fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fókus

TÍMAVÉLIN: „Við létum ekki sjá okkur á almannafæri næstu mánuðina“- Hörmulegt HM flopp árið 1995

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 9. maí 2018 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslendingum hefur sjaldnast verið það tamt að bera sig saman við aðrar smáþjóðir enda er Ísland „stórasta land í heimi“. Að vilja halda Eurovision eða stórmót í íþróttum er hluti af viðleitni okkar til að sanna okkur og slíkt tækifæri gafst árið 1995 þegar Ísland hélt HM í handbolta.

Sigurður Sveinsson ræddi við DV um mótið:

Um miðjan níunda áratuginn urðu þær raddir sífellt háværari innan úr Handknattleikssambandinu að Ísland gæti haldið heimsmeistarakeppnina.

Jón Hjaltalín Magnússon, þáverandi formaður HSÍ, beitti sér fyrir þessu og árið 1988 sóttu Íslendingar formlega um að fá að halda mótið 1994.

Hann gerði sér grein fyrir þeim mikla kostnaði sem fylgdi því að halda mótið en gerði ráð fyrir því að hundruð milljóna myndu koma inn sem gjaldeyrir.

Hingað myndu streyma hundruð blaðamanna og þúsundir gesta.

Tveir af fjórum riðlum áttu að spilast á höfuðborgarsvæðinu, einn á Akureyri og Húsavík og einn sennilega á Austfjörðum. Af þessu tilefni átti að byggja 30 íþróttamannvirki víða um land og eina stóra íþróttahöll í Reykjavík.

En Svíar buðu einnig í mótið og fengu að halda keppnina sem var flýtt um eitt ár vegna skipulagsbreytinga. Íslendingar voru hins vegar ekki af baki dottnir og sóttu um að fá að halda mótið 1995 sem var samþykkt sumarið 1992.

50 manns á leik Svíþjóðar og Brasilíu

Íslendingar voru á nálum í aðdraganda mótsins eins og kristallaðist í leiðara Morgunblaðsins.

Þar stóð: „Mikilvægt er fyrir margra hluta sakir að vel takist til. Í fyrsta lagi er heimsmeistarakeppni haldin hér dýrmæt kynning á landi og þjóð.

Í annan stað er hún mikil lyftistöng fyrir handboltann sem íþróttagrein. Í þriðja lagi færir framkvæmd keppninnar, ef vel tekst til, heim sanninn um það að Íslendingar hafa burði til að standa fyrir íþróttaviðburðum af þessu tagi. Það er ekki slakt veganesti inn í framtíð okkar.“

Mótið fór fram dagana 7. til 21. maí á fjórum stöðum á landinu. Laugardalshöllinni, Kaplakrika í Hafnarfirði, Digranesi í Kópavogi og íþróttahöllinni á Akureyri. Það var töluvert stærra í sniðum en mótið í Svíþjóð 1993 því að liðunum var fjölgað úr 16 í 24. Ljóst var því að kostnaðurinn myndi hækka umtalsvert miðað við það sem áætlað hafði verið árið 1988.

40 milljón króna trygging

Í júní árið 1994 samdi framkvæmdanefnd mótsins við Halldór Jóhannsson hjá ferðaskrifstofunni Ratvís á Akureyri um einkasölu aðgöngumiða. Þá fékk nefndin tryggingu upp á 40 milljónir króna til að undirbúa mótið en aðrir aðilar í ferðaþjónustunni sem rætt var við voru ekki tilbúnir til að taka áhættuna.

Strax var farið að tala um að fáir erlendir gestir myndu koma hingað og á sama tíma hækkuðu hótelin verðið.

Það gekk eftir og salan á miðum var langt undir því marki sem stefnt hafði verið að. Tveimur mánuðum fyrir mótið voru einungis komnar um 8 milljónir í kassann af þeim 80 sem gert var ráð fyrir og einu útlendingarnir sem keyptu miða voru Þjóðverjar.

Hákon Gunnarsson, framkvæmdastjóri nefndarinnar, sagði ekki rétt að gera Halldór einan að blóraböggli en að nýtt átak væri hafið til að bjarga sölunni.

Samkvæmt skilmálum Alþjóðahandknattleikssambandsins þurfti HSÍ að semja við Ríkisútvarpið um upptökur sem síðan voru seldar áfram út í heim. Alls þurfti HSÍ því að greiða 42 milljónir fyrir 100 manna tökulið á stöðunum fjórum og sérútbúna upptökubíla. Þá þurfti að gera töluverðar endurbætur á Laugardalshöllinni og íþróttahöllinni á Akureyri.

Sjónvarpsáhorfið á leikina var gott og rúmlega helmingur þjóðarinnar fylgdist með mótinu. En miðasalan var fyrirsjáanlega slök. Til dæmis mættu einungis 150 manns til að sjá leik Sviss og Bandaríkjanna í Laugardalshöll og aðeins 50 manns sáu Svíþjóð etja kappi við Brasilíu á Akureyri.

HM ´95 var lokamót Sigga Sveins

Verðlaunasæti raunhæft

Íslenska landsliðið stóð á tímamótum árið 1995. Í liðinu voru kempur sem höfðu spilað í meira en áratug eins og Geir Sveinsson, Bjarki Sigurðsson, Sigurður Sveinsson og markvörðurinn Guðmundur Hrafnkelsson og einnig nýstirnin Ólafur Stefánsson og Dagur Sigurðsson.

Mestar vonir voru bundnar við skyttuna Patrek Jóhannesson en vonbrigði að Héðinn Gilsson meiddist fyrir mót. Sigurður segir:

„Það var gríðarleg stemning fyrir þetta mót og við höfðum fulla trú á að við myndum rúlla þessu móti upp. Við æfðum tvisvar á dag í vikur fyrir mótið og vorum í frábæru formi í æfingarleikjunum. Pressan á okkur var mikil enda mótið haldið á klakanum og mikið fjallað um okkur í fjölmiðlum. Við töldum að verðlaunasæti væri raunhæft og það var bara spurning um hvaða litur yrði á plattanum.“

Liðið hóf leik með skyldusigri á Bandaríkjamönnum 27-16 en fyrirliðinn Geir Sveinsson sagðist alls ekki ánægður með frammistöðu liðsins. Þeir hefðu verið stressaðir og einungis spilað vel í 20 mínútur. Við tók strembinn leikur við Afríkumeistarana frá Túnis sem Íslendingar unnu þó 25-21.

Ungverjar reyndust íslenska liðinu einnig erfiðir og leikurinn í járnum allan tímann. 23-20 sigur varð raunin og höfðu Íslendingar þá unnið þrjá ósannfærandi sigra í röð.

Stærsta tap sögunnar gegn Rússum

Slík lukka gat ekki gengið endalaust og Íslendingar fengu að kynnast því gegn Asíumeisturunum frá Suður-Kóreu. Markvörðurinn Lee reyndist liðinu ákaflega erfiður og skyttan Yoon, sem stóð uppi sem langmarkahæsti leikmaður mótsins, skoraði 9 mörk. Niðurstaðan var 23-26 tap og góð niðurstaða varð að fást í lokaleik riðilsins því annars yrði róðurinn í útsláttarkeppninni erfiður.

Sviss var alltaf erfiður múr að klífa enda fyrir fram talið sterkasta lið riðilsins með stórskyttuna Marc Baumgartner innanborðs. Íslendingar spiluðu ágætlega miðað við þá leiki sem á undan fóru og héldu í við Sviss allan leikinn og náðu að halda Baumgartner niður.

Bitinn var hins vegar of stór og 21-24 tap raunin og þriðja sætið í riðlinum. Þetta þýddi aðeins eitt, leikur gegn heims og ólympíumeisturum Rússa. Eftir leikinn við Sviss sagði Geir að liðið væri að spila langt undir væntingum og hugsanlega ætti stressið við að spila á heimavelli þátt í því.

Íslendingar byrjuðu sterkt gegn Rússum og framan af var jafnt á öllum tölum. Í hálfleik var einungis þriggja marka munur milli liðanna, 8-11 fyrir Rússum, en Íslendingar vel inni í leiknum. En snemma í seinni hálfleik byrjaði einn versti kafli í sögu íslensks handknattleiks og leikurinn endaði 12-25.

Hvorki fyrr né síðar hefur liðið tapað svo stórt.

Stjarnan Patrekur var auk þess rekinn af velli eftir gróft brot. Íslendingar kórónuðu svo slakan árangur mótsins með 23-28 tapi gegn Hvít-Rússum og enduðu í 14. sæti.

Hvað gerðist gegn Rússum?

„Rússaleikurinn var í sjálfu sér stórskrítinn frá upphafi. Það var eins og við hefðum gleymt að reima á okkur skóna og áttum einhvern daprasta leik á stórmóti frá upphafi. Þetta var gríðarlegt kjaftshögg sem ég er ekki enn þá búinn að jafna mig á. 14 sætið í keppninni var í raun skandal frammistaða af okkar hálfu en það er alltaf erfitt að segja hvað gerðist. Toppuðum við á röngum tíma? Þoldum við ekki álagið? Að mínu mati vorum við einfaldlega ekki í réttum gír er mótið hófst og við strákpungarnir þoldum ekki fjölmiðlafárið fyrir keppnina.“

Hvernig brugðust þið við?

„Það má segja að við höfum grafið okkur í sand dagana á eftir mótið og létum ekki sjá okkur á almannafæri næstu mánuðina. Ég hætti eftir mót en strákarnir náðu sér á strik á HM í Japan árið 1997. Þar náðist fínn árangur.“

Stjörnur Íslands reyna að róa hugann

Stórveldi fæddist

Mótið markaði viss tímamót í handknattleiknum á heimsvísu því að þar komu fram tvö ný stórveldi sem kepptu til úrslita, Króatar og Frakkar.

Króatar sem töpuðu úrslitaleiknum höfðu reyndar unnið fjölda titla sem hluti á Júgóslavíu en með silfri á Íslandi sýndi liðið að þeir væru raunverulegir arftakar þess liðs. Frakkar höfðu aldrei unnið stórmót fyrir HM á Íslandi en síðan hafa þeir unnið 11 titla.

Hvað finnst þér um mótið eftir á að hyggja?

„Fyrir utan okkar árangur var þetta frábært mót. Þarna komust Frakkarnir á blað og þeir hafa vart stigið feilspor síðan, þökk sé íslenska fiskinum. Það var gríðarleg bjartsýni að ætla í byrjun að við fengjum að halda mótið en hið óvænta gerðist og við héldum frábært mót með allri þeirri umgjörð sem stórþjóðir gætu verið stoltar af. Ég veit ekki alveg með fjárhagshliðina en óttast að við höfum ekki beint riðið feitu hrossi frá keppninni að því leyti. Áfram Ísland!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Andri Már varð fyrir alvarlegri líkamsárás og frelsissviptingu – „Í dag er ég frek­ar þakk­lát­ur fyr­ir þetta því þarna fékk ég nóg“

Andri Már varð fyrir alvarlegri líkamsárás og frelsissviptingu – „Í dag er ég frek­ar þakk­lát­ur fyr­ir þetta því þarna fékk ég nóg“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hera Björk fallin niður í 27. sætið – Litlu má muna að lagið komist í aðalkeppnina

Hera Björk fallin niður í 27. sætið – Litlu má muna að lagið komist í aðalkeppnina