Það er föstudagur sem þýðir bara eitt. Það er að koma helgi!
DV spurði nokkra Íslendinga í vikunni hvað þau ætla að gera um helgina.
Eva Laufey Kjaran verður viðskiptafræðingur um helgina
„Þessi helgi lofar ansi góðu. En ég ætla að verja henni með fjölskyldunni minni, á föstudaginn ætla ég út að borða með mömmu og systir minni . Á laugardaginn er ég að útskrifast með BS í viðskiptafræði úr Háskólanum á Bifröst og get þess vegna kallað mig viðskiptafræðing um helgina hehe. Ætla að fagna með góðum mat og kökuáti! Sunnudagurinn fer eflaust bara í slökun með manninum mínum og stelpunum mínum tveimur. Semsagt ofur góð helgi í vændum með fólkinu mínu,“
segir Eva Laufey.
https://www.instagram.com/p/Bt0WlTyHGW6/
Camilla Rut fagnar útgáfu Watch Me
„Ég ætla að þjófstarta helginni með því að gefa út nýjasta lagið mitt Watch Me á fimmtudaginn. Við tekur þessi venjulega helgi í faðmi vina og fjölskyldu, við vinkonurnar ætlum að skella okkur í Krauma á föstudaginn í dekur í tilefni útgáfunnar. Svo ætla ég að njóta samverunnar með litla stráknum mínum í helgarfríinu og auðvitað enda helgina á að setja inn nýtt sunnudagslag úr stofunni heima í Instagram story sem er orðin ákveðin hefð hjá mér og eiginmanninum,“
segir Camilla Rut.
https://www.instagram.com/p/BuJHpMnhyMB/
Binni Löve ætlar í bústað með fjölskyldunni
„Helgin verður skemmtileg. Við Kristín ætlum að skella okkur á Tapasbarinn föstudagskvöldið, við erum mjög spennt! Á laugardeginum ætlum við svo að bruna upp í bústað með hann Storm litla og slappa af, skella okkur í pottinn og njóta náttúrunnar!“
Segir Binni Löve.
https://www.instagram.com/p/Bqcz2hVnNgX/
Ingibjörg Eyfjörð
„Við erum ekki með mikið planað. Maðurinn minn var að koma heim eftir fjórar vikur á sjó svo fjölskldan vill bara eyða tíma saman og hafa það notalegt heima,“
segir Ingibjörg.
https://www.instagram.com/p/BuGjyovgzpA/
Hvað ert þú að fara að gera um helgina?