fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Láttu drauminn rætast

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 22. maí 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mamma við komumst áfram í Eurovision þegar ég fer í keppnina og tek þátt. Það eru ekki nema 10 ár,” sagði 8 ára gömul dóttir mín við mig við matarborðið í síðustu viku. Ég kreisti fram þvingað bros og kinkaði kolli. Hugurinn minn fór af stað og ég velti því fyrir mér hvenær þessi draumur eldist af henni. Hún snéri sér að afa sínum og sagði honum frá laginu sem hún hafði nú þegar samið og áætlunum sínum um að sigra Eurovision. Þar sem ég sat andspænis dóttur minni og fylgdist með henni, neistinn í augunum, brosið út að eyrum, hún lýsti upp stofuna þegar hún sagði frá draumnum sínum – þá gat ég ekki annað en dáðst að henni. Þessi eldmóður. Þessi kraftur. Þessi ástríða. Þvingað bros mitt kom upp um mig. „Engar áhyggjur mamma, ég get nefnilega meira en þú heldur.”

Öll viljum við hvetja börnin okkar til að láta drauma sína rætast og eltast við þá. Mörg okkar sem fullorðin eru fengum þessa hvatningu sjálf sem börn og unglingar. Einhver okkar þekkja það einnig af eigin raun að þetta er ekki alltaf eins einfalt og það hljómar. Ef til vill er einhver sem þekkir þá tilfinningu að það sé einfaldlega þægilegast að taka ekki sénsinn og sleppa því alfarið að teygja sig eftir draumnum. Halda sig á öruggu svæði.

Hvað ef við gætum orðið börnunum okkar út um verkfærakistu sem hægt er að grípa í þegar þau standa frammi fyrir þeim áskorunum og hindrunum sem á vegi þeirra verða á leiðinni í átt að draumnum? Rétt eins og við pökkum viðeigandi búnaði í tösku þegar við leggjum af stað í fjallgöngu þá getum við hjálpað börnunum okkar búa sig vel áður en þau halda af stað út í lífið.

Í gegnum leik og skapandi verkefni náum við hjá Dale Carnegie til barna og unglinga. Þjálfun sem ýtir undir frumkvæði og eflir sjálfstraustið þeirra hjálpar þeim að stíga út fyrir þægindahringinn og efla trú á eigin hæfileikum. Þau öðlast jákvætt viðhorf til að takast á við áskoranir og öðlast þannig jákvæðari sjálfsímynd. Þarna fá þau verkfæri til að undirbúa sig fyrir lífið sem framundan er og mögulega tækifæri til að færast skrefi nær sínum draum.

Gefum því séns að láta drauminn rætast.

Nánari upplýsingar

Vefsíða www.dalecarnegie.is

Símanúmer Dale 555-7080

Skráning á kynningarfund 22. maí: www.dale.is/ungtfolk

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum