Tónelska parið Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, eða Sigga Eyrún, og Karl Olgeirsson eignuðust barn saman í morgun. Sigga Eyrún tilkynnti gleðifréttirnar á Facebook rétt í þessu.
„3kg & 15gr af hamingju mættu í heiminn kl.8:58 í morgun. Allir hressir,“ skrifar Sigga Eyrún í stöðuuppfærslu.
Sigríður Eyrún, eða Sigga Eyrún, og Karl hafa verið saman í rúm fimm ár og hafa notið mikillar velgengni í tónlistinni. Voru þau til dæmis hársbreidd frá því að fara út fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2014 með lagið Lífið kviknar á ný sem þau sömdu saman.
Fókus óskar parinu innilega til hamingju með barnalánið.