök á því að þægilegasti lífsmátinn er jafnframt sá sem veldur því að við innbyrðum meiri orku og notum minni orku.
Matur er ódýrari en hann var, einkum feitur matur. Stórmarkaðir, sjoppur og matsölustaðir eru á hverju götuhorni og girnilegur, feitur matur alls staðar aðgengilegur.

Nútímafólk á Íslandi er yfirleitt ekki háð líkamlega erfiðri vinnu til að framfleyta sér. Flestir vinna kyrrsetustörf.
Það er ekki einu sinni nauðsynlegt að hreyfa sig í frítímum. Bílar og almenningssamgöngur valda því að við þurfum ekki að reyna á kraftana. Þörf okkar fyrir spennu og hraða svölum við með því að horfa á sjónvarp eða myndbönd, leika okkur á netinu eða í tölvuleikjum.

Við þurfum ekki að hreyfa okkur út úr húsi til þess að fá félagsskap. Símar, farsímar, tölvupóstur og samfélagsmiðlar sjá fyrir því.

Arfbundnar hneigðir

Sumir fitna mikið, aðrir dálítið og enn aðrir fitna alls ekki, þó svo að lífsvenjur séu hinar sömu með tilliti til mataræðis og hreyfingar. Það er vegna þess að hjá sumum er það „í ættinni“ að fitna en hjá öðrum ekki.

Arfbundin hneigð til að fitna kemur fram í verri orkunýtingu (meðal annars hægari efnaskiptum í hvíld) og skertri hæfni til að brenna fitu (og þar með tilhneigingu til að safna fituforða). Erfðir hafa áhrif á ótalmarga og mismunandi lífeðlisfræðilega þætti sem ráða heildarnýtingu orkunnar, fitubrennslunni og stjórnun matarlystar og þar með því hvort við fitnum eða ekki.

Fólk sem er of feitt og er ákveðið í að grenna sig, hefur marga möguleika til að ná kjörþyngd og halda henni, með því að notfæra sér megrunarkúra, breytt mataræði, hreyfingu, lyf og sálfræði eða félagslegan stuðning.

Stjórnvöld geta einnig stuðlað að þeim samfélagslegu breytingum sem geta snúið þróuninni við. Til þess þarf pólitískar ákvarðanir, sem m.a. auðvelda aðgang fólks að rétt samsettri fæðu og gera fólki kleift að iðka holla hreyfingu sem hluta af daglegu lífi sínu.

Fræðsla er mikilvæg en dugir ekki ein sér. Aukin áhersla á hreyfingu í grunn- og framhaldsskólum, tölvuleikir barna þar sem líkamleg áreynsla er nauðsynleg, hollari matur í mötuneytum skóla og vinnustaða, áskorun til matvælaframleiðenda um betra skyndifæði, borgarskipulag sem gerir ráð fyrir hjólandi og gangandi vegfarendum, aðstaða til líkamsræktar á vinnustöðum og svo framvegis.

Með aukinni fræðslu má fá hvern og einn til að vanda valið betur, en þó aðeins miðað við þá möguleika sem þjóðfélagið og umhverfið bjóða upp á.

Frekari fróðleik um offitu og aðra kvilla má lesa á www.doktor.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Ruza fer í skóför Felix

Eva Ruza fer í skóför Felix
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“