Uppfærsla Borgarleikhússins á sígildu leikriti Shakespeares, Ríkharði III, hefur hlotið einróma lof gagnrýnanda og ku aðalleikarinn Hjörtur Jóhann Jónsson standa sig stórvel í krefjandi hlutverki.
Helsta einkenni Ríkharðs III er að hann lítur heldur ófrýnilega út og ber Hjörtur Jóhann myndarlega kryppu í stykkinu og haltrar.
Í stuttu og snörpu myndbandi frá Borgarleikhúsinu má sjá hve marga þarf til að umbreyta Hirti Jóhanni í Ríkharð III, en myndbandið má sjá hér fyrir neðan: