Blaðamaður DV varð vitni af mjög sjaldséðum atburði rétt í þessu. Í dag sást vel til sólar og er það atburður sem íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa ekki orðið vitni af í langan tíma. Hefur þetta orsakað að mikið af einstaklingum hafa yfirgefið heimili sín til að stunda áhugamál sín utandyra og jafnvel hafa nokkrir gerst það djarfir að kveikja í grillinu.
Voru margir hissa þegar undarleg birta sólarinnar lagðist yfir höfuðborgina og voru sumir óttaslegnir og veltu fyrir sér hvort kjarnorkutilraunir ættu sér stað úti á Faxaflóa. Það er hins vegar engan ástæða til að óttast. Við sem eldri erum getum huggað hina yngri með því að segja þeim að þessi undarlega birta kemur frá sólinni. Þeir sem eru búnir að gleyma hvernig blessuð sólin lítur út er bent á að horfa ekki of lengi beint á hana, því það getur skaðar sjón.
Samkvæmt Veðurstofu Íslands mun því miður þetta ástand ekki standa yfir lengi því strax klukkan 02:00 í nótt munu skýin þétta sér yfir höfuðborgarsvæðið og gefa okkur aftur sumarveðri sem við erum von hér á suðvesturhorninu. „Aldrei átti ég von á þessu,“ sagði einn viðmælandi DV sem var á hraðferð að nýta sér síðustu geisla sólar.