fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Jóhannes Haukur leikur rússneskan skúrk í þriðja sinn: „Hvaða rugl er ég eiginlega kominn út í?“

Tómas Valgeirsson
Laugardaginn 25. ágúst 2018 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það hættir aldrei að vera skemmtilegt að hitta fólk sem maður hefur séð í bíómyndum og lítur upp til. Maður kemst síðan alltaf að því að þetta er bara venjulegt fólk, þegar maður byrjar að spjalla og reynir að kynnast því. En þetta lið er yfirleitt alltaf lágvaxnara en maður heldur,“ segir Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari, en hann er um þessar mundir staddur í Suður-Afríku við tökur á ofurhetjumyndinni Bloodshot þar sem hann stangast á við stórleikarann Vin Diesel.

Þar að auki leikur hann annað aðalhlutverkið í ævintýramyndinni Alpha, en hún verður frumsýnd í næstu viku og hefur hingað til fengið góðar viðtökur gagnrýnenda. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem íslenskur leikari fer með annað aðalhlutverkið í Hollywood-stórmynd.

Þegar blaðamaður hafði samband við Jóhannes sat hann í förðunarstólnum og beið eftir næturtökum, en tökutímabilið var rúmlega þrjár vikur og leyndi leikarinn ekki spennu sinni fyrir verkefninu. „Ég var að leika með aðalmanninum í gærnótt, honum Vin Diesel, og fékk að skoða tökurnar þegar við vorum búnir. Þá sá ég mig og hann standa saman í ramma og hugsaði bara: „Bíddu, hvaða rugl er ég eiginlega kominn út í? Mér finnst þetta svo ógeðslega töff!“ segir Jóhannes, en þess má geta að upphaflega stóð til að ráða leikarann og tónlistarmanninn Jared Leto í þetta hlutverk.

Vin Diesel í stuði.

Fullmikið blótað

Bloodshot er byggð á samnefndri teiknimyndasögu sem segir frá fyrrverandi hermanni, sem leikinn er af Diesel, sem er gæddur yfirnáttúrulegum kröftum. Hann leitar hefnda á þeim sem gerðu hann að því sem hann er og mætir þar á meðal illkvittna Rússanum Nick Baris sem Jóhannes leikur. Þetta ku vera í þriðja skiptið sem Jóhannes leikur rússneskt illmenni og segir hann að það sé yfirleitt töluvert skemmtilegra að bregða sér í hlutverk skúrks.

„Maður hefur svo mikið frelsi þegar maður leikur illmenni,“ segir Jóhannes. „Maður getur gert þá pínu klikkaða og er oft beðinn um að prófa mismunandi hluti í tökunum. Það er kannski sagt við mann: „Vertu aðeins meira klikkaður núna“ en svo getur komið á móti „Nei, þetta var fullklikkað“,“ segir hann og hlær.
„Ég lenti í því núna nýlega að ég var beðinn um að spinna í senunni sem ég var í, þannig að ég fór að blóta svolítið mikið og sagði alræmda f-orðið. Leikstjórinn kom þá til mín, alvarlegur og sagði: „Við fáum bara eitt „fokk“ í myndinni og þú færð það ekki. Það er á hreinu“.“

Þá útskýrir Jóhannes að framleiðsla myndarinnar styðjist við hinn svonefnda PG-13 aldursstimpil í Bandaríkjunum, en í þeim tilfellum er eingöngu leyfilegt að nota „f-orðið“ einu sinni. „Mögulega fær Vin Diesel það, en rússneska illmennið er voðalega kristilegt í orðaforðanum.“

Jóhannes með fjölskyldunni á tökustað í Bandaríkjunum.

Grasið grænna hinum megin

Jóhannes hefur gert það gott að undanförnu og mun einnig sjást á næstunni í kvikmyndinni The Good Liar með Ian McKellen og Helen Mirren í aðalhlutverkum. Síðar mætir hann þeim Jake Gyllenhaal og Joaquin Phoenix í vestranum The Sisters Brothers en auk þess gegnir hann stórum hlutverkum í Netflix-þáttunum The Innocents og Origin.

