Þórdís Imsland, sem var einn keppanda í Söngvakeppninni, birti á Facebook á föstudaginn ljúfa ábreiðu af laginu Hatrið mun sigra eftir Hatara. Hér fyrir neðan má hlusta á ábreiðu hennar.
Þetta er það fyndnasta sem ég hef séð á ævinni https://t.co/kuQmzbXNNt
— Haukur Bragason (@HaukurBragason) February 18, 2019
Hljómsveitinni hefur verið spáð sigri af mörgum og telja erlendir áhugamenn um Eurovision að þarna sé kominn besti möguleiki Íslands til að ná árangri í keppninni í ár. „Ég skellti í ljúfa ábreiðu af þessu frábæra lagi frá Hatari. Hlakka til að fylgjast með Söngvakeppnin annað kvöld,“ skrifar Þórdís
Ábreiða Þórdísar hefur hlotið mikið lof á samfélagsmiðlum. Haukur Bragason, athafnamaður og séntilmenni, segir til að mynda á Twitter: „Þetta er það fyndnasta sem ég hef séð á ævinni“
https://www.facebook.com/thordisimsland/videos/10158635237322925/UzpfSTExMzMyODk5Nzk6MTAyMTc2ODc0Mzk0MzQ0MzQ/?__tn__=%2Cd-]-h-R&eid=ARAFBda6HFLFuVEcRGIuhxvVf6UCXwZTxfz8X06ymxj4LFHSlBjlFaIYmH1_EFFQi2wqnECBly9PhzKJ