fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Gísli Marteinn hvetur Vesturbæinga til að horfa saman á HM: Setur upp risatjald við Hagavagninn

Margrét Gústavsdóttir
Þriðjudaginn 12. júní 2018 15:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Okkar eini sanni Twitter pabbi og Vesturbæjarprins, Gísli Marteinn Baldursson, hvetur Vesturbæinga til að koma saman við sundlaugartúnið hjá Vesturbæjarlauginni og fylgjast saman með leikjunum á HM.

„Kæru Vesturbæingar. Nú er HM að hefjast og af því tilefni ætla Brauð&co, Hagavagninn, Kaffihús Vesturbæjar og Melabúðin að standa fyrir skemmtilegu Vesturbæjar-áhorfi á leiki íslenska liðsins,“ skrifar Gísli í sérlegan Facebook hóp fyrir íbúa Vesturbæjarins.

„Við ætlum að setja upp risaskjá á sundlaugartúnið (austanmegin, þar sem Hagavagninn er) og langar til að hvetja alla Vesturbæinga til að koma þangað og horfa saman á leikina og hvetja okkar menn til dáða!,“ skrifar hann um leið og hann hvetur íbúana til að mæta með teppi og tjaldstóla og hafa það huggulegt saman yfir leikjunum.

„Við sjáum þetta sem kjörið tækifæri fyrir hverfið og fjölskyldur til að gera eitthvað skemmtilegt saman og skapa góðan hverfis-anda. Nú er bara að hugsa hlýlega til veðurguðanna og fá smá hlé á rigningunni og þá getum við átt frábæra og eftirminnilega upplifun í hverfinu okkar,“ skrifar Gísli sem eins og allir vita er einlægur áhugamaður um borgarmenningu og sérlega góður í að skapa fína stemmningu eins og sést hefur í föstudagsþáttunum hans, Vikan með Gísla Marteini.

Að lokum tekur Gíslil fram að hann sé ekki að auglýsa nein viðskipti:

„Við erum eingöngu að stússast í þessu til að skapa skemmtilega stemningu í hverfinu okkar og vonum að sem flestir taki þátt í því með okkur. Áfram Vesturbærinn og áfram Ísland!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“