fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Góður faðir í fjárhagsvandræðum á flótta undan lögreglunni: Guðmundur Ingi – Hann er ekki vondur maður – Sjáðu myndbandið

Fókus
Laugardaginn 14. júlí 2018 14:05

guðmundur Ingi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Ingi Þorvaldsson er einn þeirra fjölda leikara sem tekur þátt í nýju herferðinni fyrir Reykjavíkur Maraþon Íslandsbanka. Ætlar Guðmundur að styrkja Blátt áfram sem er félag sem vinnur að forvörnum gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum. Herferð Íslandsbanka hefur vakið mikla athygli frá því að hún var frumsýnd. Í nýrri auglýsingu fyrir herferðina er Guðmundur Ingi í hlutverki bankaræningja. Um auglýsinguna segir Guðmundur Ingi:

„Persónan sem ég leik er ofsalega góður faðir í fjárhagsvandræðum og ákveður að redda því í eitt skipti fyrir öll. Það fer ekki vel.“

Í auglýsingum fyrir maraþonið má sjá hina ýmsu íslenska leikara „á hlaupum“ við hinar ýmsu aðstæður. Hafa leikararnir sagt, þá meira í gamni en alvöru að þeir hlaupi nánast aldrei nema í vinnunni. Guðmundur Ingi leikur ekki aðeins úi auglýsingunni, heldur ætlar hann eins og kemur fram hér að ofan að hlaupa hálfmaraþon til styrktar Blátt áfram. Þá má geta þess að leikararnir fá ekki greitt fyrir að koma fram í auglýsingunum. Þá tekur Íslandsbanki á sig allan umsýslukostnað af áheitasöfnun allra hlauparanna í ár og þar með talið leikarahópsins. Þannig er tryggt að hver eins og einasta króna skilar sér beint til viðkomandi málefnis.

Hér má sjá myndskeið um gerð auglýsingarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar