fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Daníel Freyr elskar að láta kveikja í sér

Tómas Valgeirsson
Laugardaginn 7. júlí 2018 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grindvíkingurinn Daníel Freyr Elíasson er fæddur ofurhugi, en hann hefur vakið athygli sem áhættuleikari og skilgreinir sig sem hreyfifíkil í húð og hár.

Daníel byrjaði 17 ára að æfa parkour með A.T.S., sem hefur aðstöðu hjá Gerplu. Eftir það fór hann til Þýskalands með öðrum parkour-þjálfurum og kynntist þar manni sem skipuleggur áhættuatriði. Eftir nokkrar tilraunir kviknaði mikill áhugi á áhættuleik hjá Daníel Freyr, sem seinna leiddi til þess að hann fór að vinna við að láta bókstaklega kveikja í sér eða láta sig hrapa fram af húsþökum,

„Þegar ég var krakki var ég litli vitleysingurinn í Grindavíkinni sem var klifrandi upp á öll húsþök, grindverk og annað, áður en maður vissi í rauninni hvað það var,“ segir Daníel, sem segist hafa orðið fyrir miklum áhrifum frá frönsku kvikmyndinni Yamakasi frá 2001 en þar fara þekktir parkour-meistarar með helstu hlutverk. Einnig bætir hann við að hópurinn í Jackass hafi vakið mikinn áhuga hjá honum, en hann viðurkennir að sá hópur sé ekki beint efni í góðar fyrirmyndir að öllu jöfnu. „Það kom alveg fyrir að maður fékk skilaboð frá múttu þegar sást til manns,“ segir hann og bætir kátur við að „Drullaðu þér niður, krakkaandskoti og komdu heim“ hafi verið vinsæl skilaboð í slíkum aðstæðum.

Hættulegt en róandi

Árið 2016 lauk Daníel námskeiði hjá European Stunt School í Danmörku. Í dag er hans aðalstarf áhættuleikur og kennsla hjá skóla sem heitir Stunt 360. Daníel stundar parkour enn af fullum krafti en segist meira einbeita sér að „fílósófíunni“ á bakvið íþróttina. „Það er alltaf erfitt að útskýra hugarfarið á bakvið parkour-agann, en til að reyna að segja það á stuttu mannamáli, þá er það að þekkja takmörkin, vita hvenær maður getur ýtt sjálfum sér út að ystu mörkum og hvenær það verður óæskilegt. Að reikna út áhættu og lesa umhverfið á fljótan og skilvirkan máta, en fyrst og fremst, að hreyfa sig, halda sér í formi á nothæfan hátt, vera hógvær, hreinskilinn, og hugrakkur,“ segir Daníel.

Að sögn hreyfifíkilsins er besta tengingin á milli parkour-íþróttarinnar og áhættuheimsins að geta haldið ró í krefjandi aðstæðum. „Alveg frá því að ég var guttinn prílandi á öllu mögulegu, hef ég einhvern veginn fundið mikla ró þegar ég er kominn upp í ákveðnar hæðir, það er svona ákveðið „zen-móment“ fyrir mig að standa á brúninni, loka augunum og bara njóta.“

Daníel bætir við að hann hvetji fólk til þess að vera duglegra að taka áhættu, en þá á þeim forsendum að áhættan sé byggð á traustum útreikningum. „Það er til dæmis ekkert hættulegra að labba á 4 metra breiðum vegg í 20 metra hæð en að labba á gangstétt, á meðan maður hefur tekið réttu skrefin til að venjast því að vera uppi í svo mikilli hæð,“ segir hann.

Auðvelt að fótbrjóta sig

Daníel segir að á svona áhættunámskeiðum sé farið yfir fjölbreytta hluti, allt frá vopnaburði til trampólíns og parkour-æfinga. Einnig er hann mikið í því að kenna öðrum listina að læra að hrapa eða láta sig falla. Aðspurður hvað það feli í sér líkir hann ferlinu við það að læra að labba. „Maður þarf að skríða fyrst, síðan standa upp og styðja sig við,“ segir hann.

„Við byrjum á jörðinni á litlum dýnum og lærum að lenda á þessum gullna stað á bakinu þar sem maður nær að fletjast vel út, sérstaklega þegar kemur að loftpúðum. Ég man eftir atviki á Akureyri fyrir einhverjum árum síðan; þá voru þeir með púðann sem er notaður í Hlíðarfjalli, svona púðar sem eru notaðir fyrir skíði og snjóbretti fyrir æfingastökk og það er ekkert mál að nota þá í ákveðnum hæðum. En þeir voru með púðann opinn fyrir almenning á Bíladögum árið 2015 og fólk fótbraut sig og lenti í alls konar veseni og það er vegna þess að sá hópur hafði ekki lært að lenda á svona púðum, þeir fóru bara beint í gegn og lentu á löppunum.“

Þá kemur upp mikilvæg spurning: Hvað finnst foreldrum hans í dag um að Daníel sé enn að spreyta sig í ofurhugaleik? „Það er algjörlega öfugsnúið í dag frá því sem var þá,“ segir hann og bætir við að hann eigi reyndar til að skjóta línu á múttuna og segja: „Sjáðu! Nú fæ ég borgað fyrir þetta.“ Þá bætir Daníel við að ef hann ætti sjálfur barn sem væri úti að fíflast á sama máta og þegar hann var krakki, væri hjartað sennilega farið að slá svolítið ört. Daníel hefur þó hingað til aldrei slasað sig í áhættuleiknum.

Aðspurður um fyrirmyndir í faginu nefnir Daníel bardaga- og áhættugoðið Jackie Chan og ekki síst Jean Charles Rousseau. „Það þarf ekki að skrolla langt á Instagram-inu hjá honum til að sjá að hann er rosalegur,“ segir Daníel. „Svo er það auðvitað Buster Keaton, en hann var áhættuleikari áður en orðið „áhættuleikur“ var fundið upp.“ Hann vill meina að því fylgir ákveðin kúnst að láta kveikja í sér, en honum þykir það gaman, enda fylgir svona áhættuleik alltaf mikill undirbúningstími. „Hjartað fer samt alltaf aðeins að slá. Það kemur pínu stress, sem er fínt,“ segir Daníel sem býr sig undir að sitja í bifreið í sumar í ljósum logum.

Daníel Freyr í logandi gír.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar