fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Einstakar sumarbúðir á fallegum stað: Ástjörn er umlukin stórkostlegri náttúrufegurð

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 18. maí 2018 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumarbúðirnar Ástjörn í Kelduhverfi eru fyrir drengi og stúlkur á aldrinum 6–12 ára og 13–15 ára unglinga. Þær voru stofnaðar 1946. Börnin koma alls staðar að af landinu.

„Mörg börnin sem koma til okkar eiga foreldra sem voru í sumarbúðunum hjá okkur þegar þeir voru börn og það er mjög ánægjulegt því það sýnir að foreldrarnir vilja veita börnunum sínum það sem þau sjálf upplifðu hér,“ segir Árni Hilmarsson forstöðumaður.

Hugmyndaflugið virkjað í leikjum og útiveru

Flest börnin koma í einn flokk, en sum dvelja lengur. Flokkarnir eru 7, 8 eða 10 sólarhringar. Tjörnin og birkiskógurinn umhverfis sumarbúðirnar er endalaus uppspretta leikja og útiveru. Má nefna t.d. knattspyrnu- og körfuboltavöll, kvöldvökur, söng, náttúruskoðun í Ásbyrgi og víðar, biblíutíma, föndur, alls kyns leiki og keppnir í skóginum og víðar, íþróttahús í næsta nágrenni, sund í tjörninni eða fjöruferð á góðviðrisdögum, hestaleigu og margt fleira. Bátar eru af ýmsum gerðum: Árabátar, kajakar, kanóar, hjólabátar og skútur.

„Hjá okkur er stærsti bátafloti í sumarbúðum á Íslandi, en við erum með tugi báta af öllum gerðum, meira að segja svokallaða sökkvibáta!“ segir Árni, en það eru bátar sem börnin mega sökkva á góðviðrisdögum þegar synt er í tjörninni. Hornsílaveiðar eru sívinsælar.

 

„Það er alltaf jafn gaman að heyra að börnin fari ánægð heim,“ segja starfsmenn Ástjarnar.

Reynt er að hafa verðið fyrir sumardvölina eins hagstætt og mögulegt er, en það er um 6.000 kr. á sólarhring. Systkini koma nokkuð oft saman enda býður skipulagið upp á það og auk þess er systkinaafsláttur.

Fyrir þau börn sem koma með flugi þá á Ástjörn frátekin flugsæti, sjá nánar astjorn.is/flug.

Fylgdarmaður frá Ástjörn eða flugfélaginu fylgir börnunum í flugvélinni. Á Akureyrarflugvelli taka starfsmenn Ástjarnar á móti þeim börnum sem koma með flugi.

Síðan er lagt af stað akandi til Ástjarnar. Það tekur um 2 klukkustundir að aka milli Akureyrar og Ástjarnar, sem er innifalið í dvalargjaldinu.

Ástjörn hefur m.a. þá sérstöðu að þvottahús er á staðnum. Þar er allt þvegið af börnunum, mörgum foreldrum til mikillar ánægju.

Ávallt er lögð áhersla á að kenna börnunum að ganga vel um náttúruna.

Í nágrenni Ástjarnar eru líka sannkallaðar náttúruperlur og athyglisverðir staðir sem upplagt er fyrir Íslendinga almennt að skoða betur, t.d. Ásbyrgi, Hljóðaklettar, Hólmatungur, Grettisbæli, Jökulsárgljúfur, Dettifoss og Hafragilsfoss.

Nánari upplýsingar og skráning í síma 462-3980, á heimasíðunni astjorn.is og einnig á facebook.com/astjorn þar sem hægt er að sjá fleiri myndir, og sömuleiðis myndbönd á youtube.com/astjorn

Einnig eru föndurhugmyndir á pinterest.com/astjorn

Netfang er astjorn@astjorn.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum