fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Mi-Iceland: Þreföld gæði miðað við sambærileg tæki í sama verðflokki

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 12. maí 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mi Iceland er viðurkenndur endursöluaðili á Íslandi fyrir kínverska snjalltækjaframleiðandann Xiaomi, Mi. Þó að merkið sé ekki ýkja þekkt eru tækin gífurlega vinsæl. „Mi hafa verið að rokka frá 3. upp í 5. sæti sem stærstu farsímaframleiðendur í heiminum síðustu ár. Þeir hafa átt Asíumarkaðinn nokkurn veginn frá byrjun en í seinni tíð eru þeir einnig að verða mjög stórir í Evrópu og Bandaríkjunum,“ segir Örvar Blær Guðmundsson, framkvæmdastjóri Mi Iceland.

Mi framleiðir miklar gæðavörur en þar sem merkið er ekki jafnþekkt og til dæmis Samsung eða Apple þá eru þessar vörur yfirleitt mun ódýrari en þekktari merki í sama gæðaflokki: „Þú ert liggur við að fá þrefalt meiri gæði miðað við annað tæki í sama verðflokki,“ segir Örvar. Mi-snjallsímarnir nota Android-stýrikerfið eins og flestir aðrir snjallsímar í dag.

Mi framleiðir margar mismunandi vörur og er óhætt að segja að flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Snjallsímarnir eru í nokkrum verðflokkum og hægt er að fá mjög góðan snjallsíma fyrir aðeins 25.000 krónur. Með slíkum síma er hægt að gera allt sem maður notar hefðbundinn snjallsíma í, rafhlaðan er endingargóð og myndavélin er sérlega góð, sem er mjög eftirsóttur kostur í snjallsímum í dag.

 

Má þar nefna snjallsímann Redmi 5 Plus sem fæst í fjórum litum: svörtum, bláum, bleikum og gullituðum. Hönnunin á Redmi 5 Plus er afar nútímaleg, þar sem skjárinn þekur stóran hluta símans. Redmi 5 Plus hefur mjög stóra rafhlöðu sem endist auðveldlega út daginn í mikilli notkun. Hann býður upp á tvö símkort og er mjög þægilegt fyrir þá sem eru með vinnu- og persónulegan síma að geta sameinað þá síma í einn síma. Redmi 5 Plus kostar frá 27.990 krónum.

Önnur frábær vara frá Mi er heilsuúrið Mi Band 2, sem er með nákvæman skrefa- og hjartsláttarmæli og fylgist þannig með skrefum og hjartslætti. Mi Band 2 er vatns- og rykvarið og hefur rafhlöðu sem endist í allt að 30 daga á einni hleðslu. Mi Band 2 getur sent notanda tilkynningar þegar síminn hringir, fær sms, tölvupóst,  Facebook-skilaboð o.s.frv. Mi Band 2 kostar 6.990 krónur.

Ein skemmtilegasta nýjungin hjá þeim er ryksugu-róbótinn Mi Robot Vacuum 2. Þetta ryksuguvélmenni hefur töluvert meiri sogkraft og stærri rafhlöðu en iRobot Roomba sem kostar allt að tvöfalt meira. Það má svo ekki gleyma því að ryksugan moppar einnig gólfið sem er sjaldséð hjá slíkum vélmennum.

Mi Iceland er vefverslun sem sendir hvert á land sem er og er enginn sendingarkostnaður. Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni www.mii.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum