fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Lovísa syndir gegn straumnum: „Það er hvorki gaman né spennandi að vera normal“

Tómas Valgeirsson
Þriðjudaginn 22. janúar 2019 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lovísa Tómasdóttir er 27 ára klæðskeri, förðunarfræðingur, verslunarstjóri og hönnuður sem hefur verið á rjúkandi uppleið á síðustu misserum. Hún lýsir sér sem hreinræktaðri „föndurkerlingu“ sem þrífst á hugmyndaflugi sínu og sköpunargleði annarra, en hún hefur vakið talsverða athygli sem hönnuður verslunarinnar Kjólar og Konfekt, sem margir segja að sé eitt best geymda leyndarmál miðbæjarins. Síðar gerðist hún lykilhönnuður Rokks og rómantíkur, sem er systurbúð Kjóla og Konfekt, þó að stíllinn sé allt annar.

Stíl Lovísu og handbragð má finna víða, þó viðkomandi geri sér ekki grein fyrir því, og segir hún að mest gefandi tilfinningin sé að ganga um bæinn og sjá fólk klæðast einhverju sem hún bjó til sjálf. Hún lýsir umræddum stíl sem mjög breiðum en mestmegnis „retró, pönk og litríkum .“

Auk kjólasaums hefur Lovísa verið að dífa burstanum í förðun og verið í búningadeild fyrir sjónvarpsþætti, þar á meðal þættina Venjulegt fólk, auk þess að hafa gegnt störfum sem fatahönnuður fyrir dragdrottninguna Gogo Starr, hina alræmdu spákonu Siggu Kling og fjöldann allan af tónlistarfólki. Hún er einnig mikill RuPaul‘s Drag Race aðdáandi. „En hver er það ekki?,“ spyr hún hressilega.

Meira er meira

Lovísa segir lykilinn að sinni hamingju fylgja sköpunargleðinni og ákvörðuninni að leyfa hinu skrítna að njóta sín. „Fyrir mér, í fatahönnun, er ekkert til sem heitir of klikkað eða yfirdrifið. Það er aldrei hægt að hafa of mikið glingur, eða glimmer eins og áður kom fram, sem hún segir mikinn misskilning oft. Það þýðir ekkert að spyrja mig hvort eitthvað sé „of mikið,“ því í langflestum tilfellum segi ég fólki að bæta meiru við. Það er ekki til neinn staðall fyrir svona. Ef það talar til viðkomandi, þá hvet ég þann einstakling til að taka á móti því með opnum örmum.“

Þennan kjól hannaði Lovísa fyrir Regínu Ósk þegar hún hélt ABBA-tónleika.

Aðspurð um innblástur verka sinna og almennan stíl nefnir hún Cher, Madonnu og jafnvel David Bowie.
Lovísa segir það vera sér eðlislægt að vera skrítin. Hún segir mögulegt að þetta hafi blundað í henni frá æsku. Þá reyndi hún mikið að vera eins og flestir hinir krakkarnir og var alltaf haldin feimni eða meðvitaðri ákvörðun um að skera sig ekki úr hópnum, ákvörðun sem hún taldi vera skynsamlegust á þeim tíma. Eftir á að hyggja er hún sannfærð um að betra hefði verið að finna sinn eigin stíl og karakter frá upphafi.

„Það er hvorki gaman né spennandi að vera normal að mínu mati,“ segir Lovísa. „Ég elska að klæða mig upp í einhverju sem er örlítið furðulegt eða vekur smá athygli, eitthvað sem er skemmtilegt að horfa á. Það er miklu áhugaverðara að vera öðruvísi og ég elska það.“

Súrsætt að kveðja systkinin

Dagur í lífi Lovísu hefst alltaf á því að hún finnur sér flík sem samsvarar því hvernig henni líður þann morguninn. Þá setur hún rétta tónlist á fóninn og gefur tóninn fyrir framhald dagsins.

„Stundum þarf ég að tæma fataskápinn til að ég finni flík sem endurspeglar það í hvernig skapi ég er,“ segir hún. „Ef mér líður ótrúlega vel og til í alls konar áhættur, þá skipta litir mig miklu máli. Ef ég stend ekki frammi fyrir góðum degi þá geng ég nánast bara í svartri mussu.“

Í frítíma sínum finnst henni gaman að fara í Góða hirðinn og finna ýmis konar dót til að gefa því nýtt líf, hvort sem það er eitthvað gamalt glingur sem má endurvinna eða ónýtar dúkkur sem gætu nýst sem kransaskraut.

Lovísa hefur saumað frá því hún var barn. Kunnáttuna fékk hún frá móður sinni og segir hún fyrsta stóra verkefnið sitt hafa verið þegar hún saumaði sinn eigin fermingarkjól. Hún segir þá ákvörðun hafa verið gríðarlegan létti fyrir móður sína, að þurfa ekki að leggja í leiðangur að finna rétta kjólinn.

Æska Lovísu mótaði hana og segir hún það gefandi að hafa alist upp með fóstursystkinum. Lovísa er miðjubarn og á þrjú systkini en foreldrar hennar tóku reglulega að sér fósturbörn. Þetta segir hún hafa skipt sköpum í sínu uppeldi og viðhorfi gagnvart fordómum og segir það ótrúlega gefandi hugsun að taka á móti fósturbörnum úr misjöfnum aðstæðum.

Reynslan að eignast fóstursystkini var þó þyrnum stráð þegar kom að því að kveðja hvert barn sem á heimilið kom. Það er henni lykilatriði í lífinu að viðhalda jákvæðu viðhorfi og að leyfa ekki leiðindapúkum að slá sig niður.

Lovísa kláraði náttúrufræðibraut en áttaði sig á því við námslok að sú stefna væri ekki sniðin fyrir hana. „Mér fannst ég verða að gera eitthvað með höndunum og skapa eitthvað nýtt og spennandi. Ég er ekki skrifstofutýpa.“

Skiptir máli að spegla sig

Nýlega sagði Lovísa upp störfum hjá Kjólum og Rokk til að sækja í aðrar áskoranir, efla sjálfstæðið í sínu fagi og mæta eftirspurn annarra verkefna sem hafa boðist henni. Hún fullyrðir þó að hún verði alltaf með annan fótinn í þessum verslunum sem mótuðu hana.

„Draumurinn var alltaf að verða hönnuður, en maður getur ekki stokkið beint á þann draum ef maður kann ekki grunninn. Þess vegna ákvað ég að fara í klæðskerann, sem var hárrétt ákvörðun fyrir mig.“

Forsíðumynd fyrsta tölublað tímarits Kjóla og Konfekts

Hún fullyrðir að besti skólinn sem hún hafi verið í hafi verið reynslan í Kjólum og konfekt. Andrúmsloftið þar snýst um að vera maður sjálfur og hafa einfaldlega gaman. Sköpunargleði hennar fékk lausan taum og gekk mottóið yfir að föt séu skemmtileg og þurfi því að hafa gaman.

„Ég braust mjög mikið úr skelinni með því að vinna þarna, að vera í kringum ótrúlega jákvætt fólk og það hefur mótað svolítið framtíð mína í faglegu hugarfari: „Hafðu gaman af því sem þú gerir eftir allra bestu getu, annars ertu að sóa tímanum þínum.“

Lovísa fer fögrum orðum um Önnu Kristínu, áðurnefnda lærimóður sína og vonar að fleiri í skapandi störfum finni fyrir þeirri heppni að geta fengið leiðsögn frá fyrirmynd sem samsvarar eigin persónuleika. Árið 2016 tóku þær stöllur í Kjólum og konfekt upp á því að hanna kjóla í íslenskum fánalitum. Þetta var gert í tilefni þess að íslenska karlaliðið í fótbolta tók þátt í EM.

Lovísa segir það hafa verið skyndihugmynd að vaða í slíka hönnun en engin önnur verslun hafði á þeim tímapunkti selt eða útbúið kjóla í þeim stíl, eftir því sem við best vitum. Eðlilega varð eftirspurnin alveg gríðarleg og voru ófáir sem flykktust að til að grípa kjól og sýna landsliðinu stuðning í réttu taui. Lovísa er mjög þemadrifin manneskja og var einnig til að mynda hefð að stilla upp kjólum í regnbogalitum þegar Hinsegin dagar voru.

„Fólk gerir sér ekki alltaf grein fyrir því að fatahönnun er list og það er svo gaman að týna sér í henni,“ segir hún. „Listinni fylgja tilfinningar og fötin geta speglað hvernig þú sérð þig sjálfan í heiminum.“

„Ég hef aldrei sofið eins vel og eftir að ég málaði svefherbergið mitt bleikt“
„Stund á milli stríða“
„Fögnum fjölbreytileikanum“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Snorri vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð og Bergþór bönkuðu upp á

Snorri vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð og Bergþór bönkuðu upp á
Fókus
Fyrir 4 dögum

Álfrúnu blöskrar ljótar athugasemdir um pabba sinn og Felix á samfélagsmiðlum

Álfrúnu blöskrar ljótar athugasemdir um pabba sinn og Felix á samfélagsmiðlum