Twitter vikunnar er fastur liður hér á DV.is á fimmtudögum þar sem við skoðum hvaða tíst slógu í gegn í vikunni. Húmorinn réði ríkjum á Twitter þessa vikuna og greinilegt að það er enn sumr í þjóðinni.
Við tókum saman vikuna á Twitter og þar kennir ýmissa grasa – eins og ávallt. Gjörið svo vel.
Hvaða litli pottormur er að sturta í sig e-pillum og senda fyrirspurnir á Vísindavefinn pic.twitter.com/oPpv14JfQV
— Hrafnhildur Agnarsdóttir (@Hreffie) August 15, 2018
Note to self, vera alveg 100% viss um að drengirnir sem þú ert að þjálfa viti þegar þú ert að grínast í þeim. pic.twitter.com/OswWczGzeV
— Albert Ingason. (@Snjalli) August 15, 2018
Arion banki í Borgartúni er með frystikistu fulla af emmess íspinnum fyrir börnin.
Í morgun kom eldri maður inn um dyrnar, fór beint í frystinn, tók pinna.
Starfsmaður Arion, kaldhæðinn: "Menn eru bara ungir í anda"
Eldri maður: "Ís er ís!"
Svo maulaði hann bara pinnann.
— Björn Teitsson (@bjornteits) August 15, 2018
*mamma að finna lummu inni hjá mér (vissi ekki að ég tæki í vörina)*
ma: STARKAÐUR PÉTURSSON hvaaað ER þetta?
ég: pic.twitter.com/rrYRqWY3fv
— Starkaður Pétursson™ (@starkadurpet) August 12, 2018
flottur þessi, sem keyrði burt með dæluna í og reyndi síðan að setja hana aftur saman pic.twitter.com/fpbnjmYRxe
— Elfa Falsdóttir (@elfafals) August 14, 2018
Versta fólk á jörðinni er fólkið sem keyrir framhjá bílabiðröð á þrengdri götu til að kötta inn fremst. Næstversta fólkið er fólkið sem hleypir þeim.
— $ (@SveinnKjarval) August 14, 2018
Sex ár liðin og ég hugsa ennþá stundum "Jæja, ég er amk ekki þessi" þegar ég klúðra einhverju í vinnunni. pic.twitter.com/zD1aRJMKyr
— Anna Berglind (@annaberglind) August 14, 2018
Var ekki hægt að hafa aðra mynd svona í ljósi fyrirsagnarinnar? pic.twitter.com/GnS11gma4H
— Auðunn Blöndal (@Auddib) August 14, 2018
Síðasta myndin sem náðist af hinum svokölluðu „strætóskýlum“, tekin í febrúar 2001 þegar What Women Want var í bíó. https://t.co/NryRiaV5s8
— Stígur Helgason (@Stigurh) August 14, 2018
Já ok er í airbnb íbúð og eigandi hennar heitir bara aaron kaan
— yung pung (@arnarfreir) August 13, 2018
Afsakið en ég held að enginn í sögunni sé svona dannaður að drekka Ópal ? pic.twitter.com/j5OK9wVnTD
— Silja Björk (@siljabjorkk) August 13, 2018
Sturluð markaðssetning hjá Laxar Fiskeldi ehf pic.twitter.com/FSZR9UDjLe
— Emmsjé (@emmsjegauti) August 13, 2018
Eiginkonan: hvernig eigum við að segja grey barninu frá þessu?
Ég: engar áhyggjur ég slaufa þessu
Vesalings barnið: *er að teikna fjölskyldumynd*
Ég: heyrðu góði ef ég væri þú þá myndi ég tússa ansi vel yfir köttinn 😉
— Jóhann Páll (@sjomli) August 12, 2018
Muniði eftir stúlkunni sem starði á hafið? Þetta er hún í dag. Feel old yet? pic.twitter.com/WVUBwn645b
— gunnare (@gunnare) August 11, 2018
Vinur minn sagði mér að hann hefði einu sinni verið með word skjal yfir allar þær stelpur sem hann hafði sofið hjá. Fyrstu viðbrögð min voru: afhverju í andskotanum notaðiru ekki Excel ?
— Júlía Eyfjörð (@juliaeyfjord) August 10, 2018