fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Camelia.is: Toppgæði á hagstæðu verði

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 12. maí 2018 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum í samstarfi við tvær æðislegar heildverslanir í Bretlandi. Önnur þeirra er ein stærsta og fallegasta heildverslun Bretlands á sviði húsgagna og fylgihluta fyrir heimili og erum við eina verslunin á Íslandi með samning við hana. Vörurnar frá þeim eru mjög sérstakar og hreint út sagt æðislegar. Gæðin eru í toppklassa og verðið er einstaklega gott miðað við gæðin.“

Þetta segir Katrín Einarsdóttir hjá netversluninni Camelia.is sem sérhæfir sig í fallegri gjafavöru og vöru fyrir heimilið.

„Hin heildverslunin er gjafavöruverslun með fylgihluti fyrir heimilið. Þar er að finna vinsælli vörur á góðu verði og eru vörurnar þeirra við flestra hæfi. Með þessu móti getum við bæði boðið upp á ódýrari heimilis- og gjafavörur sem fylgja helstu tískustraumum í innanhússhönnun hvers tíma, og einnig vandaðri og dýrari gæðavörur sem eru fágætari. Þetta er frábær blanda og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Við vorum einnig að taka inn vörur frá danska merkinu Madam Stoltz, en vörurnar frá þeim eru handunnar, af miklum gæðum og á einstaklega góðu verði. En við erum sífellt að stækka við okkur og munum taka inn nokkur ný merki á næstunni, aðallega frá hinum Norðurlöndunum.

Okkar helsta aðalsmerki er þó veggmyndirnar okkar. Við semjum við listamenn alls staðar að úr heiminum og kaupum réttindi til dreifingar á hönnun þeirra hér á Íslandi. Við erum erum með mikið úrval af veggmyndum sem við látum prenta fyrir okkur og við svo römmum inn sjálf. Myndirnar okkar eru gríðarlega vinsælar allt árið um kring enda eru þær á góðu verði, og alveg einstakar þar sem þær fást ekki annars staðar hér á Íslandi og við seljum þær tilbúnar í römmum. Myndirnar eru mjög vinsælar í gjafir fyrir öll tækifæri og er stundum svo mikið að gera að við eigum erfitt með að anna eftirspurn.“

Ánægðir viðskiptavinir

„Það sem mér finnst skipta mestu máli, er ánægja viðskiptavina  minna. Ég þjónusta alla persónulega og legg mikið upp úr því að aðstoða viðskiptavini mína eins vel og ég get. Verslunin stendur og fellur með ánægju kúnna minna og ég er virkilega þakklát fyrir alla viðskiptavini, enda væri verslunin ekki til án þeirra.

Má til dæmis nefna að fyrir síðustu jól seldum við jólagjafir í hundraðatali og eftir jólin fengum við aðeins tvær vörur til baka. Það má einnig nefna að við bjóðum upp á mjög rúman skilarétt, en það er hægt að skila vörum innan tveggja vikna og fá fulla endurgreiðslu við skil, en það veitir viðskiptavinum ákveðið öryggi þar sem það er jú verið að panta í gegnum netið og fólk hefur ekki séð vörurnar berum augum.“

Að vanda valið

Katrín leggur mikla áherslu á ánægju viðskiptavina og að bjóða vörur sem njóta vinsælda:

„Hver einasta vara í versluninni er valin af mikilli kostgæfni og markmiðið er að allar vörur sem við tökum inn seljist vel. Við erum dugleg að fylgjast með helstu tískustraumum og kappkostum að bjóða það sem fólk sækist eftir hverju sinni. Á sama tíma reynum við þó að vera öðruvísi og reynum að bjóða ekki upp á mikið af vörum sem fást annars staðar á Íslandi.“

Vinsælustu vörurnar í Camelia.is núna í vor eru Eucalyptus-gervigreinar sem eru afskaplega fallegar, (https://camelia.is/vara/eucalyptus-grein-60cm/)ásamt glervasa frá Madam Stoltz (https://camelia.is/vara/handunninn-glervasi-med-doppum/)

Veggmyndirnar frá Moods má sjá hér: https://camelia.is/vara/mood/ og Black & White: https://camelia.is/vara/black-white/. Ásamt Króm-gólflampanum okkar (https://camelia.is/vara/krom-lampi/

Camelia.is sendir um allt Ísland og allar pantanir yfir 12.000 kr. eru sendar frítt heim að dyrum.

Sjá nánar á camelia.is. Camelia.is er einnig á Facebook, Instagram (camelia.is) og Snapchat (camelia.is).

Í tilefni Mæðradagsins verður Camelia.is með Netkast dagana 11.–16. maí með flottum tilboðum á sérvöldum vörum!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum