Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður hefur verið haldin á Ísafirði á hverju ári síðan 2004. Hátíðin fer fram um páskana, í ár dagana 19. og 20. apríl.
Í ár koma fram Mammút, Todmobile, JóiPé og Króli, Jónas Sig, Auðn, Svala, Herra Hnetusmjör, Teitur Magnússon, Berndsen og margir fleiri.
Ókeypis er inn á Aldrei fór ég suður og er öll vinna unnin í sjálfboðavinnu, þetta er því hátíð fólksins!