fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
FókusKynning

Ný nuddstofa og magadansstúdíó að Ármúla 40

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 7. apríl 2018 10:16

Josy Zareen - magadans

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Fólk vissi lítið um magadans þegar ég byrjaði að kenna hann hér, en í dag er hann miklu vinsælli og Íslendingar kunna að meta þessa list. Ég hef upplifað í gegnum þetta starf að Íslendingar eru bæði blóðheitari og hjartahlýrri en þeir virðast. Stundum eruð þið dálítið stíf en þegar maður hreyfir við ykkur og leiðbeinir ykkur þá finnið þið Íslendingar taktinn. Þið eruð líka yndislegt fólk og mér líður hvergi betur en hér,“ segir Josy Zareen sem hefur kennt íslenskum konum magadans alveg frá aldamótum.

Josy er frá Brasilíu og byrjaði að æfa magadans þegar hún var 13 ára. Hún dansar og kennir tignarlega útgáfu af magadansinum sem þróuð var í Egyptalandi en Josy dvaldist lengi í Kaíró og lærði magadans þar. Að sögn hennar eru munúðarfyllri útgáfur dansins tíðkaðar í Tyrklandi.

Josy byrjaði að kenna Íslendingum magadans árið 2000 og árið 2003 fór hún með leikkonunni vinsælu Helgu Braga um landið og þær kenndu víðs vegar þessa heillandi, austurlensku fótamennt. Í dag er magadans orðinn að vinsælli íþrótt og listgrein. Kennir Josy konum á öllum aldri magadans, alveg frá fjögurra ára stúlkum upp í aldraðar konur.

Josy Zareen – magadans

Magadans og nudd eru góð blanda

Josy hefur nú opnað nýtt og glæsilegt magadansstúdíó og nuddstofu að Ármúla 40. Nuddararnir á stofunni eru frá ýmsum löndum, Taílandi, Brasilíu, Kúbu, Venesúela og einn frá Íslandi. 80% viðskiptavina nuddstofunnar eru karlmenn en vefsíða nuddstofunnar er www.costaverde.is.

Að sögn Josy finnst mörgum konum frábært að sameina nuddtíma og magadanstíma og þær fara endurnærðar í burtu. Einnig er staðurinn frábær vettvangur fyrir gæsa- og steggjapartí þar sem þokkafullur dansinn setur sinn blæ á stemninguna.

„Á meðan meirihluti þeirra sem koma hingað í nudd eru karlmenn eru nær allir nemendurnir í magadansi konur. Í hreinskilni sagt þá er magadans fyrir konur. Hann er hins vegar fyrir konur á öllum aldri, af öllum húðlit og af öllum stærðum,“ segir Josy og að hennar sögn er það mikill misskilningur að magadans sé bara fyrir grannar konur með sléttan maga, hann hentar öllum konum.

Josy Zareen – magadans

Josy fræðir okkur einnig um að magadans sé afar hollur og heppilegur fyrir ófrískar konur til að örva samdráttarhreyfingar. Einnig er hann mjög góð hreyfing fyrir konur eftir barnsburð til að endurheimta þrótt í líkamann.

Auk magadansins kennir Josy einnig jóga, burlesque-dans, zumba, Brazil Dance Fit og Hawaiian-dans frá Tahítí.

Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni magadans.is og í síma 7742345.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum