fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Bjútí rútína Kött Grá Pjé: „Meira og minna allar buxurnar mínar verða aðhaldsföt þegar ég fitna“

Margrét Gústavsdóttir
Föstudaginn 25. maí 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rappskáldið Kött Grá Pjé segist vera fremur varfærinn þegar kemur að útlitnu. Hann notar samt sem áður karbamíð krem og heldur mikið upp á varasalva með kirsuberjabragði. Þess utan stelst hann stundum í naglalakkið hjá kærustunnni sinni og rakar sig að neðan.

Kött Grá Pjé, eða Atli Sigþórsson, svarar hér nokkrum laufléttum „bjútí rútínu“ spurningum og vonumst við til að lesendur geti haft gagn og gaman af.

Hvað ertu lengi í sturtu?

Gott gegn augnbrúnaflösu

Það veltur dálítið á því hversu skítugur ég er, yfirleitt á bilinu hálftíma til þrjú kortér.

Notarðu kornaskrúbb?

Nei, ég er með of viðkvæma húð fyrir svoleiðis.

Hvaða krem finnst þér best?

Það heitir CNU 3/3 og er með „3% karbamíð sem eykur rakadrægni og 3% salt sem bindur rakann.“ Með notkun þess kemst ég hjá því að fá augabrúnaflösu.

En varasalvi?

Með kirsuberjabragði.

Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur lagt á þig til að lúkka betur?

Er fremur íhaldssamur og varfærinn á þessu sviði en tók upp á því fullorðinn maðurinn að raka á mér kynfærin.

Atla finnst Magnús Öder lykta vel.

Nú þekkir þú fullt af frægu fólki. Hvaða selebbi lyktar best?

Magnús Öder í Benny Crespo’s Gang gefur frá sér yndislegan moskusfnyk þegar hann spilar á bassa.

Hver sér um hárið á þér?

Kærastan mín gefur mér góð ráð um hvernig skal hirða það og kötturinn étur þau sem falla af upp af gólfinu. Skítur síðan perlufestum.

Áttu einhverja uppáhalds tannkremstegund?

Nei, en ég vil hafa þau bragðsterk. Mikla myntu, júkalyptus eða hvað sem vera kann. Eitthvað sem blífur á stæka andfýlu.

Notarðu olíu í skeggið?

Ég hef gert það, já. Hampolía lyktar vel. En yfirleitt nota ég bara feitt rakakrem.

Áttu uppáhalds smootie?

Tja, ég er hrifinn af margarítum þegar vel viðrar og jarðaberjasjeik með hamborgurum.

Ferðu í ljós eða notarðu brúnkukrem?

Nei, ég reyni að halda í minn náttúrulega undanrennugráa lit.

Hvað áttu marga rakspíra og hver er uppáhalds rakspírinn þinn?

Ég á engan rakspíra en þegar ég heimsæki pabba á Akureyri stelst ég stundum í eitthvað fínerí sem hann á og lætur mér líða eins og ég sé með byssuleyfi.

Lélegasta snyrtivara sem þú hefur átt?

Einhver sprey-svitalyktareyðir sem varð til þess að ég fékk ofsakláða og útbrot í armkrikana.

Dýrasta snyrtivaran þín?

Skeggsnyrtirinn minn, hugsa ég. Þess utan er það bara CNU 3/3.

Hvert ferðu í vax?

Inn í svefnherbergi.

Greiða eða bursti?

Hvorugt, ég slít flókana bara úr af og til.

Hverju stelurðu úr snyrtibuddu makans?

Naglalakki, ef svo ber undir. Sjaldan upp á síðkastið, reyndar.

Notarðu aðhaldsföt?

Meira og minna allar buxurnar mínar verða aðhaldsföt þegar ég fitna.

Boxer eða briefs?

Boxerbuxur, en með stuttum skálmum. Svona eins og Svíar vilja hafa þær.

Þú ert beðin um að sitja fyrir í Levis auglýsingu og hefur eina viku til að flíkka rækilega upp á útlitið. Hvað gerirðu?

Enda sjálfsagt á blindafylleríi, þetta er ekki vinnandi vegur.

Að lokum – myndirðu prófa bótox eða varafyllingu upp á djókið?

Nei, mér virðist það alltaf vera eitthvað svo óþægilegt og skrítið. Ég er of sérhlífinn í svoleiðis brölt, fyrir utan það að ég nota munntóbak og efast um að þetta tvennt færi vel saman.

Smelltu HÉR til að lesa langt og ýtarlegt viðtal við Atla þar sem hann ræðir m.a. tilgang lífsins. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Í gær

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta
Fókus
Fyrir 4 dögum

Segir móður sína stórhættulega í umferðinni – „Hvernig get ég fengið mömmu til að hætta að keyra?“

Segir móður sína stórhættulega í umferðinni – „Hvernig get ég fengið mömmu til að hætta að keyra?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hver fer á Bessastaði? – Þetta eru makar forsetaframbjóðendanna

Hver fer á Bessastaði? – Þetta eru makar forsetaframbjóðendanna