fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
FókusKynning

Silja Úlfars: „Þeir sem koma til mín eru metnaðarfullir og vilja ná árangri“

Kynning
Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 18. maí 2018 15:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Silja Úlfarsdóttir var fljótasta kona Íslands í yfir áratug og æfði einnig bæði hand- og fótbolta. Af slysni fór hún að þjálfa aðra í að auka hraða og snerpu og komst að því að henni finnst það einstaklega skemmtilegt og gefandi.

„Faðir Gylfa Sigurðssonar fékk mig á sínum tíma til að aðstoða Gylfa við að ná aukahraða og þá uppgötvaði ég hvað þetta er skemmtilegt,“ segir Silja. „Síðan þá hef ég unnið við þjálfun og ég hef þjálfað mikið af afreksfólki síðan árið 2008, marga meistaraflokka, til dæmis FH bæði í hand- og fótbolta og einnig fullt af öðrum liðum. Ég hef unnið við að hjálpa unglingum, leikmönnum og afreksmönnum að bæta hraða og styrk.“

Silja tók sér þó pásu frá þjálfun fyrir tveimur árum þar sem hún fótbrotnaði illa. „Ég var hins vegar farin að sakna þess að þjálfa unglinga og dró því þjálfaraskóna fram aftur fyrir rúmu ári síðan.“

Miðvikudaginn 23. maí næstkomandi hefst hlaupanámskeið hjá Silju fyrir unglinga, en margir sem æfa fótbolta eða handbolta leita til hennar. „Námskeiðið er fyrir unglinga á aldrinum 10–18 ára og þar hjálpa ég ungum íþróttamönnum að bæta hraða, snerpu og hlaupastíl.“

„Það eru margir sem hlaupa rangt og geta þannig meiðst, og sumir hlaupa á þann hátt að þeir stoppa sig í hverju skrefi, þannig ef þeir ætla að auka hraðann þá fer ég vel og skemmtilega í þá hluti. Ég er búin að bjóða upp á námskeiðið í mörg ár.“

Námskeiðið er í fimm vikur og hver iðkandi mætir einu sinni í viku og það eru þrír tímar í boði: miðvikudaga og föstudaga 16.15–17.15, æfingar fara fram á Fram-vellinum í Safamýri og sunnudaga kl. 16 og fer sú æfing fram í Kaplakrika.

Allir fá skjöl og myndbönd með æfingum

„Ég fer yfir öll atriði eins og hlaupastíl, snerpu, hliðarhreyfingar, hvernig á að hoppa og lenda ásamt fleiri æfingar eins og liðleika,“ segir Silja. „Ég gef leiðbeiningar og allir sem mæta eru að mæta til að gera sitt besta þannig að geta og aldur skiptir ekki máli. Þau mæta á æfinguna og fá síðan skjal sent með viðkomandi æfingu svo þau geti æft sig áfram. Myndband fylgir með öllum æfingum. Ég vil ekki bara vera kennarinn þeirra í 5 vikur, heldur kenna þeim að halda áfram að bæta sig og hjálpa sér sjálf.“

„Þeir sem koma til mín eru metnaðarfullir íþróttamenn sem vilja ná lengra. Þú kemur til mín til að bæta þig.“

Allar upplýsingar má fá á heimasíðu Silju: siljaulfars.is eða facebook síðunni hennar siljaulfars.is.


Ég á strák sem er 11 ára, hann á sér stóra drauma um atvinnumennsku í fótbolta.
Ein leiðin að því markmiði var að fara á hlaupanámskeið hjá Silju. Draumurinn var að ná auknum hraða, betri hlaupatækni og hlaupastíl.
Árangurinn á 5 vikum fór langt fram úr væntingum. Hann hefur bætt hraðann þvílíkt, hlaupastíllinn er allt annar og hann á miklu auðveldara með að hlaupa.
Silja er ekki bara fær hlaupaþjálfari heldur er hún stórkostleg í samskiptum við börn og unglinga.
Ég mæli með þessu fyrir alla krakka sem vilja ná auknum árangri í sinni íþrótt.
Takk fyrir okkur, Silja, við ætlum að koma á annað námskeið.
Elma Björk

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum