Samfélagsmiðlastjarnan Birgitta Líf Björnsdóttir fjárfesti á dögunum í sinni fyrstu íbúð sem staðsett er í einu dýrasta fjölbýlishúsi landsins. Um er að ræða 104 fermetra íbúð á 3. hæð í Vatnsstíg 20–22 í Skuggahverfinu. Kaupverð íbúðarinnar var 62,9 milljónir króna og var það að stærstum hluta staðgreitt, 61,4 milljónir króna við undirritun kaupsamnings og síðan 1,5 milljónir króna við afsal.
Birgitta Líf, sem er aðeins 25 ára gömul, er lögfræðimenntuð. Hún starfar sem framkvæmdastjóri fegurðarsamkeppninnar Ungfrú Ísland auk þess sem hún sér um markaðssetningu á samfélagsmiðlum fyrir fjölskyldufyrirtækið World Class. Hún er dóttir eigendanna, þeirra Björns Leifssonar og Hafdísar Jónsdóttur. Birgitta Líf er afar vinsæl á samfélagsmiðlunum Instagram og Snapchat þar sem hún fjallar um hreyfingu og heilsu.
Ljóst er að ekki mun væsa um Birgittu Líf í húsinu glæsilega. Ef hún þarf að biðja um stevíudropa að láni hjá nágrönnum þá getur hún bankað upp á hjá fituskertum rjóma íslensks samfélags. Meðal nágranna hennar er auðkýfingurinn Róbert Wessmann, ráðherrann fyrrverandi Þorsteinn Pálsson og útgerðarmaðurinn Jakob Valgeir Flosason. Ef Birgittu Líf vantar bolla af spelti þá getur hún þó gleymt því að banka upp á hjá indónesíska auðjöfrinum Alwin Arifin sem á tvær íbúðir í húsinu. Sá óhollustupési efnaðist nefnilega á hveiti og pitsum.