Fyrirtækið PGV Framtíðarform ehf. framleiðir einangrandi, viðhaldslitla og orkusparandi glugga og hurðir úr mjög vönduðu efni. Fjárfesting í góðum gluggum og hurðum margborgar sig til lengri tíma litið.
Fyrirtækið var stofnað árið 2010 en að baki þess standa fagmenn með áralanga reynslu. „Við framleiðum PCV-u glugga og hurðir úr smíðaefni frá belgíska framleiðandanum Deceuninck. Um er að ræða 70 mm uPVC marghólfa prófíl með galvanseruðum stálkjarna en allir eru þeir glerjaðir að innan með 28 millimetra háeinangrandi gleri frá Íspan í Kópavogi,“ segir Gísli Jóhann Sigurðsson, framkvæmdastjóri og húsasmíðameistari.
Gísli segir ekkert gluggaefni jafnast á við uPVC hvað varðar endingu. „Það er auk þess gífurlega einangrandi og leiðir ekki kulda. Um leið er það orkusparandi og er hægt að lækka orkukostnaðinn umtalsvert með því að velja glugga frá okkur. Til dæmis velja yfir 80 prósent Þjóðverja og Englendinga PVC glugga og er vakningin hafin hér á landi enda er þetta frábært gluggaefni fyrir íslenskar aðstæður þar sem allra veðra er von.“
Að sögn Gísla hefur prófíllinn verið í þróun og framleiðslu hjá Deceuninck frá árinu 1960 og því fyllilega sannað gildi sitt. „Það er hundrað prósent endurvinnanlegt. Það þarf ekki að fella eitt einasta tré til að framleiða PVC-u og engin þörf er á eiturefnum, lakki eða málningu til að viðhalda PVC-gluggum áratugum saman.“
Íslensk framleiðsla
Framleiðslan fer fram í verksmiðju fyrirtækisins að Seljabót 7 í Grindavík auk þess sem söluskrifstofan er staðsett í Skipholti 35 í Reykjavík. „Við sérsmíðum alla glugga og hurðir eftir óskum viðskiptavina og þar sem framleiðslan fer fram á Íslandi er afhendingartíminn skemmri en almennt þekkist. Við leggjum mikið upp úr gæðunum og viljum vera vissir um að fólk þurfi ekki að standa í kostnaðarsömu viðhaldi eins og gerist stundum þegar óvandaðar og ódýrar eftirlíkingar verða fyrir valinu,“ segir Gísli.
Gluggarnir frá PGV Framtíðarformi stóðust slagveðurspróf Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands án athugasemda að sögn Gísla. „Við erum stoltir af árangrinum enda með hæstu einkunn. Það er mikil fjárfesting í gluggum og mikilvægt að vita hvað maður er með í höndunum. Við bendum fólki á að það er ekki alltaf fullnægjandi trygging á gæðum þó gluggar hafi staðist próf erlendis þar sem veðurskilyrði eru allt önnur hér heima. Það er okkur mikil ánægja að geta boðið upp á glugga og hurðir sem standast erfið veðurskilyrði okkar.“
Öryggið í fyrirrúmi
Allir glerlistar frá PGV Framtíðarformi eru að innanverðu sem er mikið öryggisatriði segir Gísli. „Þá er ekki hægt að fjarlæga gler úr glugga utan frá til að brjótast inn en nefna má að t.d. í Bretlandi, Þýskalandi og Belgíu er ekki hægt að fá innbrotstryggingu ef glerlistar eru á utanverðu. Tel ég að það sé einungis tímaspursmál hvenær tryggingafélög hér á landi taki það einnig upp. Hurðirnar okkar eru í svipuðum gæðaflokki þegar kemur að öryggi en þær koma með 5-7 punkta læsingu frá Yale og gluggar eru með 4-8 punkta læsingu.“
Litaúrval
PGV Framtíðarform býður upp á viðarútlit í sjö litum og fimm tvílitum en þá er hægt að hafa lit að utanverðu og hvítt að innan.
Svalalokanir og sólstofur
PGV Framtíðarform sérsmíðar einnig svalalokanir og sólstofur og eru útlitsmöguleikar óteljandi að sögn Gísla. „Þetta eru lokanir sem eru 100% vind- og vatnsþéttar. Vinsælasta þakefnið er polycarbonite sem er 35mm marghólfa plastefni en einnig er hægt að fá öryggisgler.“
Byggingarefni
Að auki býður PGV Framtíðarform uppá PVC þakrennur og niðurföll, sólpallaefni sem aldrei þarf að bera á, þakkantsefni í mörgum stærðum og gerðum ásamt miklu úrvali lita.
Samskeyti brædd saman
Það sem aðgreinir framleiðslu PGV Framtíðarforms sérstaklega frá öðrum er að öll samskeyti eru brædd saman, líka millipóstar að sögn Gísla. „Með þessu móti er engin hætta á leka eða taumum milli samskeyta. Slagveðursprófið sýnir ótvírætt kosti bræddra samskeyta en algengt er að millipóstar PVC glugga séu skrúfaðir í. Þegar húsið er komið með glugga sem krefjast minna viðhalds eykst frítíminn sem hægt væri að nota í eitthvert áhugamálið eins og til dæmis golf. Og með meiri tími fyrir golfið verður þú betri í golfinu og þú getur þakka það skynsamlegri ákvörðun þinni í gluggakaupum.“
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.pgv.is eða með því að kíkja í kaffi í Skipholti 35 og fá kynningu.