Þorsteinn B. Friðriksson, oft kenndur við Plain Vanilla, og eigandi hugbúnaðarfyrirtækisins Teatime ehf., eignaðist dreng í morgun ásamt kærustu sinni, gullsmíðanemanum Rós Kristjánsdóttur.
„Hello world!! Þessi litli snáði kom í heiminn kl 10:45 í dag og vóg 14,5 merkur og var 51,5cm langur! Fæðingin gekk ótrúlega vel og Rós Kristjánsdóttir stóð sig eins og hetja!“ skrifar Þorsteinn á Facebook við myndband af litla snáðanum.
Fókus óskar þeim innilega til hamingju.