Hanna Katrín Friðriksson, sem situr á Alþingi fyrir Viðreisn, og eiginkona hennar, Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi Novator, seldu glæsilegt raðhús sitt í Fossvogi á dögunum. Endanlegt söluverð eignarinnar var 97 milljónir króna sem var einni milljón króna hærra en ásett verð þegar húsið var auglýst.
Hanna Katrín og Ragnhildur keyptu húsið í apríl 2006 og hafa því búið í Fossvoginum í rúm tólf ár. Þar hefur þeim liðið vel ef marka má orð Ragnhildar á Facebook-síðu sinni þegar eignin var auglýst til sölu í byrjun árs. „Þá er fjölskyldan í Logalandinu farin að hugsa sér til hreyfings og húsið komið á sölu. Þetta er dýrðarinnar hús (og garður!) og hér hefur farið vel um okkur fjórar alla grunnskólagöngu dætranna. Við mælum með þessu fyrir ykkur eða vini ykkar, sem hafa alltaf þráð að búa á besta stað í Fossvogi,“ skrifaði Ragnhildur.
Húsið í Logalandinu er 231 fermetri að stærð og skiptist í fjögur svefnherbergi, tvær stofur og tvö baðherbergi. Hjónin keyptu húsið á 67 milljónir króna á sínum tíma.
Það verður því nóg að gera hjá Hönnu Katrínu og Ragnhildi í sumar en þær eiga að afhenda húsið í síðasta lagi þann 1. ágúst næstkomandi.