LandliðsmarkvörðurÍslands í knattspyrnu, Hannes Þór Halldórsson, er nú atvinnumaður í Asebaijan. Fjölskyldan leitar nú að au-pair sem yrði búsett hjá þeim hjónum í Bakú, höfuðborg landsins. Fyrir marga gæti þetta hljómað sem spennandi tækifæri.
Eiginkona Hannesar, Halla Jónsdóttir, birtir eftirfarandi atvinnuauglýsingu á Facebook:
Við Hannes Þór Halldórsson erum að leita að aui-pair sem hefur áhuga á að búa með okkur í Bakú, höfuðborg Asebaijan. Þetta er mjög skemmtileg og áhugaverð borg og okkur líður vel hérna. Ef þið þekkið einhvern sem gæti haft áhuga á þessu þá eru allar ábendingar vel þegnar. Netfangið mitt er hallajonsdottir1@gmail.com.