Í Alþýðublaðinu forðum daga birtust myndir af nýfæddum nýburum. Færri komust að en vildu en eitt af þeim undurfögru börnum sem hlutu náð fyrir augum ritstjórnar í janúar 1991 var ónefnd stúlka þeirra Ernu Karenar Sigurbjörnsdóttur og Ragnars Norðfjörð. Það var engin önnur en samfélagsmiðlastjarnan og edikunnandinn Sólrún Diego.
Í byrjun 21. aldarinnar var enginn maður með mönnum nema viðkomandi héldi úti blogg-síðu. Fjölmiðlar reyndu að skyggnast inn í þennan heim og birtu iðulega brot af því besta. Í DV mánudaginn 20. júní 2005 birtist stuttur moli af bloggsíðu ungs Mosfellings, Steinþórs Hróars Steinþórssonar. Sagðist Steinþór, sem síðar varð þekktur sem Steindi Jr., hlakka mjög til sumarsins. Ætlaði hann að vera duglegur að grilla og drekka hvítan rússa og skipuleggja partí.
Í september 1981 birti tímaritið Vikan tvær gátur eftir ellefu ára gamlan Reykvíking, Pál Óskar Hjálmtýsson að nafni. Annars vegar flóknustu orðaþraut samtímans og hins vegar skemmtilega myndagátu. Hlaut Páll Óskar tímabundna áskrift að Vikunni að launum.
Í ágúst 1987 sendi átta ára gömul stúlka úr Reykjavík, Ásdís Rán Gunnarsdóttir, þessa fallegu mynd inn til ritstjórnar BarnaDV.
Í spurningu vikunnar hjá Dagblaðinu þann 26. október var níu ára gömul blaðsölustúlka spurð að því hvort leyfa ætti hjólreiðar á gangstéttum. Húsavíkurmærin Linda Pétursdóttir var ekki á því en viðurkenndi þó að hún hjólaði stundum á gangstéttunum í heimabæ sínum.