Smartlandsdrottningin Marta María Jónasdóttir hefur sett glæsilegt hús sitt við Ljósaland 8 í Reykjavík á sölu. Er þetta annað húsið á innan við viku sem Marta María setur á sölu, en DV sagði frá því í síðustu viku að hús hennar og Páls Winkels, fangelsismálastjóra, í Garðabæ væri til sölu.
Húsið við Ljósaland er einstaklega fallega innréttað, enda Marta María annáluð smekkkona. Húsið er rúmlega 160 fermetrar að stærð og er ásett verð tæplega 85 milljónir króna.
Húsið er búið fjórum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, en í færslu sinni á Facebook segir Marta María að nýir tímar bíði nú hennar og Páls.
„Það eru miklar breytingar í gangi hjá okkur fjölskyldunni og því er þetta dásamlega hús komið á sölu,“ skrifar hún við fasteignaauglýsinguna.