Viðar Skjóldal hefur um nokkurt skeið verið mikið á milli tannanna á fólki. Viðar, sem jafnan er kallaður Enski, er með nokkur þúsund fylgjendur á Snapchat. Hann leggur nú spilin á borðið og talar opinskátt um baráttu sína við alkóhólisma í von um að opna umræðuna um sjúkdóminn. Hann segist staðráðinn í að leggja flöskuna á hilluna og hætta að drekka í eitt skipti fyrir öll.
Viðar, sem er 32 ára, er fæddur og uppalinn á Akureyri. Sautján ára gamall flutti hann ásamt fjölskyldu sinni til Reykjavíkur en þar hefur hann meira og minna búið síðan. „Ég ólst upp á Akureyri og þar upplifði ég góða tíma, ég fékk frábært uppeldi og á æðislega fjölskyldu sem vildi allt fyrir mig gera. Ég var efnilegur í fótbolta og spilaði lengst af með Þór á Akureyri. Þegar fjölskyldan ákvað að flytja suður hætti ég í boltanum og ég sé mikið eftir því.“
Það var skömmu eftir að Viðar flutti til Reykjavíkur og hætti að æfa fótbolta sem hann kynntist áfengi. „Ég smakkaði fyrst áfengi þegar ég var 17 ára gamall og það var og verður versta ákvörðun lífs míns,“ segir Viðar og bætir við: „Þegar ég prófaði áfengið leið mér strax vel, það var eins og það hefði fyllt upp í ákveðið tómarúm inni í mér.“
Viðar segir áfengið alla tíð hafa komið í veg fyrir frama hans í lífinu. „Mig langaði alltaf að verða eitthvað en ég hefði getað náð lengra ef áfengið hefði ekki verið að flækjast fyrir mér og verið minn Akkilesarhæll í gegnum lífið,“ segir Viðar.
Eins og áður segir hefur Viðar getið sér gott orð sem snappari en hann viðurkennir að áfengisneyslan hafi oftar en ekki verið til trafala. Á Snapchat-reikningnum, sem Viðar kallar enskiboltinn, hefur hann leyft fylgjendum sínum að fylgjast með sér ræða um ensku knattspyrnuna. Með tímanum hafa snöppin sífellt orðið persónulegri og áhorfendur fengið að kynnast lífi Viðars. Lífi þar sem djammið hefur tekið sinn toll.
„Auðvitað hefur þetta oft og tíðum verið mjög skemmtilegt en líka erfitt. Stundum hef ég ekkert snappað í tvo til þrjá daga en þá er ég að glíma við sjúkdóminn. Ég er bara alkóhólisti,“ segir Viðar, sem bætir því við að hann hafi mikinn áhuga á því að ná langt í fjölmiðlum og standa sig vel.
Viðar segist nú hafa fengið sig fullsaddan af áfengisneyslunni og er staðráðinn í því að taka á vandanum. Hann náði góðum tíma árin 2011 til 2013 þegar hann fluttist til Akureyrar og var edrú í tvö ár. Hann horfir nú til þess tíma. Þá á Viðar átta ára gamla dóttur sem hann vill standa sig fyrir. Dóttir Viðars, Carmen Lind, býr með móður sinni í Bretlandi.
„Það er alltaf möguleiki að koma til baka og bæta sig. Ég gerði það árið 2011 og veit ég get þetta,“segir Viðar og bætir við: „Ég er byrjaður að taka á vandanum og ég ætla að standa mig.“ Hann hefur undanfarna daga verið að leita sér hjálpar hjá AA-samtökunum.
Hann segir umræðuna um Hjört Hjartarson íþróttafréttamann hafa hreyft við sér en eins og DV greindi frá í upphafi vikunnar hefur Hjörtur sagt starfi sínu lausu til að glíma við áfengisfíkn. „Umræðan um Hjört hreyfði við mér og mig langaði mikið að stíga fram og segja mína sögu. Ég finn mikið til með Hirti og ég vona innilega að hann nái bata. Svo vona ég að mín saga geti hjálpað fólki sem er í sömu stöðu og ég er. Ég er góður strákur og vil bara reyna að hjálpa,“ segir Viðar.
Að lokum vill hann benda öllum þeim sem hafa brennandi áhuga á enska boltanum að adda honum á Snapchat undir nafninu enskiboltinn.