fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Elín Kára: „Ef þú værir með alvarlegan sjúkdóm myndir þú hafa tíma fyrir hann?“

Elín Kára
Þriðjudaginn 7. ágúst 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elín Káradóttir heldur úti blogsíðu undir eigin nafni þar sem hún skrifar um jákvætt hugarfar, fjármál og lífstíl. Í þessum pistli fjallar hún um af hverju við finnum afsakanir til að hreyfa okkur ekki.

Ég hef ekki tíma.

Algengasta afsökun fólks fyrir því að hreyfa sig ekki er að það hefur ekki tíma. Þessi afsökun er líka notuð til að réttlæta það að borða skyndibita oft í viku. Þessi afsökun er líka notuð fyrir svo margt annað eins og við þekkjum öll. Enda er tíminn sennilega eitt það dýrmætasta sem við öll eigum og um leið gerir tíminn okkur öll jöfn – við höfum öll jafnmikinn tíma. Spurningin er bara; hvernig forgangsraðar þú tímanum þínum?

Ég skal viðurkenna það að ég hef þurft að díla aðeins við þessa afsökun og ég nota hana þannig að ég hafi ekki tíma til að hreyfa mig.

En bíddu aðeins Lína, Heilsu-Lína?!? Ef þú værir með alvarlegan sjúkdóm sem krefst þess að þú þurfir að sinna honum í 30 mín á dag – myndir þú hafa tíma fyrir það? Já! Alltaf! Af hverju hef ég ekki tíma til að hreyfa mig í 30 mínútur á dag en ég myndi samt gefa alvarlega sjúkdómnum mínum þennan tíma?? Þetta er spurning um forgangsröðun! Og já – ég þarf að minna mig á þetta eins og svo margir aðrir.

Við erum öll að heyra af fólki, rétt komin á miðjan aldur og mögulega búið að tapa stórum hluta af heilsunni sinni – vegna þess að það gaf sér ekki tíma til að sinna henni. „Of mikið að gera í vinnunni“, „ég þarf að taka til og halda heimili“, „mér endist ekki dagurinn til að gera allt“. Þetta eru setningarnar sem maður heyrir en svo BúMM – heilsan er allt í einu farin. Þetta er kannski dramatískt en samt sem áður raunveruleiki margra. Ég hef ákveðið að læra af þessu fólki og gera hlutina öðruvísi.

Þess vegna ætla ég að gefa mér tíma fyrir 30 mín hreyfingu – því ég á það skilið.

Hver er staðan eftir viku fjögur?

Eins og einhverjir hafa tekið eftir þá er ég í sjálfskipuðu prógrammi sem ég kalla #10peppvikur. Þar sem ég hvet sjálfa mig áfram í átt að betra lífi, mjaka mér nær kjörþyngd og vera orkumeiri. Einhverjir eru að fylgjast með mér á Instagram og sjá hvað ég er að elda og bralla í kringum #10peppvikur.

Staðan eftir vikuna er svona:

Matarræði: Mér gengur vel að halda skammtastærðinni í eðlilegu hófi. Ég næ annað slagið í vigtina til þess að æfa augun í því að sjá hver eðlilegur skammtur er til dæmis af kjúkling, fisk eða kjöti. Í heildina litið er þessi vika búin að ganga vel.

Hins vegar átti ég eitt veikleikamóment í vikunni. Mig langaði alveg rosalega í bragðaref. Ég gekk um húsið heima hjá mér og reyndi að drepa niður löngunina í þvottastússi og einhverri tiltekt en ekkert gekk. Svo ég ákvað að fara og tók vigtina mína með til þess að vita nákvæmlega hvað væri að fara ofan í refinn minn. Eftir að hafa sett það inn í MyfitnessPal appið þá komst ég að því að bragðarefurinn, sem ég slafraði í mig á einhverjum 5 mínútum innihélt 1.158 hitaeiningar! Má það bara??

Ég átti klárlega ekki inni fyrir þessum hitaeiningafölda þarna rétt undir tíu að kvöldi til. Á sama tíma var þetta eiginlega nauðsynlegt, því mig hefur ekkert, þá meina ég EKKERT langað í bragðaref síðan ég komst að þessu.

Hreyfing: Tveir göngutúrar og tvisvar fór ég og gerði smá æfingar í sirka 10 mínútur inn í bílskúr. Tók svo laugardagsæfingu.

Laugardagsæfing: 1 mín magaæfingar, 1 mín armbeygjur, 1 mín hnébeygjur, 1 km skokk/hlaup.

Vellíðan: Mér líður vel. Ég væri til í að hlusta meira á góðar og peppandi hljóðbækur þá myndi mér líða MJÖG vel. Það er markmið fyrir komandi vikur.

Vigtin: -1,4kg.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“