Utan vinnunnar lýsir Jóhannes sér sem ósköp venjulegum fjölskylduföður sem búsettur er í Laugardalnum. Aðspurður hvernig gangi að halda jafnvægi á svona mörgum erlendum verkefnum og taumhaldi á börnunum segir hann það ganga ljómandi vel og að konan og börnin séu oft með í för þegar tökur fara fram erlendis.

„Það er eitt með þessa krakkaorma. Þau eru búin að heimsækja hverja höfuðborgina á fætur annarri þegar við flytjum þau á tökustaði, við höfum farið til Ungverjalands, Kanada og Sviss en það eina sem þau tala um er að þau fái aldrei að fara til Tenerife,“ segir hann. „Grasið er alltaf grænna hinum megin.“

Aðspurður um kvikmyndina Alpha segir hann eftirvinnsluna hafa tekið sinn tíma enda liðin tvö ár frá því að tökum myndarinnar lauk. Hins vegar bætir leikarinn við að aldrei hafi upphaflega staðið til að hann fengi jafn stórt hlutverk í myndinni og síðar varð raunin.

Alpha gerist fyrir tuttugu þúsund árum á meginlandi Evrópu og segir frá ungum dreng. Í miðri veiðiferð með föður sínum verður hann viðskila við föður sinn og aðra veiðifélaga þeirra. Þá neyðist hann til þess að sjá um sig sjálfur í fyrsta sinn á ævinni og finna leiðina heim áður en veturinn skellur á. „Ég var upphaflega ráðinn í miklu minna hlutverk, sem einn af veiðimönnunum,“ segir Jóhannes. „Leikstjóranum leist ágætlega á mig fyrir föðurhlutverkið en kvikmyndaverið vildi fá einhvern þekktari, helst eitthvert stórnafn í þetta.“

Barist fyrir Jóa

Feðgarnir saman. Jóhannes og Kodi Smit-McPhee.

Að sögn Jóhannesar er það stráknum í aðalhlutverkinu, Kodi Smit-McPhee, að þakka að hann hafi landað stærri rullunni. Kodi tók slaginn við framleiðendur Alpha og krafðist þess að Jóhannes fengi að leika föðurinn. „Það gekk svona vel að framleiðendur samþykktu það og ég fékk hlutverkið í kjölfarið,“ segir Jóhannes og bætir við að strangt undirbúningsferli hafi tekið við í kjölfar jákvæðu fréttanna. Leikarinn þurfti ekki aðeins að koma sér í betra form til þess að leika veiðimanninn heldur fylgdi hlutverkinu líka kennsla á fornu tungumáli sem er í raun og veru ekki til.

„Það er eitthvert félag fólks sem sinnir því verkefni að búa sérstaklega til tungumál fyrir kvikmyndir og við vorum með sama lið og bjó til allt álfamálið fyrir Lord of the Rings. Þeir búa líka til tungumál fyrir Game of Thrones og Superman-þættina Krypton. Þau eru fengin til þess að búa til fornmál þessa fólks sem var uppi fyrir tugþúsundum árum, sem byggt er á frumbyggjamálum einhverra ættbálka,“ segir Jóhannes.

„Ég þurfti að læra þetta tungumál og það lendir svolítið á mér að vera með lengri texta þar sem ég leik pabbann og er alltaf að útskýra hluti fyrir stráknum. Ég fékk lengri kafla af textum en aðrir og eyddi klukkutíma eða tveimur á dag í að reyna að leggja þetta á minnið. Þetta eru náttúrlega bara einhver hljóð sem eru ekkert lík neinu og það var örlítið erfitt að læra þetta helvítis tungumál,“ segir hann kátur. [Jóhannes fékk aðeins eitt blótsyrði í þessu viðtali og er kvótinn hér með uppfylltur].

Gæti lent á klippigólfinu

Jóhannes hefur ekki enn séð Alpha og segist vera örlítið smeykur um að ýmislegt lendi á klippigólfinu. „Ég tók upp langar einræður, sem ég eyddi alveg ótrúlegum tíma í að reyna að ná á þessu tungumáli og ég veit ekki hversu mikið af því er eftir í myndinni,“ segir hann. „Það var mikið haft fyrir þessu en maður verður auðvitað bara að taka því eins og hverju öðru ef það gerist. Það er líka ástæða fyrir því að leikarar fá ekki að klippa bíómyndir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 2 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“